Ferðalýsing
Einstök 17 daga ferð til Egyptalands þar sem siglt er niður Níl ánna frá Aswan í Suður-Egyptalandi til Kaíró á fimm stjörnu fljótabátnum Mövenpick M/S Darakum í 13 daga/ 12 nætur.
Píramídarnir í Giza, Konungadalurinn og Karnak musterið eru frægustu og mest heimsóttu fornminjar Egyptalands og meðal þess sem við fáum að sjá í þessari ferð, en þetta er eingöngu lítill hluti af þeirri arfleifð sem forn Egyptar skildu eftir sig. Í þessari siglingu sem tekur okkur eftir endilöngu Egyptalandi munum við kynnast mun fleiri fornleifum sem gefur dýpri upplifun á afrekum faróanna og skilning á hvernig list þeirra og arkitektúr breyttist yfir þúsundir ára.
Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku og einni lengstu á heimsins, þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands sem ber vitni ótrúlegs verkvits þessa tíma. Auk þess að kynnast fornminjum og ríkri sögu forn Egypta, þá eru ýmsar upplifanir um borð í fljótabátnum, meðal annars Galabaia partý, magadans, vínsmökkun og matreiðslunámskeið.
Í ferðinni fáum við að kynnast háþróaðri fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskumælandi Egypta sem fararstjóra auk enskumælandi Egyptologista. Við heimsækum Sfinxinn og píramídana í Giza, eitt af sjö undrum fornaldrar sem enn stendur. Við upplifum konungadalinn og drottningadalinn, og ótöl musteri og grafhýsi sem hafa varðveist á ótrúlegan hátt þar sem við siglum eftir Níl ánni, lífæð landsins í yfir 7000 ár. Við heimsækjum markaði, kirkjur og moskvur, og kynnumst Egyptalandi á einstakan hátt.
Omar Salama sem er fararstjóri í þessari ferð, hefur búið á Íslandi síðastliðin 17 ár. Hann er fæddur og uppalinn í Egyptalandi. Margir Íslendingar úr skákheiminum þekkja til Omars. Hann fæddist í Alexandríu og bjó í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á Egyptalandi sem er fjölmennt land þar sem búa fleiri en 100 milljón manna. Í ferðinni okkar verður líka sérfróður enskumælandi leiðsögumaður og Egyptalandsfræðingur ásamt Omari .

Dagur 1: 28. mars – Ferðadagur til Egyptalands
Við fljúgum frá Íslandi með Austrian Airlines kl. 01:10 og millilendum í Vínarborg. Við fljúgum svo áfram til Kaíró þar sem við lendum kl. 15:35 á staðartíma. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel og gistum þar í tvær nætur með útsýni á Níl ánna. Hótelið er staðsett í hjarta Kaíró við Tahrir torg, sem þekktast er fyrir hið svokallaða arabíska vor.
Við borðum kvöldverð á hótelinu.
(Kvöldverður innifalinn)
Dagur 2: 29. mars – Pýramídarnir í Giza og Sfinxinn, Sakkara og Memphis
Eftir morgunverð heimsækjum við hina frægu píramída í Giza og Sfinxinn. Við borðum hádegismat á egypskum veitingastað og eftir hádegisverðinn heimsækjum við Sakkara, gömlu þrepapíramídana sem voru undanfari píramídanna og Memphis, höfuðborg Egyptalands hins forna.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 3: 30. mars – Þjóðmynjasafn Egyptalands, Salah El Din og Khan el Khalili markaðurinn
Eftir morgunverð byrjum við á að heimsækja hið fræga þjóðmynjasafn Egyptalands og eftir heimsóknina höldum við til gömlu Kaíró þar sem við skoðum Salah El Din borgarvirkið og moskvuna, og fáum okkur svo hádegisverð á vinsælum egypskum veitingastað. Eftir hádegisverðinn skoðum við Khan el Khalili Bazar-inn sem er yfir 600 ára gamall.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 4: 31. mars – Frjáls dagur í Kaíró
Í dag er frjáls dagur og hægt að njóta þess að vera í hjarta Kaíró og kynnast borginni ennþá betur og njóta seinasta dagsins á InterContinental Semiramis.
Það er bæði morgunverður og kvöldverður innifalinn á hótelinu.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: 1. apríl – Aswan og 5 stjörnu Fljótaskipið Movenpick Darakum
Morgunverður á hótelinu og svo höldum við upp á flugvöll þaðan sem við fljúgum til Aswan.
Í dag skoðum við Hástífluna í Aswan, skoðum Philae Hofið og ókláruðu Obilisk súluna.

Við tékkum okkur inn á MS Darakum Nile Cruise – 5 stjörnu fljótaskipið sem mun sigla með okkur gegnum Egyptaland næstu 14 dagana.
Við borðum kvöldverð saman á skipinu.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 6: 2. apríl – Abu Simbel / Frjáls dagur í Aswan
Morgunverður um borð á skipinu og eftir morgunverð er valfrjálst að bæta við ferð til Abu Simbel, eitt af frægustu musterum heimsins. Abu Simbel er staðsett syðst í Egyptalandi og var byggt af Ramses II, í kringum 1264 f.Kr. og er stórkostlegt dæmi um byggingarlist forn Egypta. Geislar sólarinnar ná að lýsa upp andlit Ramses II inni í musterinu tvisvar sinnum á ári, á afmælisdaginn hans þann 22. október og daginn sem hann var krýndur, þann 22. febrúar. Musterið var í hættu þegar hástíflan í Aswan var byggð, en allt musterið var fært með hjálp UNESCO.

