Ferðalýsing

Fararstjórar ferðarinnar eru Heiða, Bryndís og Elisabeth. Þær hafa kennt saman Zumba við góðan orðstír og hafa tímarnir þeirra í Power Move Studio notið mikilla vinsælda, þar á meðal hin ýmsu þemapartý. Heiða, Bryndís og Elisabeth eru með fjölbreytta reynslu af hópefli, viðburðum og uppákomum. Áherslur Power Move Studio eru gleði, kraftur, hreyfing og vellíðan. Vegna fjölda áskorana ætla þær nú loks að láta verða af því að fara í þeirra fyrstu Zumbaferð erlendis þar sem gleðin verður við völd í ferðinni, jafnt innan og utan dansgólfsins.
Ásamt Zumba verður í nokkur skipti í ferðinni boðið upp á Circl Mobility fyrir þau sem vilja. Circl Mobility leggur áherslu á hreyfanleika, liðleika og öndun. Æfingarnar eru óháð getustigi og ættu að henta flestum. Þátttakendur ráða hvort þeir hafi dýnu meðferðis en er þó ekki nauðsyn
Ferðaáætlun:
DAGUR 1: Föstudagur 29. janúar – Ferðadagur til Tenerife
Flogið með Icelandair til Tenerife kl. 10:00, áætluð lending á Tenerife kl. 15:25. Fararstjórar ferðast með hópnum frá Keflavík. Við komuna til Tenerife erum við keyrð á hótelið okkar Hotel Best Jacaranda (4*) á Costa Adeje, aðeins 450 metrum frá Fañabé-ströndinni.

Sameiginlegur kvöldverður um kvöldið á hótelinu og eftir kvöldverðinn verða fararstjórar með kynningarfund og fara yfir dagskrá ferðarinnar og kynnast hópnum.
(Kvöldverður innifalinn, hlaðborð hótelsins)
DAGUR 2: Laugardagur 30. janúar – Zumba
10:15 – 11:00 Upprifjun og upphitun (fyrir alla sem vilja renna aðeins yfir helstu sporin í Zumba)
11:00 – 12:00 Zumba

19:00 – 20:00 Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu (Hlaðborð hótelsins, drykkir ekki innifaldir)
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn, hlaðborð hótelsins)
DAGUR 3: Sunnudagur 31. janúar – Zumba og Fañabé ströndin
Eftir morgunverð er ferð með fararstjórum á ströndina – Playa Fañabé fyrir þau sem vilja.
Fyrir hádegi: Circle Mobility fyrir þau sem velja

17:00 – 18:00 Zumba

(Morgunverður innifalinn)
DAGUR 4: Mánudagur 1. febrúar – Zumba
11:00-12:00 Zumba
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn, hlaðborð hótelsins án drykkja)
DAGUR 5: Þriðjudagur 2. febrúar – Zumba og valfrjáls vínsmökkunarferð
11:00 – 12:00 Zumba
Seinnipartinn er valfrjáls vínsmökkunarferð
18:00 – 20:00 Kvöldverður
(Morgunverður innifalinn)
DAGUR 6: Miðvikudagur 3. febrúar – Zumba

Zumbatími verður fyrripart dags
18:00-20:00 Sameiginlegur kvöldverður. Skemmtikvöld að hætti Heiðu, Elisabethar og Bryndísar. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.

(Morgunverður innifalinn)
DAGUR 7: Fimmtudagur 4. febrúar – heimferð
Brottför frá hóteli og keyrum út á flugvöll, nánari tímasetning síðar hjá fararstjóra
Við fljúgum heim til Íslands með Icelandair kl. 16:25 frá Tenerife Reina Sofía og lendum aftur á Íslandi kl. 21:55 (FI971)
(Morgunverður innifalinn)
*Þátttaka í dagskrá er frjáls og ekki er skyldumæting.
*Athugið að dagskráin getur tekið breytingum
Ferðin kostar 279.500 kr á mann í tveggja manna herbergi
Einstaklingsherbergi kostar 85.200 kr. aukalega.
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Icelandair
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23 kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Zumba með Heiðu, Bryndísi og Elisabeth
- Circle Mobility
- Gisting í 6 nætur á Hotel Best Jacaranda
- Morgunverður alla daga
- Kvöldverðarhlaðborð hótelsins (Drykkir ekki innifaldir)
- Rútuferð milli flugvallar og hótels
EKKI innifalið:
- Valfrjálsar aukaferðir (T.d. vínsmökkunarferð)
- Þjórfé



