Hurghada: Egyptaland – Sól og sæla við Rauðahafið 13.-21. febrúar 2027 með Júlí og Dísu – í beinu flugi

Staðfestingargreiðsla er 50.000 kr á mann

Dásamleg ferð til Rauðahafsins þar sem við slökum á og njótum sólarinnar og góða veðursins í All Inclusive á Jaz Aquamarine Resort (5*)

Fararstjórar, eða öllu heldur skemmtistjórar ferðarinnar, eru leikara- og söngvaraparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, betur þekkt sem Júlí og Dísa, ásamt bróður Þórdísar, Birni Þorfinnssyni. 

Hægt er að skoða nánari ferðalýsingu og verð á mann hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Njótum sólar, strandlífs og hlýju við Rauðahafið í sólarferð Kleopatra Tours til Hurghada, þar sem hlýtt loftslag, gullnar sandstrendur og kristaltært haf taka á móti okkur. Hópurinn gistir á Jaz Aquamarine, glæsilegu fimm stjörnu resort við Rauðahafið í Egyptalandi.

Fararstjórar, eða öllu heldur skemmtistjórar ferðarinnar, eru leikara- og söngvaraparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, betur þekkt sem Júlí og Dísa, ásamt bróður Þórdísar, Birni Þorfinnssyni. 

Júlí, Dísa og Bjössi munu sjá til þess að gleði og söngur verða við völd í ferðinni. Þau munu meðal annars skipuleggja ómissandi singalong-kvöldvöku sem og spurningakeppni við allra hæfi og fleiri skemmtilegar uppákomur. 

Ferðin er farin í beinu flugi frá Íslandi þann 13. febrúar og dvalið verður í 8 nætur, með heimkomu 21. febrúar.

Hurghada

Hurghada er strandabær við Rauðahafið í austurhluta Egyptalands. Borgin var upphaflega lítið fiskimannaþorp sem var stofnað um árið 1905. Íbúarnir lifðu aðallega af fiskveiðum og svæðið var lítt þekkt utan Egyptalands.

Hurghada hefur á rúmri öld þróast úr litlu fiskimannaþorpi í alþjóðlega ferðamannaborg og er í dag ein helsta perla Egyptalands við Rauðahafið.

Mikil breyting varð á níunda áratugnum þegar egypsk stjórnvöld hófu að byggja upp ferðaþjónustu við Rauðahafið. Fallegar strendur, heitt loftslag allt árið og einstakar kóralrif gerðu Hurghada að vinsælum áfangastað fyrir ferðamenn frá Evrópu og öðrum heimshlutum. Fjöldi hótela, smábátahafna og afþreyingarmiðstöðva reis á skömmum tíma. Ferðaþjónusta er nú mikilvægasta atvinnugrein svæðisins og milljónir ferðamanna heimsækja borgina árlega. Borgin er sérstaklega þekkt fyrir köfun, snorkl,  aqua activities og fallegt sjávarlíf Rauðahafsins.

Hurghada er í dag einn vinsælasti sólaráfangastaður Egyptalands og býður upp á fallegar sandstrendur, kristaltært haf, fjölbreytta afþreyingu og notalegt veður yfir vetrarmánuðina. Hægt er er að slaka á við sundlaugina og njóta lífsins í sólinni,  skoða litríkan neðansjávarheim Rauðahafsins eða fara í spennandi skoðunarferðir.

Meðalhitastig í Hurghada í febrúar er 20-25 gráður á daginn og 13-16 gráður á kvöldin.

Það eru nokkrar verslunarmiðstöðvar og göngugata sem hægt er að heimsækja, þar sem hægt er að versla í borginni. Það tekur uþb. korter í leigubíl frá hótelinu.

Egyptaland

Egyptaland er land í norðausturhluta Afríku og er eitt elsta menningarríki heims. Landið er þekkt fyrir forna sögu sína, meðal annars pýramídana, sfinksinn og faraóana sem réðu landinu fyrir þúsundum ára. Í gegnum Egyptaland rennur áin Níl, sem er ein lengsta á heims og hefur verið lífsnauðsynleg fyrir íbúa landsins frá fornu fari.

Höfuðborg Egyptalands er Kaíró og er meira en 20 milljóna borg.  Í dag er Egyptaland vinsæll ferðamannastaður þar sem gestir geta skoðað sögulegar minjar, notið strandanna við Rauðahafið og kynnst ríkri menningu landsins.

Ferðadagur: 13. febrúar: Ísland – Hurghada

Við fljúgum frá Íslandi 11:00 í beinu flugi til Hurghada með Smartwings. Áætluð lending í Hurghada kl. 20:15. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar.

Jaz Aquamarine (5*)

Jaz Aquamarine Resort - Herbergi
previous arrow
next arrow

JAZ Aquamarine er glæsilegt fimm stjörnu resort við Rauðahafið í Egyptalandi. Hótelið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna og para sem vilja njóta sólar, strandar og fjölbreyttrar afþreyingar í afslappandi umhverfi. Þar eru fjöldi sundlauga fyrir allan aldur,  vatnsrennibrautasvæði og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið. Á hótelinu er matur og drykkir innifalin. Á hótelinu eru glæsilegir hlaðborðsveitingastaðir og á hverju kvöldi eru mismunandi grillréttir í boði ásamt alþjóðlegum réttum Einnig er strandarbar og sundlaugarbar þar sem hægt er að panta sér létta rétti yfir daginn af matseðli. Gegn lágu aukagjaldi er einnig hægt að bóka borð á a la carte veitingastöðum. Herbergin eru rúmgóð og þægileg.

Fullorðinn= 12 ára og eldri
Börn til 11,99 ára

Greiðslur á ferðinni skiptast í 4 hluta:

Staðfestingargreiðsla: 50.000 kr á mann greiðist við bókun

Önnur greiðsla er 80.000 kr á mann og greiðist 4 vikum eftir bókun

Þriðja greiðsla er 25% og greiðist 1. október 2026

Lokagreiðsla greiðist 2. janúar 2027.

Valfrjálsar aukaferðir (ekki innifaldar)

Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið og til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt. Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum.

Valfrjáls Aukaferð 1. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið

Nánari upplýsingar koma bráðlega

Valfrjáls Aukaferð 2. –  Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)

Nánari upplýsingar koma bráðlega

Heimkoma: 21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands

Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
  • Íslenskir fararstjórar
  • Fullt fæði og drykkir á hótelum
  • Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
  • Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
  • Valfrjálsar aukaferðir
    • Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
    • Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
    • Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
  • Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi.