Suður-Ameríka: Menningar og Sólarferð til Argentínu, Brasilíu og Úrúgvæ 31. mars- 16. apríl 2026- Buenos Aires, Iguazu fossarnir og Ríó de Janeiro

1.049.000 kr.

Argentína og Brasilía eru stórbrotin lönd og í þessari ferð fáum við að upplifa margar af einstökustu perlum landanna, auk heimsóknar í einn af elstu bæjum Úrúgvæ.

Ferðin kostar : 1.049.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Hægt er að bóka sig með í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér

Skoðið nánari lýsingu á ferðinni hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Í þessari Suður-Ameríku ferð fáum við að upplifa nokkra af einstökustu stöðum heims. Það er stórkostleg upplifun að ferðast um Argentínu, Brasilíu og Úrúgvæ. Gífurlega fjölbreytt lönd með stórfenglegri náttúru og ríkri sögu. Í Argentínu munum við byrja ferðina í stórborginni Buenos Aires sem er full af sögu, mikilfenglegum byggingum, breiðustu breiðgötu í heimi þar sem andrúmsloft tangó og sögunnar svífur í loftinu. Þetta er heimsókn full af upplifunum, meðal annars La Boca, Casa Rosada, sigling á breiðasta fljóti heims og tangósýning. Við siglum einnig yfir til nágrannalandsins Úrúgvæ þar sem við heimsækjum portúgalska nýlendubæinn Colonia del Sacramento, einn af elstu bæjum landsins.. Þar næst höldum við til hinna stórbrotnu Iguazu fossa, sem eru meðal fallegustu og mikilfenglegustu fossum heimsins. Síðast en ekki síst endum við ferðina í Río de Janeiro í Brasilíu þar sem við förum upp að hinni þekktu Kristsstyttu, förum með kláfi upp á Sykurtoppinn auk góðs tíma til að njóta þekktra stranda eins og Copacabana. Það má með sanni segja að þessi ferð sé ógleymanleg og full af upplifunum með tíma til hvíldar inn á milli.

 

Ingibjörg Björnsdóttir er fararstjóri í ferðinni. Hún féll fyrir Argentínu og Suður-Ameríku árið 2008 þegar hún fór í spænsku nám í Buenos Aires og skiptinám til Úrúgvæ. Hún er vanur fararstjóri og hefur meðal annars reynslu af fararstjórn á Spáni, í Kenía, Egyptalandi, og Grikklandi. Hún hefur ferðast og verið búsett víða og meðal annars skipulagt ferðir til Afríku, Evrópu og Suður-Ameríku. Hún er með BA-próf í viðskiptafræði, tungumálum og menningu frá Copenhagen Business School 2009 og meistaragráðu í þjónustustjórnun með áherslu á ferðamálafræði einnig frá Copenhagen Business School 2012. Enn fremur hefur Ingibjörg lært markþjálfun frá Flow Coaching Institute. Hún bjó erlendis frá 2003 en flutti svo aftur heim til Íslands árið 2017.

 

Dagur 1: 31. mars- Ferðadagur: Keflavík til Frankfurt og Frankfurt til Buenos Aires

Við fljúgum með Lufthansa frá Keflavík til Frankfurt kl. 14:20 og lendum kl. 19:50, og fljúgum svo til Buenos Aires kl. 21:40 í næturflugi.

Dagur 2: 1. apríl – Komum til Buenos Aires

Við lendum í Buenos Aires kl. 06:20 þar sem rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar, Novotel Buenos Aires  (4*) þar sem við innritum okkur og gistum næstu fimm næturnar. Hótelið er staðsett miðsvæðis í Buenos Aires og í göngufæri frá mörgum af helstu kennileitum borgarinnar, eins og Teatro Colón leikhúsinu, Café Tortoni og Palacio Barolo auk göngugötunnar Calle Florida.  Frjáls tími er fram að kvöldmat þar sem hægt er að hvíla sig eða byrja að kynnast borginni. Sameiginlegur kvöldverður á Novotel Buenos Aires.

