Ferðalýsing
Njóttum sólar, strandlífs og hlýju við Rauðahafið í sólarferð Kleopatra Tours til Hurghada, þar sem hlýtt loftslag, gullnar sandstrendur og kristaltært haf taka á móti okkur.
Ferðin er farin í beinu flugi frá Íslandi þann 13. febrúar og dvalið verður í 8 nætur, með heimkomu 21. febrúar. Gist verður á vel völdum 4 og 5 stjörnu hótelum við strendur Rauðahafsins, þar sem gestir geta notið þæginda, framúrskarandi þjónustu og aðstöðu sem hentar bæði pörum, vinahópum og fjölskyldum. Upplýsingar um mismunandi hótel er að finna hér að neðan.
Tækifæri verður fyrir þau sem vilja, að bæta við heilsdagsferð/um. Önnur ferðin verður til Kaíró að skoða píramídana og nýja egypska safnið og til Luxor þar sem dalur konunganna og el Karnak musterið verður heimsótt. Einnig eru margar valfrjálsar ferðir mögulegar í nágrenni við Hurghada, og einnig er ótalmargt í boði á hótelunum.
Hurghada
Hurghada er strandabær við Rauðahafið í austurhluta Egyptalands. Borgin var upphaflega lítið fiskimannaþorp sem var stofnað um árið 1905. Íbúarnir lifðu aðallega af fiskveiðum og svæðið var lítt þekkt utan Egyptalands.
Hurghada hefur á rúmri öld þróast úr litlu fiskimannaþorpi í alþjóðlega ferðamannaborg og er í dag ein helsta perla Egyptalands við Rauðahafið.
Mikil breyting varð á níunda áratugnum þegar egypsk stjórnvöld hófu að byggja upp ferðaþjónustu við Rauðahafið. Fallegar strendur, heitt loftslag allt árið og einstakar kóralrif gerðu Hurghada að vinsælum áfangastað fyrir ferðamenn frá Evrópu og öðrum heimshlutum. Fjöldi hótela, smábátahafna og afþreyingarmiðstöðva reis á skömmum tíma. Ferðaþjónusta er nú mikilvægasta atvinnugrein svæðisins og milljónir ferðamanna heimsækja borgina árlega. Borgin er sérstaklega þekkt fyrir köfun, snorkl, aqua activities og fallegt sjávarlíf Rauðahafsins.
Hurghada er í dag einn vinsælasti sólaráfangastaður Egyptalands og býður upp á fallegar sandstrendur, kristaltært haf, fjölbreytta afþreyingu og notalegt veður yfir vetrarmánuðina. Hægt er er að slaka á við sundlaugina og njóta lífsins í sólinni, skoða litríkan neðansjávarheim Rauðahafsins eða fara í spennandi skoðunarferðir.
Meðalhitastig í Hurghada í febrúar er 20-25 gráður á daginn og 13-16 gráður á kvöldin.
Það eru nokkrar verslunarmiðstöðvar og göngugata sem hægt er að heimsækja, þar sem hægt er að versla í borginni. Það tekur uþb korter í leigubíl frá hótelinu.
Egyptaland
Egyptaland er land í norðausturhluta Afríku og er eitt elsta menningarríki heims. Landið er þekkt fyrir forna sögu sína, meðal annars pýramídana, sfinksinn og faraóana sem réðu landinu fyrir þúsundum ára. Í gegnum Egyptaland rennur áin Níl, sem er ein lengsta á heims og hefur verið lífsnauðsynleg fyrir íbúa landsins frá fornu fari.
Höfuðborg Egyptalands er Kaíró og er meira en 20 milljóna borg. Í dag er Egyptaland vinsæll ferðamannastaður þar sem gestir geta skoðað sögulegar minjar, notið strandanna við Rauðahafið og kynnst ríkri menningu landsins.
Ferðadagur: 13. febrúar: Ísland – Hurghada
Við fljúgum frá Íslandi 11:00 í beinu flugi til Hurghada með Smartwings. Áætluð lending í Hurghada kl. 20:15. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar.
Jaz Aquamarine Resort Hurghada (5 stjörnu)
JAZ Aquamarine er glæsilegt fimm stjörnu hótel við Rauðahafið í Egyptalandi. Hótelið er sérstaklega vinsælt meðal fjölskyldna og para sem vilja njóta sólar, strandar og fjölbreyttrar afþreyingar í afslappandi umhverfi. Þar eru fjöldi sundlauga fyrir allan aldur, vatnsrennibrautasvæði og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið. Á hótelinu er matur og drykkir innifalin. Hótelið er með glæsilega hlaðborðsveitingastaði með mismunandi grillréttum. Einnig er strandarbar og sundlaugarbar þar sem hægt er að panta sér létta rétti yfir daginn af matseðli. Herbergin eru rúmgóð og þægileg.
Yfirsýn yfir verð á manneskju / per herbergi. Sérstök verð með sér afslætti fyrir Laufásborgarhópinn:

Fullorðinn= 12 ára og eldri
Börn til 11,99 ára
Hamingjuhöllin mun styrkja hvert starfsfólk um 45.000 kr – sem er uppfærslan í Jaz Aquamarine 5 stjörnu.
Staðfestingargreiðsla: 50.000 kr á manneskju er greidd við bókun.
Önnur greiðsla er 40% af ferðinni og greiðist 1. október 2026.
Lokagreiðsla greiðist 3. janúar 2027.
Ef ósk er um annað val fyrir greiðslur endilega talið við mig.
Valfrjáls Aukaferð 1. – Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak Musterið
Nánari upplýsingar koma bráðlega
Valfrjáls Aukaferð 2. – Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza og hið nýja Grand Egyptian Museum (GEM)
Nánari upplýsingar koma bráðlega

Dagur : 21. febrúar – Fljúgum aftur heim til Íslands
Tékkum okkur út af hótelinu, fljúgum heim með Smartwings og lendum á Íslandi kl. 20:45
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Beint flug frá Keflavík til Hurghada og aftur heim (olíustopp á leiðinni heim)
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (20 kg) og handfarangur (8kg)
- Íslenskir fararstjórar
- Fullt fæði og drykkir á hótelum
- Ferðir milli flugvalla og hótela í Hurghada
- Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- Þjórfé
- Vegabréfsáritun á flugvellinum (uþb 30 usd á mann)
- VAlfrjálsar aukaferðir
- Dagsferð til Kaíró: Píramídarnir og Sfinxinn í Giza – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Dagsferð til Luxor: Dalur Konunganna og El Karnak musterin – íslensk fararstjórn: Omar Salama
- Ýmsar aðrar skemmtilegar ferðir sem hægt er að bóka á staðnum, eins og fjórhjólaferð í eyðimörkinni, snorkling og fleira.
Mikilvægt:
- Mælt er með að heyra í heilsugæslunni varðandi hefðbundnar bólusetningar. Það þarf ekki að sýna neinar bólusetningar við komuna til landsins.
- Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfardegi frá Egyptalandi.
















