Menningar og sólarferð til Egyptalands 3.-17. nóvember 2024

859.000 kr.

Í þessari ferð heimækjum við Sfinxinn og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna og grafhýsin, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargjald hér.

Áfangastaður

Ferðalýsing

Menningar og sólarferð til Egyptalands

Einstök 15 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum á elephantin eyjunni á Níl,  og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl við Rauðahafið.

Fararstjóri í ferðinni er Stefanía Guðmundsdóttir. Stefanía hefur mikla ástríðu fyrir menningu og sögu Mið-Austurlanda. Hún hefur stundað nám í arabísku í nokkur ár og ferðast til margra landa í Mið-Austurlöndum. Auk Egyptalands hefur hún ferðast um Jórdaníu, Sýrland og dvalist mikið í Marokkó og meðal annars séð um skipulagningu hópaferða þangað.  Stefanía leggur auk þess stund á magadans og austurlenska dansa. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið á þeim vettfangi til margra ára.

Í þessari ferð heimækjum við Sfinxinn og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna og grafhýsin, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.

Dagur 1:  3. nóvember – Ferðadagur til Egyptalands

Við fljúgum frá Íslandi kl. 07:35 og millilendum í Kaupmannahöfn. Við lendum í Kaíró kl. 20:15. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á hið glæsilega 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró, við Tahrir torgið og með útsýni á Níl ánna, þar sem við gistum fyrstu 3 næturnar.

Dagur 2: 4. nóvember –Kastalinn í Kaíró og þjóðminjasafn Egyptalands

Í dag byrjum við að kynnast stórborginni Kaíró. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar, og heimsækjum svo hið fræga þjóðminjasafn Egyptalands. Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalin)

Dagur 3: 5. nóvember – Píramídarnir, Sfinxinn og Sakkara

Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Við heimsækjum einnig Sakkara og minjar hinna fornu Memphis. 

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 4: 6. nóvember – Aswan

Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu og fljúgum niður til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptaland hins forna í Aswan.  

Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu Movenpick Resort Aswan Hotel á Elefantín eyjunni og gistum næstu tvær næturnar þar. 

Hægt er að njóta glæsilegs kvöldverðarhlaðborðs Mövenpick úti á verönd hótelsins. 

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 7. nóvember – Há stíflan, Philae hofið og hin ókláraða Obelísk

Eftir morgunverð byrjum við daginn á að skoða háu Aswan stífluna, Philae hofið og hina ókláruðu óbelísk. 

Philae hofið
Philae hofið

Frjáls tími restina af deginum.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 6: 8. nóvember – Fljótabátur og frjáls dagur – Val um Abu Simbel og Nubian þorp

Frjáls dagur. Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.

Eftir morgunverð tékkum við okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum. 

Restina af deginum er hægt að skoða Aswan,  fara í siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp, eða slaka á í sólinn og njóta útsýnisins.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 7: 9. nóvember – Sigling á Nílarfljótinu

Í dag byrjum við siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.

Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið. 

Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.

Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 8: 10. Nóvember – El Karnak og Luxor musterin

Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.

Í dag heimsækum við austurbakka Luxor og  heimsækjum El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins. 

Við heimækjum svo hið glæsilega Luxor musteri.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 9: 11. Nóvember –  Konungardalur og Hatshepsut Mustri

Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.

Eftir morgunverð heimækjum við vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar. 

Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun. 

Við tékkum okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel og borðum kvöldverð á hótelinu.

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 10: 12. Nóvember – Luxor

Í dag eigum við frjálsan dag í Luxor.

Aukaferð er VAL fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás. 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 11: 13. Nóvember – Rauðahafið

Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.

Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 3 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir. 

Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 12 og 13 : 14.-15. Nóvember – Frjáls tími í Hurgada

Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan. 

Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 14: 16. nóvember- Ferðumst til Kaíró

Morgunverður á Jaz Aquamarine resort, tékkum okkur svo út og fljúgum til Kaíró.

Tékkum okkur inn á flugvallarhótel rétt við flugvöllinn í Kaíró og gistum nóttina þar.

Frjáls tími.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 15: 17. nóvember- Ferðumst heim til Íslands

Tékkum okkur út snemma og fljúgum kl 09:55 aftur heim með Egyptair, við millilendum á leiðinni til Íslands í Kaupmannahöfn. Við fljúgum klukkan 20:50 frá Kaupmannahöfn og lendum aftur heima á Íslandi kl 23:20 sama dag.

(Morgunverður innifalinn)

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með Icelandair og Egyptair .
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23 kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Innanlands flug frá Kaíró til Aswan og frá Hurghada til Kaíró
  • Morgunverður alla daga
  • Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
  • Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
  • Allar rútuferðir í loftkældum rútum
  • Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
  • Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
  • Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara

EKKI innifalið:

  • þjórfé
  • Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana og/eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.  
  • Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
  • Aðrar auka ferðir eins og sigling í Núbían þorp

Ferðin kostar : 859.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 205.000 kr. aukalega.

Staðfestingargjald er 110.000 kr. Hægt er að greiða staðfestingargjaldið hér.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.