 

Dagur 3: 2. apríl – Skoðunarferð um Buenos Aires

Í dag munum við að kynnast stórborginni Buenos Aires betur og þá sérstaklega Plaza de Mayo torginu, La Boca hverfinu og la Recoleta. La Boca hverfið er litríkt hverfi þar sem margir af þekktustu fótboltamönnum Argentínu hafa spilað, meðal annars Maradona. Plaza de Mayo torgið er aðaltorg Buenos Aires og þekkt fyrir að vera heimili samstöðufunda í landinu. Á torginu er Casa Rosada staðsett eða bleika húsið þar sem skrifstofa forsetans og ríkistjórnin er staðsett. Einnig heimækjum við Recoleta kirkjugarðinn þar sem grafhýsi Evitu Peron er staðsett.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 4: 3. apríl Tigre og fljótið Río de la Plata og Tangó sýning í San Telmo

Við byrju daginn á  fljótasiglingu á Río de la Plata sem þýðist sem silfurfljótið sem er breiðasta á í heimi. Eftir klukkustundarsiglingu komum við að óshólmum Parana, þar siglum við í gegnum mjóa farvegi og framhjá eyjum sem er vinsæll helgaráfangastaður fyrir Porteños (íbúa Buenos Aires) og heimili þúsunda “isleños” (eyjabúa).

Í hádeginu stoppum við í Tigre, mikilvægri borg í úthverfi Buenos Aires, þar sem við fáum okkur drykk og týpiskt argentínskt snarl, þar á meðal „empanadas“ í fallegu umhverfi.  Í ferðinni munum við einnig heimsækja the Fruit’s Market, sem er markaður þar sem heimamenn versla og hægt er að finna skemmtilega minjagripi.

Um kvöldið förum við í sameiginlegan þriggja rétta kvöldverð og á tangó sýningu í hjarta San Telmo, elsta hverfi Buenos Aires. Á sýningunni eru yfir 30 listamenn á sviði með lifandi tónlist. Það er eins og að ferðast aftur í tímann að koma inn í fallega bygginguna og upplifabæði bæði tangó og þjóðdans.

(Morgunverður, léttur hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 4. apríl- Dagsferð til Colonia del Sacramento í Úrúgvæ

Eftir morgunverð skreppum við til Úrúgvæ sem er staðsett mitt á milli Argentínu og Brasilíu. Þau sem koma frá Úrúgvæ segja að þau komi frá mjög fámennu landi en þar búa 3 milljónir sem eru ekki margir þegar miðað er við nágrannalöndin. Við förum með ferjunni yfir Río de la Plata fljótið og það er sem við stígum aftur til fortíðar þegar við fáum að kynnast Colonia del Sacramento sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Við byrjum á að ganga um bæinn í tvær klukkustundir með leiðsögumanni þar sem við sjáum fallegar portúgalskar byggingar frá nýlendutímanum, blómafyllt torg og krókótta steinvölustíga. Við fáum svo frítíma í þessum fallega bæ þar sem hægt er að skoða handverksbúðir.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 6:  5. apríl – Frjáls dagur í Buenos Aires – Valfrjáls heimsókn á argentínskan búgarð

Valfrjáls aukaferð: Dagsferð á argentínskan búgarð þar sem við kynnumst hinum argentínska „Gaucho“ (kúreka), borðum empanadas og fáum okkur hið fræga argentínska asado (grill) í hádegismat.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 7: 6. apríl – Frjáls dagur í Buenos Aires

Í dag fáum við frjálsan tíma seinasta daginn okkar til þess að njóta alls þess sem  Buenos Aires hefur upp á að bjóða áður en við höldum á vit annarra ævintýra.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 8: 7. apríl – Iguazu

Eftr hádegisverð fljúgum við til Iguazu, flugtíminn er tæplega 2 klukkustundir. Við innritum okkur inn á glæsilega fimm stjörnu hótelið Mercure Igazú Hotel Irú, þar sem við gistum næstu þrjár næturnar.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 9: 8. apríl – Iguazu fossarnir Argentínu megin

Hvað eru fallegustu fossar sem þú hefur séð? Flestir sem hafa séð Iguazu fossana segja þá vera þá fallegustu. Við hlökkum til að heyra hvað hópurinn okkar segir eftir daginn í dag. Við heimsækjum argentísku hlið fossanna, sem eru staðsettir í regnskóginum. Við göngum í fallegum gróðri þar sem eru fjölbreyttir fuglar og stór fiðrildi flögrandi um og upplifum þessa stórfenglegu fossa.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 10: 9. apríl – Iguazu fossarnir Brasilíu megin

Eftir morgunverði höldum við til Brasilíu og fáum að skoða Iguazu fossana Brasilíu megin. Eftir að við skoðum fossana borðum við saman hádegisverð og ef tíminn leyfir gefst þeim sem vilja tækifæri til að fara í þyrluflug yfir fossana. Við höldum svo aftur til Argentínu þar sem við gistum nóttina.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 11: 10. apríl – Rio de Janeiro

Eftir morgunverð höldum við upp á flugvöll og fljúgum því næst til hinnar fallegu Ríó de Janeiro. Flugið tekur tæplega 2 klukkustundir.

