Menningar og sólarferð til Egyptalands 20. desember 2026 – 2. janúar 2027 (Háteigsskólafjölskylduferð)

Í þessari ferð heimækjum við Sfinxinn og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna og grafhýsin, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.

Tilboðið gildir til og með 29. mars 2026

Ferð og gisting – Valmöguleiki 1

  • 3 nætur Cairo Intercontinental Semiramis Hotel 
  • 2 nætur Aswan Sonesta Nuba Hotel
  • 3 nætur Movenpick Nile Cruise MS Hamees
  • 2 nætur Luxor Sonesta St. George Hotel
  • 3 nætur Hurghada Jaz Aquamarine Resort 

Verð á mann í tveggja manna herbergi: 632.000 kr

Verð á mann í þriggja manna herbergi: 620.000 kr

Verð á mann í einstaklingsherbergi: 890.000 kr

Ferð og gisting – Valmöguleiki 2

  • 03 nætur Cairo Sheraton Cairo Hotel 
  • 02 nætur Aswan Tolip Hotel 
  • 03 nætur MS Sonesta Moon Goddess
  • 02 nætur Luxor Sonesta St. George Hotel 
  • 03 nætur Hurghada Jaz Aquamarine Resort 

Verð á mann í tveggja manna herbergi: 545.000 kr

Verð á mann í þriggja manna herbergi: 535.000 kr

Verð á mann í einstaklingsherbergi: 751.000 kr

 

Áfangastaður

Ferðalýsing

Menningar og sólarferð til Egyptalands

Einstök 14 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum í 2 nætur  og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl við Rauðahafið. 

Dagur 1: 20. desember  – Ferðadagur til Egyptalands

Alþjóðlegt flug á eigin vegum. Tekið á móti ykkur í Kaíró fyrir vegabréfseftirlitið, með vegabréfsáritun tilbúna. Keyrum á hótelið í hjarta Kaíró, við Tahrir torgið og með útsýni á Níl ánna, þar sem þið gistiðr fyrstu 3 næturnar.

Dagur 2: 21. desember –Píramídarnir og GEM – nýja þjóðminjasafn Egyptalands

Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Eftir hádegisverð munum við heimsækja hið nýja þjóðminjasafn Egyptalands, GEM, sem Egyptar eru mjög stoltir af. Þar er meðal annars hægt að sjá Gullgrímu Tutankhamun. (frá 4. nóvember 2025)

Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 3: 22. desember – Kastalinn í Kaíró og gamla Kaíró

Í dag fáum við að kynnast stórborginni Kaíró betur. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar og gömlu Kaíró.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 4: 23. desember – Khan el Khalili og suður til Aswan

Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu, við byrjum á að heimsækja hinn 600 ára markað Khan el Khalili og höldum svo út á flugvöll þaðan sem viðfljúgum til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptaland hins forna í Aswan.  

Við tékkum okkur inn á hótelið okkar í Aswan (sjá tilboð 1 og tilboð 2) og gistum næstu tvær næturnar þar. 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 5: . 24- desember – Philae hofið og hin ókláraða Obelísk

Eftir morgunverð byrjum við daginn á að skoða háu Aswan stífluna,  Philae hofið og hin ókláraða obelisk.

Philae Hofið

Frjáls tími restina af deginum.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 6: 25. desember – Fljótabátur og frjáls dagur – Val að heimsækja Abu Simbel og Nubian þorp

Frjáls dagur. Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.

Abu Simbel musteri Ramses II og musteri Nefertari norðan megin við Abu Simbel

 

Eftir morgunverð tékkum við okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum. 

Restina af deginum er hægt að skoða Aswan,  fara í siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp, eða slaka á í sólinn og njóta útsýnisins.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 7:  26. desember- Sigling á Nílarfljótinu

Í dag byrjum við siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.

Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið. 

Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.

Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 8: 27. desember – El Karnak og Luxor musterin

Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.

Dagana sem við erum í Luxor er valfrjáls aukaferð að fara í loftbelg yfir Luxor, fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás. 

Í dag heimsækum við austurbakka Luxor. Við byrjum á heimsókn í El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins.

Við heimækjum sama dag einnig hið glæsilega Luxor musteri.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 9: 28. desember –  Konungardalur og Hatshepsut Musteri

Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.

Eftir morgunverð heimækjum við vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar.

Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.

Við tékkum okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel, frjáls tími restina af deginum.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 10: 29. desember – Frjáls dagur í Luxor 

Frjáls dagur í Luxor

Morgunverður innifalinn)

Dagur 11: 30. desember – Luxor, Rauðahafið og Hurghada

Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.

Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 3 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir. 

Það eru 18 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.

Jaz Aquamarine Resort - Herbergi
previous arrow
next arrow

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive í Hurghada))

Dagur 12 og 13: 31. desember – 1. janúar – Frjáls tími í Hurghada

Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan. 

Í Hurhgada eru ýmsar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Hægt er að fara á fjórhól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 14:  2. janúar – Fljúgum aftur heim til Íslands

Morgunverður á Jaz Aquamarine resort, tékkum okkur út af hótelinu og rúta keyrir okkur á flugvöllinn.

Flug á eigin vegum aftur heim til Íslands

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
  • Innanlands flug frá Kaíró til Aswan
  • Morgunverður alla daga
  • Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
  • Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
  • Öll keyrsla á milli staða og í heimsóknir með einkabílstjóra
  • Vatnsflöskur innifaldar í skoðunarferðum
  • Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun (ekki valfrjálsar ferðir)
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (í Egyptalandi)
  • Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara

EKKI innifalið:

  • Alþjóðlegt flug
  • Þjórfé
  • Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana og/eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.  
  • Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
  • Aðrar auka ferðir eins og sigling í Núbían þorp

Mikilvægt:

  • Við mælum með að tala við heilsugæslu í sambandi við bólusetningar. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni og gegnum heilsuveru.
  • Vegabréf þurfa að gilda í meira en 6 mánuði frá brottfarardegi frá Egyptalandi