Seinni partinn geta þau sem vilja farið á siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 7: 3. apríl – Aswan stíflan, Philae hofið og Kom Ombo musterið
Við borðum morgunverði og hádegisverð um borð í skipinu. Um morguninn er frjáls tími.

Um 13:30 hefjum við siglinguna og siglum til Kom Ombo. Við heimsækjum Kom Ombo hofið og siglum til Edfu.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 4. apríl – Edfu og Esna skipastiginn
Borðum morgunverð snemma um borð í skipinu og eftir morgunverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.

Við höldum svo siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er áhugaverð upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.

Um kvöldið heimsækjum við Luxor musterið.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 5. apríl- Konungadalurinn, drottningardalurinn, Luxor og Karnak musterin
Eldsnemma geta þau sem vilja valið að fara í loftbelg og sjá sólarupprásin yfir Luxor.

Við byrjum daginn á morgunverði á skipinu. Við heimækjum vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor, drottningardalinn og musteri Hatshepsut drottningarinnar.
Þau sem vilja geta líka heimsótt gröf farósins Tutankhamun.
Seinni partinn heimsækjum við austurbakka Luxor, og skoðum El Karnak musterið sem var stærsta musterið á tímum fornegypta og er stærsta musteri sem hefur verið byggt.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 10: 6. apríl – Hathor musterið í Dendera
Morgunverður um borð í bátnum og við siglum yfir ti Quena. Eftir hádegisverð heimsækjum við Hathor musterið í Dendera, eitt best varðveitta musteri Egyptalands. Hathor er gyðja ástar, fegurðar og frjósemis. Eftir heimsóknina siglum við til Naga Hammadi.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 11: 7. apríl – Abydos Seti I
Morgunverður um borð á meðan við siglum til Balyana í gegnum Abu Homar skipastigann og skoðum svo Abydos Seti I musterið sem er eitt besta dæmi um Egypska list og er byggt til heiðurs guðinum Osiris.

Við siglum svo til Sohag, og borðum hádegisverð og kvöldverð á skipinu.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 12: 8. apríl – Frjáls dagur á bátnum og Prince Tawdous klaustrið
Morgunverður um borð í bátnum á meðan við siglum til Tel El Amarna.
Hádegisverður um borð í bátnum og stoppað fyrir framan Prince Tawdous klaustrið til þess að sjá klaustrið frá bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 13: 9. apríl – Tel El Amarna
Eftir morgunmat um borð í bátnun heimsækjum við grafhýsi Tel El Amarna og konunglega grafhýsi Akhnaten, litlu musteri Aten og fleiri grafhýsi.
Akhetaton er ein af fáum borgum Egyptalands hins forna sem hefur verið grafin upp og haldið við á þennan hátt, þar sem fornleifafræðingarnir gátu endurbyggt óvenjulega nákvæma mynd af skipulagi borgarinnar. Borgin var staðsett miðja vegu milli Thebes (Luxor) og Memphis (Kaíró) við bakka Níl, og var byggð á 14 öld fyrir Krist af Egyptska kónginum Akhenaton og eiginkonu hans Nefertiti, sem flutti þegna sína þangað frá Luxor til þess að stofna nýja eingyðistrú, trú sólarguðsins Aten.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 14: 10. apríl- Bin Hassan
Morgunverður um borð í bátnum, heimsækjum Beni Hassan grafhýsin, forn Egypskan kirkjugarð á austurbakka Níl. Við heimsækjum meðal annars grafhýsi Baquet III, grafhýsi Khety og grafhýsi Amenemhet.
Hádegisverður á bátnum og siglum til Beni Suif og kvöldverður á bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 15: 11. apríl- Gamla Kaíró
Morgunverður um borð í bátnum og siglum til Kaíró. Eftir hádegisverð heimsækjum við gömlu Kaíró, hangandi kirkjuna, Abu Serga kirkjuna og Amr Ibn El As moskuna.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 16: 12. apríl – Frjáls dagur
Í dag er frjáls dagur
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 17: 13. apríl – Heimferðardagur
Morgunverður og hádegisverður á skipinu, við tékkum okkur út um hádegi og fljúgum aftur heim til Íslands. Flogið er frá Kaíró kl. 15:45 með Austrian Airlines, við millilendum í Vínarborg og lendum heima á Íslandi kl. 23:20.
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum.
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og tilbaka með Austrian Airlines
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Innanlands flug frá Kaíró til Aswan
- Morgunverður alla daga
- Gisting og fullt fæði á 5 stjörnu fljótaskipi (12 nætur/13 dagar)
- 4 nætur á 5 stjörnu hótelinu Intercontinental Semiramis Cairo Hotel
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu.
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Allar rútuferðir milli flugvalla, hótela og fljótabáts (ekki á Íslandi) í loftkældri rútu og vatnsflöskur innifaldar
- Vegabréfsáritun til Egyptalands (fáum hana á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara)
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Aðgangur inn í pýramídana, aðgangur að The Royal Mummy room í Egypska safninu, eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
- Valfrjálsar auka ferðir: Abu Simbel, loftbelgur og ferð í Nubian þorp
Ferðin kostar : 1.249.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 392.000 kr. aukalega.
Staðfestingargjald er 160.000kr.