Við innritum okkur inn á hótelið okkar, sem er staðsett í hjarta Copacapana strandarinnar á Avenida Atlantida þar sem við gistum næstu 5 næturnar

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 12: 11. apríl – Corcovado, Kristsstyttan og Santa Teresa

Í dag byrjum við að kynnast Ríó de Janeiro betur. Við förum í lest sem fer með okkur upp fallegu fjallshlíðina upp að Kristsstyttunni frægu sem gnæfir yfir Ríó. Hún  var valin ein af sjö nýju undrum veraldar og er í rúmlega 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Við höfum einnig tíma til þess að dást að útsýninu yfir Ríó de Janeiro frá einum af flottustu útsýnisstöðunum. Við skoðum okkur svo meðal annars um í Santa Teresa hverfinu sem er með sjarmerandi litlum götum, galleríum og menningarhúsum með útsýni yfir Guanabara flóann og sjáum hinar frægu Selaron tröppur í Lapa hverfi Ríó. Eftir þennan dag munum við finna að við höfum kynnst bæði sögu og menningu Ríó de Janeiro betur.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 13: 12. apríl – Ríó de Janeiro – Sugar Loaf fjallið

Eftir morgunverð höldum við upp á Sykurtoppinn sem er eitt helsta kennileiti Ríó. Hinn frægi Sykurhleifstoppur rís frá litlum skaga í byrjun Guanabara skagans. Við munum fara upp með kláfi þar sem við fáum 360 gráðu útsýni yfir borgina, Copacapana og Botafogo  strendurnar, Corcovado og miðbæ Ríó. Eftir ferðina borðum við hádegisverð saman á Brasilísku grillhúsi.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 14: 13. apríl –  Frjáls dagur í Ríó de Janeiro

Í dag er frjáls dagur til að njóta í Ríó de Janeiro  og fallegu strandanna.

Valfrjáls aukaferð til Petropolis fyrir þau sem vilja.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 15: 14. apríl – Frjáls dagur í Ríó de Janeiro 

Í dag er frjáls dagur til að njóta í Ríó de Janeiro  og fallegu strandanna.

Valfrjáls aukaferð: Heimsókn í Grasagarð Rio de Janeiro. Grasagarðurinn var búinn til 1817 af portúgalska konungnum John VI þar sem er að finna gífurlegt magn af sjaldgæfum og framandi plöntum úr öllum heiminum.

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 16: 15. apríl – Fljúgum aftur heim til Íslands

Í dag er heimferðardagur. Við borðum morgunverð og um hádegi skráum við okkur út af hótelinu og höldum út á flugvöll. Við fljúgum með Lufthansa til Frankfurt kl. 16:15, flugið tekur 11 tíma og 15 mínútur, við millilendum í Frankfurt og fljúgum til Íslands klukkan 11:20 og lendum  í Keflavík kl. 13:05 á íslenskum tíma daginn eftir.

Dagur 17: 16. apríl – Lendum á Íslandi

Við lendum í Keflavík kl. 13:05 á íslenskum tíma.

*athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Ferðin kostar : 1.049.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Hægt er að bóka sig með í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér

Einstaklingsherbergi kostar 225.000 kr. aukalega.

Staðfestingargreiðsla er 120.000 kr

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með Lufthansa
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23kg) og handfarangur
  • Innanlandsflug frá Buenos Aires til Iguazu og frá Iguazu til Ríó de Janeiro
  • Íslensk fararstjórn
  • Sérfróðir innfæddir enskumælandi leiðsögumenn
  • Allar rútuferðir 
  • Morgunverður alla daga
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Drykkir
  • Aukaferðir

Mikilvægt:

  • Mælt er með að gestir láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni.
  • Vegabréf þurfa að gilda í minnst sex mánuði frá komudegi til Brasilíu.