Ferðalýsing
Í safarí ferðinni til Kenía förum við í fjölmargar safarí ferðir með innfæddu leiðsögufólki sem deilir með okkur þekkingu sinni um dýrin og umhverfið þeirra. Við förum á þrjú mismunandi svæði í Kenía, hið fræga Masai Mara, Navaisha vatnið auk Amboseli við rætur Kilimanjaro, og endum svo ferðina í Zanzibar.
Dagur 1: 6. september- Ferðadagur: Keflavík til London
Flogið með British Airways frá Keflavík til London kl. 10:00 og lendum kl. 14:10. Gistum eina nótt á flugvallahóteli, sem er staðsett á London Heathrow flugvellinum. Frjáls tími restina af deginum og þeir sem vilja geta kíkt til London eða hvílt sig á hótelinu. (Áætlað flug, skoðum það saman)
Dagur 2: 7. september- Ferðadagur: London til Naíróbí
Flogið frá London kl. 9:45 og lendið í Naíróbí kl. 20:45 á staðartíma. (Áætlað flug, skoðum það saman) Tekið á móti ykkur á flugvellinum og keyrt á hótelið Four points by Sheraton þar sem þið gistið fyrstu 3 næturnar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 3: 8. september – Naíróbí
Frjáls tími um morguninn til að hvílast eftir ferðalagið og seinni partinn byrjum við að kynnast dýralífinu í Kenía og förum í fyrstu safaríferðina þar sem heimsóttur er þjóðgarðurinn í Naríóbí. Þjóðgarðurinn spannar 171 km2, er í útjaðri Naíróbí og er ⅙ af höfuðborgarsvæði Naróbí. Það er bæði fjölbreyttur gróður og dýralíf í þjóðgarðinum og búast má við að sjá sebrahesta og margar tegundir af antílópum, einnig er mögulegt að sjá bæði svarta og hvíta nashyrninga, flóðhesta, ljón, hlébarða og fleiri dýr.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: 9. september – Naíróbí
Eftir morgunverð sjáum við meira af Naíróbí, Karen Blixen safnið er heimsótt og Giraffe Center sem er griðastaður fyrir Rothschild gíraffa tegundina sem finnst eingöngu í austur Kenía, og svo er farið á markað Masai fólksins, þar sem skemmtilegt er að skoða handverkið þeirra.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 5: 10. september – Naíróbí til Amboseli
Eftir morgunverð er haldið af stað til Amboseli um kl. 7:00. Keyrt eftir Mombasa road í gegnum Mali og inn í Amboseli þjóðgarðinn. (Í kringum 4 klukkustundir). Við komum á Amboseli Serena Lodge fyrir hádegisverð og innritum okkur og borðum hádegisverð. Seinniparts safaríferð um kl. 4 þar sem við höfum möguleika á að sjá afríska fíla, ljón, og útsýni yfir á Kilimanjaro. Kvöldverður á Amboseli Serena Lodge.
Gist er á Amboseli Serena Lodge næstu 3 næturnar.
(Morgunverður á Four points by Sheraton, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)
Dagur 6 :11. september – Amboseli
Við byrjum við daginn á morgun safarí við fjallsrætur Kilimanjaro fjallsins þar sem við gætum séð ef heppnin er með okkur, svartmakka ljón og fíla, gíraffa, hvíta nashyrninga og fleiri villt dýr og fallegan fjalltop Kilimanjaro. Við keyrum svo aftur að hótelinu okkar þar sem við borðum hádegismat og tími er fyrir hvíld á lodge-inu. Seinni partinn er haldið af stað í seinni safaríferð dagsins.
Amboseli þjóðgarðurinn er þekktur fyrir friðsæla fegurð, afríska fílinn og fallegt útsýnið á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, hinumegin við landamærin, í Tansaníu. . Þjóðgarðurinn er einn sá elsti í Austur Afríku og friðaðasvæðið er 392 km2. Búast má við að sjá fílahjarðir, antílópur, sebrahesta, gnýi, gíraffa, hýenur og flamingófugla, og einnig gætu sést ljón, hlébarði eða blettatígur.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)
Dagur 7 :12. september – Amboseli
Eftir morgunverð er safaríferð og heimsækjum við einnig Masai þorp þar sem hægt er að kynnast menningu Maasai fólksins.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)
Dagur 8: 13. september – Amboseli til Maasai Mara
Eftir morgunverð er tékkað út af lodge-inu og þið verðið keyrð á flugbrautina. Þaðan verður flogið frá Amboseli kl. 09:00 til Maasai Mara, í gegnum Naíróbí. Komið verður til Maasai Mara um 11 og frá flugbrautinni verðið þið keyrð til Mara Serena Lodge fyrir innritun og hádegisverð og svo verður farið í eftirmiðdags safarí í þjóðgarðinum. Kvöldverður er borðaður á Mara Serena Lodge.
Gist er á Mara Serena Lodge næstu 3 næturnar.
