Three Corners Sunny Beach Resort (4 stjörnu): Staðfestingargreiðsla

50.000 kr.

Dásamleg ferð til Rauðahafsins þar sem við slökum á og njótum sólarinnar og góða veðursins á all-inclusive resorti.

Staðfestingargreiðsla er 50.000 kr á mann

Hægt er að greiða staðfestingargreiðslu með korti hér eða með millifærslu á reikning Kleopatra Tours:

Kennitala: 640419-1480

Reikningsnúmer: 0133-26-200116

Hægt er að skoða nánari ferðalýsingu og verð á mann hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Three Corners Sunny Beach Resort (4 stjörnu)

Three Corners Sunny Beach Resort er glæsilegt 4 stjörnu strandhótel við strönd Rauðahafsins í Hurghada. Hótelið hentar einstaklega vel fyrir bæði fjölskyldur og pör og býður upp á stórar sundlaugar, vatnagarð með rennibrautum, einkaströnd og fjölbreytta afþreyingu. Þar er einnig úrval veitingastaða og bara, auk skemmtidagskrár fyrir alla aldurshópa. Frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta sólar, sjávar og afslappandi frís í Egyptalandi.

hurghada-sunny-beach-edited-17-scaled
previous arrow
next arrow

 

Verð á mann/per herbergi – Flug og gisting:

Fullorðinn= 12 ára og eldri
Börn til 11,99 ára

Greiðslur á ferðinni skiptast í 4 hluta:

Staðfestingargreiðsla: 50.000 kr á mann greiðist við bókun

Önnur greiðsla er 80.000 kr á mann og greiðist 4 vikum eftir bókun

Þriðja greiðsla er 150.000 kr á mann og greiðist 1. október 2026

Lokagreiðsla greiðist 2. janúar 2027.

Ferðadagur: 13. febrúar: Ísland – Hurghada

Við fljúgum frá Íslandi 11:00 í beinu flugi til Hurghada með Smartwings. Áætluð lending í Hurghada kl. 20:15. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar.

Valfrjálsar aukaferðir (ekki innifaldar)

Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið. Hin ferðin er til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt.

Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada sem hægt er að bóka á staðnum, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum.

Valfrjáls Aukaferð 1. –  Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)

Dagsferð til Kaíró

Farið er af stað snemma morguns og flogið frá Hurghada til Kaíró.

Við heimsækjum píramídana og sfinxinn. Þar næst heimsækjum við hið nýja Grand Egyptian Museum. Gefinn verður frjáls tími á safninu fyrir hádegisverð.

Eftir heimsóknirnar fljúgum við aftur til baka til Hurghada.

Valfrjáls Aukaferð 2. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið

Farið er af stað snemma morguns, við keyrum í rútu frá Hurghada til Luxor.

Við heimsækjum hinn fræga dal konunganna og El Karnak musterið, sem er stærsta forna musteri í heimi.  Seinni partinn keyrum við aftur til Hurghada.

Heimkoma:  21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands

Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
  • Íslensk fararstjórn
  • Fæði og drykkir samkvæmt lýsingu á hóteli
  • Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
  • Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
  • Valfrjálsar aukaferðir
    • Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
    • Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
    • Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
  • Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi.
  • Hvert hótel og aðstaða hótelsinns er eingöngu opið fyrir gesti sem gista á hótelinu, ekki er hægt að heimsækja önnur hótel

Hurghada

Hurghada er strandabær við Rauðahafið í austurhluta Egyptalands. Borgin var upphaflega lítið fiskimannaþorp sem var stofnað um árið 1905. Íbúarnir lifðu aðallega af fiskveiðum og svæðið var lítt þekkt utan Egyptalands.

Hurghada hefur á rúmri öld þróast úr litlu fiskimannaþorpi í alþjóðlega ferðamannaborg og er í dag ein helsta perla Egyptalands við Rauðahafið.

Mikil breyting varð á níunda áratugnum þegar egypsk stjórnvöld hófu að byggja upp ferðaþjónustu við Rauðahafið. Fallegar strendur, heitt loftslag allt árið og einstakar kóralrif gerðu Hurghada að vinsælum áfangastað fyrir ferðamenn frá Evrópu og öðrum heimshlutum. Fjöldi hótela, smábátahafna og afþreyingarmiðstöðva reis á skömmum tíma. Ferðaþjónusta er nú mikilvægasta atvinnugrein svæðisins og milljónir ferðamanna heimsækja borgina árlega. Borgin er sérstaklega þekkt fyrir köfun, snorkl,  aqua activities og fallegt sjávarlíf Rauðahafsins.

Hurghada er í dag einn vinsælasti sólaráfangastaður Egyptalands og býður upp á fallegar sandstrendur, kristaltært haf, fjölbreytta afþreyingu og notalegt veður yfir vetrarmánuðina. Hægt er er að slaka á við sundlaugina og njóta lífsins í sólinni,  skoða litríkan neðansjávarheim Rauðahafsins eða fara í spennandi skoðunarferðir.

Meðalhitastig í Hurghada í febrúar er 20-25 gráður á daginn og 13-16 gráður á kvöldin.

Það eru nokkrar verslunarmiðstöðvar og göngugata sem hægt er að heimsækja, þar sem hægt er að versla í borginni. Það tekur uþb. korter í leigubíl frá hótelinu.

Egyptaland

Egyptaland er land í norðausturhluta Afríku og er eitt elsta menningarríki heims. Landið er þekkt fyrir forna sögu sína, meðal annars pýramídana, sfinksinn og faraóana sem réðu landinu fyrir þúsundum ára. Í gegnum Egyptaland rennur áin Níl, sem er ein lengsta á heims og hefur verið lífsnauðsynleg fyrir íbúa landsins frá fornu fari.

Höfuðborg Egyptalands er Kaíró og er meira en 20 milljóna borg.  Í dag er Egyptaland vinsæll ferðamannastaður þar sem gestir geta skoðað sögulegar minjar, notið strandanna við Rauðahafið og kynnst ríkri menningu landsins.