Ferðalýsing
Menningar og sólarferð til Egyptalands
Einstök 15 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum á elephantin eyjunni á Níl, og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl við Rauðahafið.
Fararstjóri í ferðinni er Stefanía Guðmundsdóttir, hún er velkunnug Egyptalandi og Mið-Austurlöndum. Stefanía er ein af frábæru og reynslumiklu fararstjórunum okkar til Egyptalands, ásamt Soffíu og Omari. Stefanía hefur mikla ástríðu fyrir menningu og sögu Mið-Austurlanda. Hún hefur stundað nám í arabísku í nokkur ár og ferðast til margra landa í Mið-Austurlöndum. Auk Egyptalands hefur hún ferðast um Jórdaníu, Sýrland og dvalist mikið í Marokkó og meðal annars séð um skipulagningu hópaferða þangað. Stefanía leggur auk þess stund á magadans og austurlenska dansa. Hún er sjúkraliði að mennt og hefur unnið á þeim vettfangi til margra ára.
Dagur 1: 9. febrúar – Ferðadagur til Egyptalands
Við fljúgum frá Íslandi kl. 07:30 með Icelandair og millilendum í Berlín. Við fljúgum frá Berlín með Egyptair og lendum í Kaíró kl. 19:55. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á hið glæsilega 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró, við Tahrir torgið og með útsýni á Níl ánna, þar sem við gistum fyrstu 3 næturnar.
Dagur 2: 10. febrúar –Kastalinn í Kaíró og þjóðminjasafn Egyptalands
Í dag byrjum við að kynnast stórborginni Kaíró. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar, og heimsækjum svo hið fræga þjóðminjasafn Egyptalands. Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalin)
Dagur 3: 11. febrúar– Píramídarnir, Sfinxinn og Sakkara
Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Við heimsækjum einnig Sakkara og minjar hinna fornu Memphis.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 4: 12. febrúar – Aswan
Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu og fljúgum niður til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptaland hins forna í Aswan.
Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu Movenpick Resort Aswan Hotel á Elefantín eyjunni og gistum næstu tvær næturnar þar.
Hægt er að njóta glæsilegs kvöldverðarhlaðborðs Mövenpick úti á verönd hótelsins.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: 13. febrúar – Há stíflan, Philae hofið og hin ókláraða Obelísk
Eftir morgunverð byrjum við daginn á að skoða háu Aswan stífluna, Philae hofið og hina ókláruðu óbelísk.
Frjáls tími restina af deginum.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 6: 14. febrúar – Fljótabátur og frjáls dagur – Val að heimsækja Abu Simbel og Nubian þorp
Frjáls dagur. Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.
Eftir morgunverð tékkum við okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum.
Restina af deginum er hægt að skoða Aswan, fara í siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp, eða slaka á í sólinn og njóta útsýnisins.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 7: 15. febrúar- Sigling á Nílarfljótinu
Í dag byrjum við siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.
Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.
Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 16. febrúar- El Karnak og Luxor musterin
Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.
Í dag heimsækum við austurbakka Luxor og heimsækjum El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins.
Við heimækjum svo hið glæsilega Luxor musteri.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 17. febrúar – Konungardalur og Hatshepsut Mustri
Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.
Eftir morgunverð heimækjum við vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar.
Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.
Við tékkum okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel og borðum kvöldverð á hótelinu.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 10: 18. febrúar- Luxor
Í dag eigum við frjálsan dag í Luxor.
Aukaferð er VAL fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 11: 19. febrúar- Rauðahafið
Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.
Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 3 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir.
Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))
Dagur 12 og 13 : 20-21. febrúar – Frjáls tími í Hurgada
Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan.
Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))
Dagur 14: 22. febrúar – Ferðumst til Kaíró
Morgunverður á Jaz Aquamarine resort, tékkum okkur svo út og fljúgum til Kaíró.
Tékkum okkur inn á flugvallarhótel rétt við flugvöllinn í Kaíró og gistum þar.
Frjáls tími.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 15: 23. febrúar – Ferðumst heim til Íslands
Tékkum okkur út snemma og fljúgum kl 05:25 aftur heim með Egyptair, við millilendum á leiðinni til Íslands í London Heathrow. Við fljúgum klukkan 12:15 frá London Heathrow með Icelandair og lendum aftur heima á Íslandi kl 15:30 sama dag.
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Icelandair og Egyptair .
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23 kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Innanlands flug frá Kaíró til Aswan og frá Hurghada til Kaíró
- Morgunverður alla daga
- Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
- Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum
- Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
- Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara
- Kynningarfundur með fararstjóra fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- þjórfé
- Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana og/eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
- Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
- Aðrar auka ferðir eins og sigling í Núbían þorp
Ferðin kostar : 949.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 205.000 kr. aukalega.
Staðfestingargjald er 90.000 kr. Hægt er að greiða staðfestingargjaldið hér.
Mikilvægt:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni og gegnum heilsuveru.
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.
- Lágmarksþáttaka þarf að nást til að ferð sé farin.