Ferðalýsing

Omar Salama er fararstjóri í þessari ferð og tekur á móti hópnum á hótelinu við komuna til Kaíró.
Omar er fæddur og uppalinn í Egyptalandi og hefur búið á Íslandi í nærri 20 ár, og talar reiprennandi íslensku, en móðurmálið er arabíska. Margir Íslendingar úr skákheiminum þekkja til Omars, þar sem hann hefur verið skákdómari í mörgum stærstu mótum Íslands, sem og fjölmörgum heimsmeistaramótum erlendis. Omar fæddist í Alexandríu og bjó í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á Egyptalandi sem er fjölmennt land þar sem búa fleiri en 100 milljón manna.
Dagur 1: Þriðjudagur 12. maí – Ferðadagur til Egyptalands
Flogið frá Íslandi með millilendingu, við komuna til Kaíró erum við keyrð á hótelið okkar, hið glæsilega 5 stjörnu Giza Palace Hotel.
Dagur 2: Miðvikudagur 13. maí – Ísland – Egyptaland
Í dag er fyrri landsliðsleikurinn: Ísland-Egyptaland, við erum keyrð á völlinn sem er staðsettur nálægt hótelinu, og styðjum strákana okkar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 3: Fimmtudagur 14. maí – Frjálsdagur – Valfrjáls ferð í píramídana og Sfinxinn og Salah el din – Uppstigningardagur 🙂

Valfrjáls aukaferð: Eftir morgunverð er skipulögð ferð með Omari að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza og Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar. Hádegisverður á milli heimsókna er innifalinn.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: Föstudagur 15. maí – Seinni landsliðsleikur íslenska landsliðsins.
Í dag er seinni landsliðsleikur ferðarinnar. Við keyrum saman á völlinn og styðjum strákana okkar. Áfram Ísland!
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 5: Laugardagur 16. maí – Frjáls dagur og valfrjáls ferð
Eftir morgunverð er valfrjáls aukaferð að skoða hið nýja þjóðminjasafn Egyptalands, GEM, sem er eitt af glæsilegustu og stærstu söfnum heimsins. Þar er meðal annars hægt að sjá Gullgrímu Tutankhamun og seinni partinn er Gamla Kaíró heimsótt. Hádegisverður er innifalinn.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 6: Sunnudagur 17. maí – Fljúgum aftur heim til Íslands
Fljúgum aftur heim til Íslands með millilendingu.
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug með millilendingu frá Keflavík til Kaíró og aftur heim
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23 kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- 2 landsliðsleikir, aðgangsmiðar og ferðir á leikinn og aftur á hótelið með íslenskri fararstjórn
- Morgunverður alla daga
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum
- Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
- Ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
- Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Aukaferðir, hægt að bóka fyrir brottför:
- Valfrjáls aukaferð 1: 28.000 kr á mann: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar. Hádegisverður á milli heimsókna innifalinn (Greiðist með millifærslu eftir bókunar ferðar)
- Valfrjáls aukaferð 2: 26.500 kr á mann: Hið nýja Great Egyptian Museum og borgarvirkið. Hádegisverður á vinsælum egypskum veitingastað milli heimsókna
Ferðin kostar : 345.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi. Bæta sæti fyrir barn í körfu hér
Einstaklingsherbergi kostar 59.000 kr. aukalega. Bóka einstaklingsherbergi hér
Verð fyrir barn 12 ára og yngri í herbergi með 2 fullorðnum: 275.000 kr
Mikilvægt:
- Senda mynd af vegabréfi strax eftir bókun á kleopatratours@kleopatratours.is
- Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfaradegi frá Egyptalandi











