Ferðalýsing
Seagull Beach Resort (4 stjörnu)
Seagull Beach Resort er glæsilegt 4 stjörnu strandhótel í hjarta Hurghada við Rauðahafið. Hótelið býður upp á einkaströnd, sundlaugar, fjölbreytta veitingastaði og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Frábær staðsetning og notalegt umhverfi gera hótelið að góðum kosti fyrir bæði slökun og skemmtilegt frí í sólinni.
Á hótelinu eru sex sundlaugar og vatnsrennibrautir, það eru þrjár vatnsrennibrautir fyrir fullorðna og átta fyrir börn. Í kringum allar sundlaugarnar eru sólbekkir með skyggni, þar sem gestir geta slakað á í þægilegu umhverfi og fengið svalandi drykki á sunlaugarbarnum.
Valfrjálsar aukaferðir (ekki innifaldar)
Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið. Hin ferðin er til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt.
Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada sem hægt er að bóka á staðnum, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum.
Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)
Hægt er að skoða nánari upplýsingar um dagsferðina til Kaíró hér: https://kleopatratours.is/product/dagsferd-kairo-februar-2027/
Farið er af stað snemma morguns og flogið frá Hurghada til Kaíró.
Við heimsækjum píramídana og sfinxinn. Þar næst heimsækjum við hið nýja Grand Egyptian Museum. Gefinn verður frjáls tími á safninu fyrir hádegisverð.
Eftir heimsóknirnar fljúgum við aftur til baka til Hurghada.
Hægt er að bóka dagsferðina til Kaíró hér – ath. að það er takmarkað sætaframboð

Valfrjáls Aukaferð 2. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
Darið er af stað snemma morguns, við keyrum í rútu frá Hurghada til Luxor. Hægt er að skoða nánari upplýsingar um Dagsferðina til Luxor hér: https://kleopatratours.is/product/dagsferd-luxor-18-februar/
Við heimsækjum hinn fræga dal konunganna og El Karnak musterið, sem er stærsta forna musteri í heimi. Seinni partinn keyrum við aftur til Hurghada.
21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands
Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
- Íslenskir fararstjórar
- Fullt fæði og drykkir á hótelum
- Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
- Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
- Valfrjálsar aukaferðir
- Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.
Mikilvægt:
- Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
- Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi.
























