Ferðalýsing
Njótum sólar, strandlífs og hlýju við Rauðahafið í sólarferð Kleopatra Tours til Hurghada, þar sem hlýtt loftslag, gullnar sandstrendur og kristaltært haf taka á móti okkur.
Ferðin er farin í beinu flugi frá Íslandi þann 13. febrúar og dvalið verður í 8 nætur, með heimkomu 21. febrúar. Gist verður á vel völdum 4 og 5 stjörnu hótelum við strendur Rauðahafsins, þar sem gestir geta notið þæginda, framúrskarandi þjónustu og aðstöðu sem hentar bæði pörum, vinahópum og fjölskyldum. Upplýsingar um mismunandi hótel er að finna hér að neðan.
Hurghada er einn vinsælasti sólaráfangastaður Egyptalands og býður upp á fallegar sandstrendur, kristaltært haf, fjölbreytta afþreyingu og notalegt veður yfir vetrarmánuðina. Hvort sem markmiðið er að njóta afslappandi daga við sundlaugina, skoða litríkan neðansjávarheim Rauðahafsins, fara í spennandi skoðunarferðir eða einfaldlega njóta lífsins í sólinni, þá er Hurghada kjörinn áfangastaður.
Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið og svo ferð til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt. Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum .
Þetta er einstakt tækifæri til að skipta út snjó og kulda fyrir sól, sjó og afslappandi stemningu á einum fallegasta áfangastað Egyptalands.
Helstu upplýsingar
- Beint flug frá Íslandi
- Brottför 13. febrúar
- Heimkoma 21. febrúar
- 8 nætur í Hurghada
- Gisting á 4 og 5 stjörnu hótelum (skoða hótel hér fyrir neðan)
- Frábær staðsetning við Rauðahafið
- Sól, strendur og hlýtt veður um miðjan vetur
Skoða hótel:
4 stjörnu Hótel
Seagull Beach Resort (4 stjörnu)

Verð frá 272.000 kr á mann miðað við 1 fullorðinn og 2 börn saman í herbergi í All Inclusive í Seagull Beach Resort (4 stjörnu)
Skoða/bóka Seagull Beach Resort hér:
Jaz Casa del Mar (4 stjörnu)

Glæsilegt fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett í Hurgada nærri ströndinni ásamt því að vera í námunda við verslanir heimamanna og veitingastaði. Á hótelinu er innifalin drykkir og matur af glæsilegu hlaðborði. Auk þess er fjölbreytt úrval á la carte veitingastaða gegn vægu gjaldi, hvort sem þú vilt demba þér í ítalskan mat eða njóta þess besta af grillinu .
Herbergin eru rúmgóð og falleg. Tvær sundlaugar eru við hótelið og er önnur þeirra hituð upp yfir vetrartímann ásamt upphitaðri barnalaug. Gestir hafa einnig aðgang að einkaströnd systurhótelsins, sem staðsett er hinumegin við götuna.
Fallegt hótel við Rauðahafið með öllum þeim þægindum sem þarf til þess að láta veturinn líða úr sér um stund.
Verð frá 324.000 kr á mann miðað við 2 fullorðna og 1 barn saman í herbergi í All Inclusive í Jaz Casa del Mar (4 stjörnu)
Skoða/bóka Jaz Casa del Mar hér:
Three Corners Sunny Beach Resort (4 stjörnu)

Three Corners Sunny Beach Resort er glæsilegt 4 stjörnu strandhótel við strönd Rauðahafsins í Hurghada. Hótelið hentar einstaklega vel fyrir bæði fjölskyldur og pör og býður upp á stórar sundlaugar, vatnagarð með rennibrautum, einkaströnd og fjölbreytta afþreyingu. Þar er einnig úrval veitingastaða og bara, auk skemmtidagskrár fyrir alla aldurshópa. Frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta sólar, sjávar og afslappandi frís í Egyptalandi.
Verð frá 289.000 kr á mann miðað við 2 fullorðna og 1 barn saman í herbergi í All Inclusive á Three Corners Sunny Beach Resort (4 stjörnu)
Skoða/bóka Three Corners Sunny Beach Resort (4 stjörnu) hér:
5 stjörnu Hótel
Jaz Aquamarine (5 stjörnu) – Með Júlí og Dísu

JAZ Aquamarine er glæsilegt fimm stjörnu hótel við Rauðahafið í Egyptalandi. Hótelið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna og para sem vilja njóta sólar, strandar og fjölbreyttrar afþreyingar í afslappandi umhverfi. Þar eru fjöldi sundlauga fyrir allan aldur, vatnsrennibrautasvæði og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið. Á hótelinu er matur og drykkir innifalin. Hótelið er með glæsilega hlaðborðsveitingastaði með mismunandi grillréttum. Einnig er strandarbar og sundlaugarbar þar sem hægt er að panta sér létta rétti yfir daginn af matseðli. Herbergin eru rúmgóð og þægileg.
Skemmtistjórar á Jaz Aquamarine eru Júlí og Dísa. Dagskrá Júlí og Dísu eru fyrir gesti Kleopatra Tours sem gista á Jaz Aquamarine.
Verð frá 359.000 kr á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn saman í herbergi í All Inclusive í Jaz Aquamarine.
Skoða/bóka hótel Jaz Aquamarine með Júlí og Dísu hér:
Hurghada Marriot Beach Resort (5 stjörnu)

