Barn undir 12 ára: 12.-17. maí 2026: Landsliðsleikir í handbolta í Kaíró – Ísland mætir Egyptalandi 13. og 15. maí

275.000 kr.

Einstök handbolta og sólarferð til Kaíró þar sem við förum á tvo landsleiki og hægt er að skoða píramídana og hið ný opnaða Grand Egyptian Museum og njóta góða veðursins í Kaíró. 

Verð per barn 12 ára og yngri í herbergi með 2 fullorðnum: 275.000 kr

Hægt er að skoða nánari ferðalýsingu hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

 

Einstök handbolta og sólarferð til Kaíró þar sem við förum saman á tvo vináttu landsleiki íslenska landsliðsins. Við gistum á glæsilega 5 stjörnu Giza Palace.

Omar Salama er fararstjóri í þessari ferð og tekur á móti hópnum á hótelinu við komuna til Kaíró.

Omar er fæddur og uppalinn í Egyptalandi en hefur búið á Íslandi í nærri 20 ár, og talar reiprennandi íslensku. Margir  Íslendingar úr skákheiminum þekkja til Omars, þar sem hann hefur verið skákdómari í mörgum stærstu mótum Íslands, sem og fjölmörgum heimsmeistaramótum erlendis. Omar fæddist í Alexandríu og bjó í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á Egyptalandi sem er fjölmennt land þar sem búa fleiri en 100 milljón manna.

Dagur 1: 12. maí  – Ferðadagur til Egyptalands

Flogið frá Íslandi með millilendingu, við komuna til Kaíró erum við keyrð á hótelið okkar, 5 stjörnu Giza Palace. 

Giza Palace 1
previous arrow
next arrow

Dagur 2: 13. maí – Ísland – Egyptaland

Í dag er fyrri landsliðsleikurinn: Ísland-Egyptaland, við erum keyrð á völlinn sem er staðsettur nálægt hótelinu, og styðjum strákana okkar. 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 3: 14. maí – Frjálsdagur – Valfrjáls ferð í píramídana og Sfinxinn og 

Valfrjáls aukaferð: Eftir morgunverð er skipulögð ferð með Omari að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza og Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar. Hádegisverður á milli heimsókna.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 4: 15. maí – Seinni landsliðsleikur íslenska landsliðsins. 

Í dag er seinni landsliðsleikur ferðarinnar. Við erum keyrð á völlinn og styðjum strákana okkar til sigurs.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 5: 16. maí – Frjáls dagur og valfrjáls ferð 

Eftir morgunverð er valfrjáls aukaferð að skoða hið nýja þjóðminjasafn Egyptalands, GEM, sem Egyptar eru mjög stoltir af. Þar er meðal annars hægt að sjá Gullgrímu Tutankhamun og seinni partinn er Gamla Kaíró heimsótt. Hádegisverður á vinsælum Egypskum veitingastað

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 6: 17. maí – Fljúgum aftur heim til Íslands

Eftir morgunverð er flogið aftur heim til Íslands með millilendingu.

(Morgunverður innifalinn)

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Flug með millilendingu frá Keflavík til Kaíró og aftur heim
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23 kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • 2 landsliðsleikir, aðgangsmiðar og ferðir á leikinn og aftur á hótelið með íslenskri fararstjórn
  • Morgunverður alla daga
  • Allar rútuferðir í loftkældum rútum
  • Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
  • Ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
  • Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Aukaferðir, hægt að bóka fyrir brottför:
  • Valfrjáls aukaferð 1: 28.000 kr á mann: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar. Hádegisverður á milli heimsókna innifalinn (Greiðist með millifærslu eftir bókunar ferðar)
  • Valfrjáls aukaferð 2: 26.500 kr á mann: Hið nýja Great Egyptian Museum og borgarvirkið. Hádegisverður á vinsælum egypskum veitingastað milli heimsókna

Ferðin kostar : 345.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi. Einstaklingsherbergi kostar  59.000 kr. aukalega.

Verð per barn 12 ára og yngri í herbergi með 2 fullorðnum: 275.000 kr

Mikilvægt:

  • Senda mynd af vegabréfi strax eftir bókun á kleopatratours@kleopatratours.is
  • Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfaradegi frá Egyptalandi