Ferðalýsing
Fararstjóri í ferðinni er Flosi Jón Ófeigsson sem margir þekkja, hann heldur uppi einum af vinsælustu Zumba tímum landsins. Flosi er með mikla reynslu af ferðaskipulagningu og ferðalögum og hefur meðal annars verið með skemmtilegar Zumbaferðir til Egyptalands og Kanaríeyja við miklar vinsældir. Flosi er bæði zumba og leiklistarkennari, vanur hópefli og hefur gífurlega gaman af því að búa til skemmtilegar upplifanir með hópunum sínum.

Dagur 1: 19. mars – Ferðadagur til Túnis
Fljúgum með Lufthansa kl. 15:20 og millilendum í Frankfurt fljúgum frá Frankfurt kl. 21:50 og lendum í Túnis kl. 00:10
Við komuna til Túnis bíður okkar rúta sem keyrir okkur á hótelið okkar, Sheraton Tunis Hotel (5*) þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar.
Dagur 2: 20. mars – Karþagó og Sidi Bou Said
Eftir morgunverð skoðum við Karþagó (Carthage) og Sidi Bou Said. Ferðin okkar hefst á fornleifasvæðinu Karþagó, sem eitt sinn var höfuðborg heimsveldis sem sigldi til enda hins þekkta heims og við skoðum minjarnar sem eru ríkar af sögu.

Við höldum áfram ferð okkar til hinnar heillandi Sidi Bou Saidi. Í dag er Sidi Bou Said oft borið saman við túníska Saint-Tropez. Við fáum frítíma til að rölta um þetta litla þorp með andalúsískri byggingarlist og dást að fallegum götum þess og hvítum húsum með bláum gluggatjöldum. Við borðum saman hádegisverð þar sem við njótum ljúffengs túnísks matar áður en við höldum deginum áfram og göngum um götur þessa sögufræga hverfis og sem endurspeglar fegurð miðalda austurlenskrar byggingarlistar.

Næturgisting í Túnis (Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 3: 21. mars – Zumbafitness, frjáls tími og hópefli
10:40: Zumba – upphitun (fyrir byrjendur og aðra sem vilja æfa aðeins fyrir Zumbatíman sem byrjar strax á eftir)
11:00-12:00 Zumba Fitness

19:00 Hittumst í sameiginlegan kvöldverð á hótelinu og hópefli eftir mat
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn (drykkir ekki innifaldir))
Dagur 4: 22. mars – Túnis til Sousse
Eftir morgunverð höldum við til Sousse. Við innritum okkur inn á hótelið okkar Tour Khalif (5*) (eða sambærilegt) þar sem við gistum í All Inclusive við ströndina.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: . 23. mars- Zumba, frjáls tími og sameiginlegur kvöldverður
11:00-12:00 Zumba Fitness

Frjáls tími og njótum alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða
18:30 Hittumst í fordrykk og sameiginlegan kvöldverð
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 6: 24. mars-Sousse og Monastir
Eftir morgunverð höldum við til Monastir, heillandi strandbæjar sem sameinar sögulegt mikilvægi og nútímalegan svip. Við byrjum á að heimsækja Ribat Monastir, eina af elstu og best varðveittu vígjum í Norður-Afríku, sem hefur staðið vörð við ströndina frá 8. öld. Þar má upplifa anda fortíðar og dást að stórkostlegu útsýni yfir hafið.Því næst heimsækjum við hinn glæsilega grafreit Habib Bourguiba, fyrsta forseta Túnis og einnar ástsælustu þjóðartákns landsins. Marmaraskreytingar og gullnu hvelfingarnar endurspegla virðingu þjóðarinnar fyrir manni sem lagði grunn að sjálfstæði Túnis.
Eftir heimsóknina snúum við aftur til Sousse, einni fallegustu strandborg Túnis, þar sem við röltum um Medínu borgarinnar – þröngar götur, handverksmarkaðir og líflegt andrúmsloft sem leiðir gesti aftur til miðalda. Hægt er að skoða souk-markaðinn þar sem hægt er að kaupa fallega minjagripi og smakka staðbundna sérrétti á hefðbundnum veitingastað í hjarta Medínu. (Hádegisverður frjáls, ekki innifalinn)

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn, All inclusive á hótelinu)
Dagur 7: 25. mars – Zumba og frjáls tími
11:00-12:00 Zumba Fitness
Frjáls tími – Góður tími til að njóta á hótelinu, við sundlaugarnar og ströndina og njóta sólarinnar. Einnig er hægt að kíkja í Mall of Sousse sem upp á fjölbreytt úrval búða, kaffihúsa og veitingastað eða kíkja á Port El Kantaoui, glæsilegt smábátahöfnarsvæði rétt sunnan við hótelið okkar, þar sem finna má afslappað andrúmsloft, fallegar gönguleiðir og veitingastaði með sjávarrétti og útsýni yfir höfnina.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn – All Inclusive)
Dagur 8: 26. mars – Zumba og frjáls tími
11:00-12:00 Zumba Fitness

Frjáls tími
19:00 Fordrykkur og sameiginlegur kvöldverður á hótelinu
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn – All Inclusive)
Dagur 9: 27. mars -Zumba og frjáls tími
11:00-12:00 Zumba Fitness

Frjáls tími
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn – All Inclusive)
Dagur 10: 28. mars -Zumba og frjáls tími
11:00-12:30 Zumba Fitness – með þema fyrir þau sem vilja 🙂
Kvöldverður saman og skemmtilegt þemakvöld að hætti Flosa 🙂 Nánari upplýsingar um þemakvöldið verður deilt þegar nær dregur.
Fordrykkur og sameiginlegur kvöldverður á hótelinu
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn – All Inclusive)
Dagur 11: 29. mars – Ferðumst heim til Íslands
Við tékkum okkur út, borðum morgunverð og rútan keyrir okkur á flugvöllin í Túnis.
Við fljúgum frá Túnis kl. 11:50 með Lufthansa og millilendum á leiðinni í Frankfurt. Við lendum aftur heima á Íslandi kl 23:25.
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í verði:
- Flug frá Íslandi til Túnis fram og til baka með Lufthansa
- Innritaður farangur (23kg) og handfarangur (8kg)
- Allar rúturferðir í loftkældum rútum
- Íslensk fararstjórn
- Enskumælandi leiðsögumaður fyrir hópferðir
- 10 gistinætur samkvæmt ferðalýsingu
- Morgunverður alla daga
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
- Ferðir til og frá hótelum og flugvelli (ekki á Íslandi)
Ekki innifalið:
- Þjórfé
- Valfrjálsar aukaferðir
Mikilvægt:
- Mælt er með því að fá upplýsingar um bólusetningar hjá heilsugæslunni
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Túnis