Marriott Beach Resort í Hurghada er glæsilegt 5 stjörnu hótel við strönd Rauðahafsins. Hótelið býður upp á fallega einkaströnd, rúmgóð herbergi, sundlaug, fjölbreytta veitingastaði og góða afþreyingu fyrir bæði pör og fjölskyldur. Hér má njóta sólar, sjávar og afslappandi frídaga í þægilegu og fallegu umhverfi, aðeins stutt frá miðbæ Hurghada.
Fullt fæði er innifalið á hótelinu og óáfengir drykkir.
Verð frá 312.000 kr á mann miðað við 2 fullorðna og 1 barn saman í herbergi með morgunmat inniföldum í Hurghada Marriott Beach Resort
Skoða verð og bóka hótel Hurghada Marriott Beach Resort hér:
5 stjörnu Hótel Elite
Jaz Elite Casa del Mar (5 stjörnu)
Fimm stjörnu lúxus hótel við Rauðahafið þar sem hægt er að slaka á við ströndina eða eina af sex sundlaugum hótelsins. Innifalið er matur af glæsilegu hlaðborði hótelsins ásamt drykkjum.
Auk þess hafa gestir möguleika á að heimsækja alþjóðlega veitingastaði á hótelinu eða á nálægum stöðum í Hurgada.
Herbergin eru rúm með loftkælingu, WiFi og gerfihnattasjónvarpi. Á hótelinu eru meðal annars líkamsræktarstöð, tennisvöllur og spa.
Dásamlegt hótel með öllum þægindum.
Verð frá 429.000 á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn saman í herbergi í All Inclusive í Jaz Elite Casa del Mar (5 stjörnu)
Skoða verð og bóka hótel Jaz Elite Casa del Mar (5 stjörnu) hér:
Ferðadagur: 13. febrúar: Ísland – Hurghada
Við fljúgum frá Íslandi 11:00 í beinu flugi til Hurghada með Smartwings. Áætluð lending í Hurghada kl. 20:15. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar.
Valfrjálsar aukaferðir (ekki innifaldar)
Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið. Hin ferðin er til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt.
Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada sem hægt er að bóka á staðnum, til dæmis er hægt er að fara á fjórhól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira. Einnig er margt í boði á hótelunum og mörg hótel bjóða upp á skemmtidagskrá fyrir gesti sína.
Valfrjáls Aukaferð 1. – Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)
Dagsferð til Kaíró
Farið er af stað snemma morguns og flogið frá Hurghada til Kaíró.
Við heimsækjum píramídana og sfinxinn. Þar næst heimsækjum við hið nýja Grand Egyptian Museum. Gefinn verður frjáls tími á safninu fyrir hádegisverð.
Eftir heimsóknirnar fljúgum við aftur til baka til Hurghada.

Valfrjáls Aukaferð 2. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
Farið er af stað snemma morguns, við keyrum í rútu frá Hurghada til Luxor.
Við heimsækjum hinn fræga dal konunganna og El Karnak musterið, sem er stærsta forna musteri í heimi. Seinni partinn keyrum við aftur til Hurghada.

Heimkoma: 21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands
Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
- Íslenskir fararstjórar
- Fæði og drykkir samkvæmt lýsingu á hóteli
- Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
- Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
- Valfrjálsar aukaferðir
- Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.
Mikilvægt:
- Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
- Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi
Hurghada
Hurghada er strandabær við Rauðahafið í austurhluta Egyptalands. Borgin var upphaflega lítið fiskimannaþorp sem var stofnað um árið 1905. Íbúarnir lifðu aðallega af fiskveiðum og svæðið var lítt þekkt utan Egyptalands.

Hurghada hefur á rúmri öld þróast úr litlu fiskimannaþorpi í alþjóðlega ferðamannaborg og er í dag ein helsta perla Egyptalands við Rauðahafið.
Mikil breyting varð á níunda áratugnum þegar egypsk stjórnvöld hófu að byggja upp ferðaþjónustu við Rauðahafið. Fallegar strendur, heitt loftslag allt árið og einstakar kóralrif gerðu Hurghada að vinsælum áfangastað fyrir ferðamenn frá Evrópu og öðrum heimshlutum. Fjöldi hótela, smábátahafna og afþreyingarmiðstöðva reis á skömmum tíma. Ferðaþjónusta er nú mikilvægasta atvinnugrein svæðisins og milljónir ferðamanna heimsækja borgina árlega. Borgin er sérstaklega þekkt fyrir köfun, snorkl, aqua activities og fallegt sjávarlíf Rauðahafsins.

Hurghada er í dag einn vinsælasti sólaráfangastaður Egyptalands og býður upp á fallegar sandstrendur, kristaltært haf, fjölbreytta afþreyingu og notalegt veður yfir vetrarmánuðina. Hægt er er að slaka á við sundlaugina og njóta lífsins í sólinni, skoða litríkan neðansjávarheim Rauðahafsins eða fara í spennandi skoðunarferðir.
Meðalhitastig í Hurghada í febrúar er 20-25 gráður á daginn og 13-16 gráður á kvöldin.
Það eru nokkrar verslunarmiðstöðvar og göngugata sem hægt er að heimsækja, þar sem hægt er að versla í borginni. Það tekur uþb. korter í leigubíl frá hótelinu.
Egyptaland
Egyptaland er land í norðausturhluta Afríku og er eitt elsta menningarríki heims. Landið er þekkt fyrir forna sögu sína, meðal annars pýramídana, sfinksinn og faraóana sem réðu landinu fyrir þúsundum ára. Í gegnum Egyptaland rennur áin Níl, sem er ein lengsta á heims og hefur verið lífsnauðsynleg fyrir íbúa landsins frá fornu fari.
Höfuðborg Egyptalands er Kaíró og er meira en 20 milljóna borg. Í dag er Egyptaland vinsæll ferðamannastaður þar sem gestir geta skoðað sögulegar minjar, notið strandanna við Rauðahafið og kynnst ríkri menningu landsins.





