Ferðalýsing
Hurghada Marriot Beach Resort (5 stjörnu)
Marriott Beach Resort í Hurghada er glæsilegt 5 stjörnu hótel við strönd Rauðahafsins. Hótelið býður upp á fallega einkaströnd, rúmgóð herbergi, sundlaug, fjölbreytta veitingastaði og góða afþreyingu fyrir bæði pör og fjölskyldur. Hér má njóta sólar, sjávar og afslappandi frídaga í þægilegu og fallegu umhverfi, aðeins stutt frá miðbæ Hurghada.
Fullt fæði er innifalið á hótelinu og óáfengir drykkir.
Verð frá 312.000 kr á mann miðað við 2 fullorðna og 1 barn saman í Soft All Inclusive (fullt fæði og óáfengir drykkir) í Hurghada Marriott Beach Resort.
Verð á mann og per herbergi, flug og gisting:

Fullorðinn= 12 ára og eldri
Börn til 11,99 ára
Greiðslur á ferðinni skiptast í 4 hluta:
Staðfestingargreiðsla: 50.000 kr á mann greiðist við bókun
Önnur greiðsla er 80.000 kr á mann og greiðist 4 vikum eftir bókun
Þriðja greiðsla er 100.000 kr á mann og greiðist 1. október 2026
Lokagreiðsla greiðist 2. janúar 2027.
Valfrjálsar aukaferðir (ekki innifaldar)
Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið. Hin ferðin er til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt.
Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada sem hægt er að bóka á staðnum, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum.
Valfrjáls Aukaferð 1. – Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)
Dagsferð til Kaíró
Farið er af stað snemma morguns og flogið frá Hurghada til Kaíró.
Við heimsækjum píramídana og sfinxinn. Þar næst heimsækjum við hið nýja Grand Egyptian Museum. Gefinn verður frjáls tími á safninu fyrir hádegisverð.
Eftir heimsóknirnar fljúgum við aftur til baka til Hurghada.

Valfrjáls Aukaferð 2. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
Farið er af stað snemma morguns, við keyrum í rútu frá Hurghada til Luxor.
Við heimsækjum hinn fræga dal konunganna og El Karnak musterið, sem er stærsta forna musteri í heimi. Seinni partinn keyrum við aftur til Hurghada.

Dagur : 21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands
Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
- Íslenskir fararstjórar
- Fullt fæði og drykkir á Marriott Beach Resort – ekki áfengir drykkir (Soft All Included)
- Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
- Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
- Valfrjálsar aukaferðir
- Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.
Mikilvægt:
- Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
- Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi.


















