Ferðalýsing
Í safaríferðinni til Kenía förum við í safarí ferðir með innfæddu leiðsögufólki sem deilir með okkur þekkingu sinni um dýrin og umhverfið þeirra. Við byrjum ferðina í Naíróbí þar sem við förum í safarí í höfuðborginni, þar næst höldum við til hins fræga Maasai Mara þar sem við vonumst til að sjá öll „big five“. Þar næst höldum við að Navaisha vatninu þar sem við siglum til Crescent eyjunnar þar sem við göngum um með innfæddum leiðsögumanni. Við endum svo ferðina á paradísareyjunni Zanzibar í 5 nætur.
Dagur 1: Keflavík til London
Flogið með British Airways frá Keflavík til London kl. 18:45 og lendum kl. 21:45. Gistum eina nótt á flugvallahóteli, sem er staðsett á London Heathrow flugvellinum.
Dagur 2: Ferðadagur: London til Naíróbí
Flogið frá London kl. 9:45 og lendið í Naíróbí kl. 21:35 á staðartíma. (Flugið er um 8 klst og 35 mínútur)) Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið Four points by Sheraton þar sem við gistum fyrstu 2 næturnar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 3: Naíróbí
Frjáls tími um morguninn til að hvílast eftir ferðalagið og seinni partinn byrjum við að kynnast dýralífinu í Kenía og förum í fyrstu safaríferðina okkar, þar sem við heisækkum þjóðgarðinn í Naíróbí. Þjóðgarðurinn spannar 171 km2, er í útjaðri Naíróbí og er ⅙ af höfuðborgarsvæði Naróbí. Það er bæði fjölbreyttur gróður og dýralíf í þjóðgarðinum og búast má við að sjá sebrahesta og margar tegundir af antílópum, einnig er mögulegt að sjá bæði svarta og hvíta nashyrninga, flóðhesta, ljón, hlébarða og fleiri dýr.
Þau sem vilja hafa tækifæri til að heimsækja Karen Blixen og Maasai markað um morguninn.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: Naíróbi til Maasai Mara
Eftir morgunverð er tékkað út hótelinu og keyrum snemma af stað til Maasai Mara. (U.þ.b 6 klukkustundir) Innritum okkur á Mara Serena Lodge, borðum hádegisverð og svo verður farið í eftirmiðdags safarí í þjóðgarðinum. Kvöldverður er borðaður á Mara Serena Lodge.
Hið fræga Maasai Mara er hluti af Mara-Serengeti svæðinu sem er 40.000 km². Masai Mara svæðið er 1510km². Masai Mara er þekkt fyrir stórkostlegar hjarðir af villtum dýrum, svartmakka ljón, hlébarða og blettatígur og flest allar dýrategundir sem finnast í Kenía.
Gist er á Mara Serena Lodge næstu 3 næturnar.
(Morgunverður á Four points by Sheraton, hádegisverður og kvöldverður á Mara Serena Lodge)
Dagur 5: Maasai Mara
Valfrjálsferð snemma morgunin er að fara í loftbelg yfir Maasai Mara og kampavínsmorgunverð þegar lent er aftur.
Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morgunin. Í safaríferðum dagsins keyrir leiðsögubílstjórinn meðal annars að Mara ánni til að sjá flóðhesta og krókódíla, og auk þess að sjá gíraffa, sebrahesta, gnýi og buffaló þá gætuð þið séð ljón, blettatígur og hlébarða.
Eftir ferðina keyrum við til baka í lodge-ið í hádegisverð og förum svo seinni partinn í eftirmiðdegis safaríferð.
Dagur 6: Masai Mara
Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morguninn og upplifum fallegt graslendið i Masai Mara og dýralífið.
Borðum hádegisverð á Mara Serena Lodge og seinnipartinn heimsækjum við Maasai þorp.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)
Dagur 7: Masai Mara – Naivasha vatnið
Eftir morgunverð tékkum við út af herberginu og keyrum til Naivasha, fylgjumst með dýralífinu á meðan við keyrum út úr þjóðgarðinum. Keyrt er í gegnum Great Rift dalinn í Kenía, og í gegnum Narok sem er eini Masai bærinn.(Rúmlega 5 klukkustundir) Hádegisverður á Lake Naivasha Sopa Lodge og frjáls tími restin af deginum til að njóta þess að vera á resort-inu. Mögulegt að skipuleggja auka ferð til Hells gate þjóðgarðsins, ef áhugi er.
Gist á Lake Naivasha Sopa Resort næstu 2 næturnar. Resortið er staðsett á 60 hektara landsvæði þar sem gíraffar, waterbuck, vervet og colobus apar eiga heimkynni.
(Morgunverður á Mara Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort)
Dagur 8: Naivasha vatnið
Eftir morgunverð er siglt á Naivasha vatninu til Crescent eyjunnar. Gengið eru um eyjuna með leiðsögumanni þar sem eru sebrahestar, gíraffar og mismunandi tegundir af antílópum og hægt að gefa strútum að borða. Frjáls tími seinni partinn á Lake Naivasha Sopa Resort
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort.)
Dagur 9: Naivasha – Nairóbí – Zanzibar
Eftir morgunverð er keyrt frá hótelinu til flugvallarins í Naíróbí (uþb, 2 tímar og 30 mínútur), þaðan sem flogið er til Zanzibar.
Rúta bíður okkar á hótelinu og keyrir okkur á Karafuu Beach Resort og Spa þar sem við gistum næstu 5 næturnar. Bókað er hálft fæði, en hægt er að breyta í All inclusive fyrir þau sem vilja.
Dagur 10-13: Zanzibar
Frjáls tími í Zanzibar
Dagur 14: Flug heim til Íslands
*athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug frá Keflavík til Naíróbí og Zanzibar til Keflavík
- Íslensk fararstjórn
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Allar rútuferðir og safarí ferðir
- Morgunverður alla daga
- Gisting á hótelum í 12 nætur samkvæmt í ferðalýsingu
- Fullt fæði í Masai Mara og Naivasha
- Hægt að velja um hálft fæði eða All Inclusive í Zanzibar
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Flug frá Naíróbí til Zanzibar
- 1 nótt á flugvallarhóteli í London
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)
EKKI innifalið:
- Vegabréfsáritun til Kenía
- Vegabréfsáritun til Tansaníu
- Þjórfé
- Drykkir
- ETA fyrir England (nýtt frá 2. apríl 2025, kostar 10 pund)
- Aukaferðir (Loftbelgur í Masai Mara og ferðir í Zanzibar)
Mikilvægt:
- Mælt er með að fá bólusetningu gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni.
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Zanzibar