Ferðalýsing
Safaríferð til Kenía er einstök upplifun sem er engri lík. Að fylgjast með gíröffum borða blöð af Akasíu trjám, fíll á göngu með fílskálfinn sinn, ljón sem var að veiða sér til matar, að upplifa þessi stórkostlegu dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Í safarí ferðinni okkar til Kenía förum við í fjölmargar safarí ferðir með innfæddu leiðsögufólki sem deilir með okkur gífurlegri þekkingu sinni um dýrin og umhverfið þeirra, hvernig við högum okkur þegar við leitum að dýrunum og þegar við erum í návist þeirra. Við förum á þrjú mismunandi svæði í Kenía, hið fræga Masai Mara, Navaisha vatnið og friðlýsta eyjan Cresent auk Amboseli við rætur Kilimanjaro. Einnig gistum við 2 nætur í höfuðborginni Naíróbí.

Ingibjörg Björnsdóttir er fararstjóri í ferðinni. Hún er vanur fararstjóri og hefur ferðast og skipulagt ferðir til Afríku, Evrópu og Suður-Ameríku. Hún hefur ferðast víða og bjó lengi erlendis en flutti aftur heim til Íslands árið 2019 eftir 1 árs ferðalag um Afríku og Evrópu. Hún hefur mikinn áhuga á menningu og ferðalögum og að fara í safaríferð er eitthvað sem hún mælir með að allir sem hafa tækifæri prófi minnst einu sinni á ævinni.
Dagur 1: 23. september- Ferðadagur: Keflavík til Nairobi
Við fljúgum með Lufthansa frá Keflavík kl.00:20 millilendum í Frankfurt. Við lendum í Nairobi kl. 20:30
Við innritum okkur á hótelið okkar 4 Point by Sheraton, þar sem við gistum fyrstu 2 næturnar.
Dagur 2: 24. september – Frjáls dagur og valfrjáls ferð í þjóðgarðurinn í Naíróbí
Í dag er frjáls dagur í Naíróbí. Þau sem vilja geta byrjað safaríævintýrið með því að koma með í hálfsdagssafarí í þjóðgarðinum í Naíróbí.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 3:25. september -Naíróbí til Masai Mara
Eftir morgunverð skráum við okkur út af hótelinu og höldum snemma morguns af stað í átt að Masai Mara og byrjum ævintýrið. Við keyrum í gegnum Great Rift dalinn í Kenía, og í gegnum Narok sem er eini Masai bærinn. Síðan er farið upp vesturveginn þar sem farið inn í Hemingways-landið sem liggur að Serengeti sléttunum.

Við komum til Masia Mara rétt fyrir hádegisverð, við borðum hádegisverð og tékkum okkur inn á Mara Serena Lodge . Um eftirmiðdaginn förum við í safarí ferð um Masai Mara.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 4: 26. september – Masai Mara
Snemma morguns förum við á safarí jeppa um fallegt graslendið i Masai Mara og upplifum dýralífið þann daginn.

Hið fræga Masai Mara er þekkt fyrir stórkostlegar hjarðir af villtum dýrum, svartmakka ljón, hlébarða og blettatígur og allar dýrategundir sem finnast í Kenía. Eftir ferðina keyrum við til baka í lodge-ið í hádegisverð og þau sem vilja geta komið með seinni partinn í eftirmiðdegis safaríferð.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)
Dagur 5: 27. september – Masai Mara
Frjáls tími um morguninn og seinni partinn er farið í Safaríferð með valfrjálsum möguleika að heimsækja Masai þorp.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)
Dagur 6: 28. september – Masai Mara – Naivasha vatnið
Eftir morgunverð tékkum við út af herberginu og keyrum til Naivasha. Frjáls tími restina af deginum.
Við gistum nóttina og næstu nótt á Naivasha Sopa Resort
(Morgunverður á Mara Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Naivasha Sopa Resort)
Dagur 7: 29. september – Frjáls dagur við Naivasha vatnið.
Frjáls dagur – Hægt að fara í bátsferð og safari göngutúr á Cresent eyjunni fyrir þau sem vilja.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Naivasha Sopa Resort.)
Dagur 8: 30. september -NAIVASHA-AMBOSELI
Við keyrum snemma af stað til Amboseli þjóðgarðsins. Við tékkum okkur inn á Amboseli Serena Lodge þar sem við ætlum að gista næstu tvær næturnar. Við borðum hádegisverð á Amboseli Serene Lodge og förum svo í safaríferð seinnipartinn.
(Morgunverður á Naivasha Sopa Resort, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)
Dagur 9: 1. október AMBOSELI
Eftir morgunverð byrjum við daginn á morgunsafarí við fjallsrætur Kilimanjaro fjallsins þar sem við gætum séð ef heppnin er með okkur, svartmakka ljón og fílahjarðir, gíraffa, hvíta nashyrninga og fleiri villt dýr og fallegan fjalltop Kilimanjaro. Við keyrum svo aftur að hótelinu okkar þar sem við borðum hádegismat. Frjáls tími á hótelinu þar sem tild dæmis er hægt að njóta við sundlaugina og seinnipartinn förum við aftur í safarí ferð og upplifum nánar fallega náttúruna í Amboseli og rekumst ef til vill á flamingo fugla.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)
Dagur 10: 2. október – AMBOSELI-NAIROBI.
Eftir morgunverð tékkum við okkur út af hótelinu og keyrum úr þjóðgarðinum og áfram til Nairobi og tékkum okkur inn á 4 Points by Sheraton þar sem við gistum seinustu 2 næturnar okkar í Kenía.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 11: 3. október – Frjáls dagur í Naíróbí
Í dag er frjáls dagur í Naíróbí. Maasai markaðurinn er haldinn í Yaya center á sunnudögum, rétt hjá hótelinu.
Þau sem vilja geta komið með í valfrjálsa ferð í Karen Blixen safnið.
Dagur 12: 4. október-NAIROBI til Íslands
Í kringum hádegi förum við í ferð um höfuðborgina Nairóbí. Um kvöldið keyrum við upp á flugvöll, flugið okkar er kl. 22:45 og við millilendum í Frankfurt á leiðinni heim aftur til Íslands þar sem við lendum kl. 12:55 næsta dag.
Dagur 13: 5. október – Lendum á Íslandi
Lendum í Keflavík kl. 12:55
*athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Ferðin kostar : 985.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 186.000 kr. aukalega.
Staðfestingargreiðsla er 160.000 kr
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Lufthansa
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Allar safarí ferðir í Maasai Mara og Amboseli
- Ferðumst um á 4×4 landcruiser
- Sérfróðir innfæddir enskumælandi ökuleiðsögumenn
- Morgunverður alla daga
- Fullt fæði í Masai Mara, Naivasha og Amboseli
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
EKKI innifalið:
- Vegabréfsáritun til Kenía (uþb 35 USD)
- Þjórfé
- Drykkir
- Valfrjálsar aukaferðir
- Valkvætt að bæta við fyrir þá sem vilja: Bátsferð um Naivasha vatnið , göngu á Crescent eyjunni og Masai þorps heimsókn
Mikilvægt:
- Mælt er með að bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á heilsuveru.
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Kenía