(Morgunverður á Amboseli Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Mara Serena Lodge)
Dagur 9: 14. september – Maasai Mara
Valfrjálsferð snemma morgunin er að fara í loftbelg yfir Maasai Mara og kampavínsmorgunverður þegar lent er aftur. (Loftbelgsferðin ekki innifalin í ferðinni, pöntuð aukalega og endurgreitt ef hætt er við vegna veðurskilyrða)
Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morguninn. Í safaríferðum dagsins keyrir leiðsögubílstjórinn meðal annars að Mara ánni til að sjá flóðhesta og krókódíla, og auk þess að sjá gíraffa, sebrahesta, gnýi og buffaló þá gætuð þið séð ljón, blettatígur og hlébarða.
Hið fræga Maasai Mara er hluti af Mara-Serengeti svæðinu sem er 40.000 km². Masai Mara svæðið er 1510km² og júlí til október ferðast gnýirnir (Wildebeest) frá Serengeti í Tansaníu til Masai Mara í Kenía og mikill fjöldi sebrahesta fylgja auk fjölda antilópa og gasella. Því er þetta frábær tími til þess að sjá fjöldann allan af dýrum.
Masai Mara er þekkt fyrir stórkostlegar hjarðir af villtum dýrum, svartmakka ljón, hlébarða og blettatígur og flest allar dýrategundir sem finnast í Kenía. Eftir ferðina keyrum við til baka í lodge-ið í hádegisverð og förum svo seinni partinn í eftirmiðdegis safaríferð.
Dagur 10: 15. september -Masai Mara
Safaríferð í Maasai Mara þjóðgarðinum um morguninn og seinni partinn og upplifum fallegt graslendið i Masai Mara og dýralífið.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)
Dagur 11: 16. september – Masai Mara – Naivasha vatnið
Eftir morgunverð tékkum við út af herberginu og keyrum til Naivasha, fylgjumst með dýralífinu á meðan við keyrum út úr þjóðgarðinum. Keyrt er í gegnum Great Rift dalinn í Kenía, og í gegnum Narok sem er eini Masai bærinn.(Rúmlega 5 klukkustundir) Hádegisverður á Lake Naivasha Sopa Lodge og frjáls tími restin af deginum til að njóta þess að vera á resort-inu. Mögulegt að skipuleggja auka ferð til Hells gate þjóðgarðsins, ef áhugi er.
Gist á Lake Naivasha Sopa Resort næstu 2 næturnar. Resortið er staðsett á 60 hektara landsvæði þar sem gíraffar, waterbuck, vervet og colobus apar eiga heimkynni.
(Morgunverður á Mara Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort)
Dagur 12: 17. september – Naivasha vatnið
Eftir morgunverð er siglt á Naivasha vatninu til Crescent eyjunnar. Gengið eru um eyjuna með leiðsögumanni þar sem eru sebrahestar, gíraffar og, mismunandi tegundir af antílópum og hægt að gefa strútum að borða. Frjáls tími seinni partinn á Lake Naivasha Sopa Resort
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Resort.)
Dagur 13: 18. september – Naivasha – Nairóbí – Zanzibar
Eftir morgunverð er keyrt frá hótelinu til flugvallarins í Naíróbí (uþb, 2 tímar og 30 mínútur), þaðan sem flogið er til Zanzibar.
Tekið er á móti ykkur á flugvellinum í Zanzibar og keyrð á Karafuu Beach Resort og Spa þar sem þið gistið næstu 6 næturnar. Bókað er hálft fæði, en hægt er að breyta í All inclusive.
Dagur 14 -18: 19-23. september Zanzibar
Frjáls tími í Zanzibar
Dagur 19: 24. september Flug heim til Íslands
Dagur 20:25. september – Lendum á Íslandi
*athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Allar rútuferðir og safarí ferðir
- Morgunverður alla daga
- Gisting á hótelum í 18 nætur samkvæmt í ferðalýsingu
- Fullt fæði í Masai Mara, Naivasha og Amboseli
- Hægt að velja um hálft fæði eða All Inclusive í Zanzibar
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Flug frá Amboseli til Masai Mara
- Flug frá Naíróbí til Zanzibar
- 1 nótt á flugvallarhóteli í London
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)
EKKI innifalið:
- Vegabréfsáritun til Kenía
- Vegabréfsáritun til Tansaníu
- Þjórfé
- Drykkir
- Flug frá Íslandi til Naíróbí og frá Zanzibar til Íslands – bókað sér
- ETA fyrir England (nýtt frá 2. apríl 2025, kostar 10 pund)
Ef valið er Hálft fæði á Karafuu Beach Resort og Spa:
Ferðin kostar : 1.589.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðna saman í herbergi (án flugs frá Íslandi)
Ef valið er All Inclusive á Karafuu Beach Resort og Spa:
Ferðin kostar : 1.614.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðna saman í herbergi (án flugs frá Íslandi)
Flugið er áætlað á 200.000 kr, og mun ég senda nánari upplýsingar um leið og það er móttekið.
Staðfestingargjald er 120.000 kr. fyrir ferðina og flug er greitt við bókun
Ef valið er All Inclusive og Junior Suite á Karafuu Beach Resort og Spa:
Ferðin kostar : 1.658.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðna saman í herbergi (án flugs frá Íslandi)
Flugið er áætlað á 200.000 kr, og mun ég senda nánari upplýsingar um leið og það er móttekið.
Staðfestingargjald er 120.000 kr. fyrir ferðina og flug er greitt við bókun
Mikilvægt:
- Mælt er með að fá bólusetningu gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni.
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Kenía