Yoga og Zumba Heilsuferð með Carynu til Tenerife 19.-26. febrúar 2026

299.000 kr.

Dásamleg Zumba og Yoga heilsuferð með Carynu til Tenerife.

Sól, dans, yoga og ýmislegt fleira skemmtilegt með fararstjóra í góðum félagskap á sólskinseyjunni Tenerife.

Gistum á Hotel Best Jacaranda (4*) sem er staðsett á Costa Adeje, aðeins 450 metra frá Fañabé-ströndinni.

Ferðin kostar 299.900 kr á mann í tveggja manna herbergi

Einstaklingsherbergi kostar 82.200 kr. aukalega.

Staðfestingargreiðsla er 65.000 kr. Hægt er að bóka sig í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér.

 

Hægt er að lesa ferðalýsinguna hér að neðan:

 

Áfangastaður

Ferðalýsing

Fararstjóri í ferðinni er Caryna Bolívar, Caryna kemur frá Venesúela og hún hefur búið á Íslandi í 22 ár og talar reiprennandi Íslensku. Hún er Zumba og Yoga kennari, en er einnig einkaþjálfari með sérhæfða menntun í þjálfun fyrir eldra fólk. Hún hefur kennt Dans, Zumba, Yoga og líkamsræktar tímar í Reebok Fitness (Katla Fitness) síðan 2015. Hún kennir einnig líkamlegar æfingar á nokkrum hjúkrunarheimilum í kringum Reykjavík.

Caryna er með Meistaragráðu í tungumálakennslu og kennir spænsku í Tækniskólanum.

Alltaf brosandi og í góðu skapi hjálpar hún fólki að verða ánægt með sjálft sig með góðri þjálfun fyrir líkama og sál.

Ferðaáætlun: 

DAGUR 1: Fimmtudagur 19. febrúar – Ferðadagur til Tenerife

Flogið með Icelandair til Tenerife kl. 10:00, áætluð lending á Tenerife kl. 15:25. Fararstjóri ferðast með hópnum frá Keflavík. Við komuna til Tenerife erum við keyrð á hótelið okkkar Hotel Best Jacaranca (4*) á Costa Adeje, aðeins 450 metrum frá  Fañabé-ströndinni.

Sameiginlegur kvöldverður um kvöldið á hótelinu og eftir kvöldverðinn verður fararstjóri með kynningarfund og fer yfir dagskrá vikunnar í hótelgarðinum og fyrir þau sem vilja verður í boði stuttur spænsku tími þar sem við lærum ganglegan orðaforða og orðasambönd á spænsku fyrir ferðalög. 

(Kvöldverður innifalinn, hlaðborð hótelsins)

DAGUR 2: Föstudagur, 20. febrúar – Yoga, Zumba og gönguferð 

08:00 – 09:00 Við byrjum daginn á Yoga fyrir alla sem vilja

11:00 – 13:00 Gönguferð og svæðið skoðað, Caryna fararstjórinn okkar fer með hópinn í góða göngu.

17:00 – 18:00 Zumba 

18:00 – 20:00 Kvöldverður

(Morgunverður innifalinn)

DAGUR 3: Laugardagur, 21. febrúar  – Yoga, zumba og Fañabé ströndin

08:00 – 09:00 Yoga

Eftir morgunverð er ferð með fararstjóra á ströndina – Playa Fañabé fyrir þau sem vilja.

17:00 – 18:00 Zumba 

(Morgunverður innifalinn)

DAGUR 4, Sunnudagur, 22. febrúar – Yoga, Zumba og Playa de Las Américas 

08:00 – 09:00 Yoga

Fararstjóri fer með þau sem vilja á Playa de Las Américas svæðið.

Fjarlægð frá hóteli: 3,4 km (Stræto: 12 min / leigubíll: 7 mín / gangandi: 37 min)

17:00 – 18:00 Zumba 

Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu

Þau sem vilja geta komið með í valfrjálsa aukaferð eftir kvöldverðinn í Stargazing stjörnuskoðun

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

DAGUR 5:  Mánudagur, 23. febrúar – Yoga, Zumba og Karíókí

08:00 – 09:00 Yoga

Eftir morgunverð fer fararstjórinn í bæinn Los Cristianos fyrir þau sem vilja.  ‘Los Cristianos’ er Spænskur bær, menning, verslanir, strönd, kaffihús og veitingastaðir. (Fjarlægð frá hóteli: 5,2 km (Stræto: 18 min / leigubíll: 9 mín / gangandi: 1 kl)

17:00 – 18:00 Zumba 

18:00 – 20:00 Kvöldverður

Valfrjálst: Partý kvöld- Karíókí og Dans í bænum

(Morgunverður innifalinn)

DAGUR 6, þriðjudagur, 24. febrúar  – Frjáls dagur

Frjáls dagur, það er gaman að skoða eyjuna fögru. Upplýsingar um eyjuna veitir fararstjóri.

Fararstjóri mælir með: 

  • Teide National Park 
  • Puerto de La Cruz bær – Loro Parque 
  • Siam Park Water Park
  • Masca Valley

(Morgunverður innifalinn)

DAGUR 7: Miðvikudagur, 25. febrúar  – Yoga, Zumba og valfrjáls vínsmökkunarferð

08:00 – 09:00 Yoga

Eftir morgunverð er valfrjáls vínsmökkunarferð

17:00 – 18:00 Zumba 

18:00 – 20:00 Sameiginlegur kvöldverður

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

DAGUR 8, fimmtudagur, 26. febrúar  2026

Brottför frá hóteli og keyrum út á flugvöll, nánari tímasetning síðar hjá fararstjóra

Við fljúgum heim til Íslands með Icelandair kl. 16:25 frá Tenerife Reina Sofía og lendum aftur á Íslandi kl. 21:55 (FI581)

 

*Þátttaka í dagskrá er frjáls og ekki er skyldumæting.

*Athugið að dagskráin getur breyst án fyrirvara.

Ferðin kostar 299.900 kr á mann í tveggja manna herbergi

Einstaklingsherbergi kostar 82.200 kr. aukalega.

Staðfestingargreiðsla er 65.000 kr. Hægt er að bóka sig í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér.

Lágmarksþátttaka í verðina er 10 manns og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella ferð niður náist ekki næg þátttaka

Gott er að pakka í ferðatöskuna eftirfarandi:

  • Handklæði – Yoga handklæði ef þið eigið
  • Yoga dýnu ef þið viljið, það sem hentar hverjum og einum
  • Íþróttafatnaður – nokkrir íþróttatoppar, stuttbuxur og bolur

Kynningarfundur er haldinn með fararstjóra fyrir ferðina þar sem farið verður betur yfir dagskránna og það sem gott er að taka með sér.

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23 kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Zumba með Carynu
  • Yoga með Carynu
  • Gisting í 7 nætur á Hotel Best Jacaranda
  • Morgunverður alla daga
  • Kvöldverðarhlaðborð hótelsins (Drykkir ekki innifaldir)
  • Rútuferð milli flugvallar og hótels
  • Skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Kynningarfundur með fararstjóra fyrir ferðina

EKKI innifalið:

  • Valfrjálsar aukaferðir eins og stjörnuskoðun og vínsmökkun
  • Þjórfé