Zumba og sólarferð með Flosa til Egyptalands 22. febrúar – 2. mars 2025

329.000 kr.

Dásamleg Zumba og sólarferð til Egyptalands með Flosa, þar sem við dönsum við Rauðahafið, heimsækjum píramídana og Sfinxinn í Giza, Þjóðminjasafn Egyptalands í Kaíro og margt fleira skemmtilegt.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargjald hér.

Hægt er að skoða ferðalýsinguna nánar hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Einstök 8 daga zumbaferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við bæði að njóta dásamlegra daga í Hurgada þar sem við dönsum zumba í góða veðrinu, njótum þess að slaka á við einkaströndina og við sundlaugabakkana á glæsilega Jaz Aquamarine resortinu og ótalmargt fleira skemmtilegt á dagskrá, og heimsækum líka Kaíró þar sem við fáum að upplifa píramídana, Sphinxinn og Egypskasafnið. Dvölin á Jaz Aquamarine í 6 nætur er með öllu fæði og drykkjum inniföldum.

Fararstjóri í ferðinni er Flosi Jón Ófeigsson sem margir þekkja, hann heldur uppi einum af vinsælustu Zumba tímum landsins. Flosi er með mikla reynslu af ferðaskipulagningu og ferðalögum og hefur meðal annars verið með skemmtilegar Zumbaferðir til Kanaríeyja við miklar vinsældir. Flosi er bæði zumba og leiklistarkennari, vanur hópefli og hefur gífurlega gaman af því að búa til skemmtilegar upplifanir með hópunum sínum.

 

Ferðaáætlun: 

Dagur 1:  22. febrúar– Ferðadagur til Egyptalands

Við fljúgum frá Íslandi kl. 14:20 og millilendum í Zurich í 3 klukkustundir og fljúgum svo áfram til Hurgada, þar sem við lendum kl. 03:45 á staðartíma (01:45 á íslenskum tíma). Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið sem er í um 15 mínútna fjarlægð frá flugvellinum. Við tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 6 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir. Mismunandi veitingastaðir eru á hótelinu og einnig er strandarbar þar sem hægt er að panta létta rétti og drykki allan daginn. 

Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið. 

það er ýmislegt hægt að gera í frítímanum, meðal annars eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælt hefur tildæmis verið að fara á fjórhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.

Dagur 2: 23. febrúar – Zumbafitness, kvöldverður og hópefli

11:40: Zumba – upphitun (fyrir byrjendur og aðra sem vilja æfa aðeins fyrir Zumbatíman sem byrjar strax á eftir)

12:00: Zumba Fitness

18:00 Hittumst í fordrykk, sameiginlegan kvöldverð og hópefli eftir mat

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 3: 24. febrúar – Zumbafitness og karíókí

12:00: Zumba Fitness

18:30 Kvöldverður

20:00 Karíókí kvöld

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 4: 25. febrúar – Frjáls dagur – Aukaferð til Luxor

Í dag er frjáls dagur og hægt er að njóta alls sem resortið hefur upp á að bjóða.

Þau sem vilja geta valið aukaferð til Luxor, sem oft hefur verið kallað stærsta open air museum í heimi.

Aukaferð til Luxor – skráning í ferðina fer fram á kynningarfundi:

Við keyrum af stað snemma til Luxor, rútuferðin tekur í kringum 3 klukkustundir.

Við byrjum á vesturbakka Luxor þar sem við heimsækjum hinn fræga dal konunganna í Luxor og 3 grafhýsi konunga, hægt er að bæta við heimsókn í grafhýsi Tutankhamun. 

Eftir hádegi heimsækjum við Austurbakka Luxor, þar sem bæði er að finna El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins, og hið glæsilega Luxor musteri.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir á hótelinu (All Inclusive))

Dagur 5: 26. febrúar – Zumba og valfrjáls aukaferð: fjórhólasafarí í eyðimörkinni

11:40: Zumba – upphitun (fyrir byrjendur og aðra sem vilja æfa aðeins fyrir Zumbatíman sem byrjar strax á eftir)

12:00: Zumba Fitness

Seinnipartinn er hægt að fara í fjórhólasafarí í eyðimörkinni.

Dagur 6: 27. febrúar – Zumba og þemakvöld

11:40: Zumba – upphitun (fyrir byrjendur og aðra sem vilja æfa aðeins fyrir Zumbatíman sem byrjar strax á eftir)

12:00: Zumba Fitness

Kvöldverður saman  og skemmtilegt þemakvöld með verðlaunaafhendingu. Nánari upplýsingar um þemakvöldið verður deilt þegar nær dregur.

 

Dagur 7: 26. febrúar – ferðadagur til Kaíró

Morgunzumba ef orkan leyfir.

Við tékkum út af Jaz Aquamarine og keyrum með rútu til Kaíró. Ferðin tekur um 6 klukkustundir þar sem við keyrum meðfram Rauðahafinu og Súesflóanum, gegnum eyðmörkina og inn í stórborgina Kaíró, þar sem búa yfir 22 milljón manns. Það er skemmtilegt að fylgjast með umhverfinu og mannllílfinu á leiðinni til höfuðborgarinnar. Við tékkum okkur inn á hótelið okkar Safir Hotel Cairo 5* sem er staðsett í miðborg Kaíró, 10 mínútum frá Níl ánni. 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 8: 1. mars- píramídadagur

Eftir morgunmat er komið að ómissandi hluta Egyptalandsferðarinnar okkar,  að heimsækja píramídana og Sfinxinn í Giza og hið fræga þjóðminjasafn Egyptalands. 

Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað. 

Eftir ferðina höldum við aftur á hótelið og hvílum okkur þangað til við skráum okkur út af hótelinu um kl 21:30 og höldum af stað út á flugvöll fyrir heimflug.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 9:  Flogið heim – Komum heim til Íslands endurnærð eftir stórkostlega daga

Við fljúgum frá Kaíró kl. 01:45,  millillendum í Frankfurt og lendum heima á Íslandi kl. 14:15.

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með Edelweissair og Lufthansa
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23 kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Zumbadans með Flosa
  • Rútuferð frá Hurgada til Kaíró
  • Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (6 nætur)
  • Allar rútuferðir í loftkældum rútum
  • Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
  • Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður í Kaíró
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
  • Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Hurgada fyrir íslenska ríkisborgara
  • Kynningarfundur með fararstjóra fyrir ferðina

EKKI innifalið:

  • Aukaferð til Luxor
  • Valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana og/eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.  
  • Aðrar auka ferðir, eins og fjórhjólasafarí og „scubadiving“
  • Þjórfé

Ferðin kostar : 329.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 62.500 kr. aukalega.

Staðfestingargjald er 60.000 kr. Hægt er að greiða staðfestingargjaldið hér.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni og gegnum heilsuveru.
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá brottfaradegi frá Egyptalandi.
  • Lágmarksþáttaka þarf að nást til að ferð sé farin.