Safaríferð til Kenía: 31. janúar – 12. febrúar 2025

925.000 kr.

Það er stórkostleg upplifun að fara í Safarí og í þessari ferð heimsækjum við Masai Mara þjóðgarðinn, Naivasha og Amboseli þjóðgarðinn. Þar er fjöldinn allur af villtum dýrum, og búumst meðal annars við að sjá: ljón, gíraffa, fíla, antílópur, blettatígur og flamingó fugla.
Fróðir leiðsögumenn fræða okkur um dýralífið þar sem við keyrum um í einstakri náttúrufegurð.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargjald hér.

Skoðið nánari lýsingu á safarí ferðinni til Kenía hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Safaríferð til Kenía er einstök upplifun sem er engri lík. Að fylgjast með gíröffum borða blöð af Akasíu trjám, fíll á göngu með fílskálfinn sinn, ljón sem var að veiða sér til matar, með bráðina sína, að upplifa þessi stórkostlegu dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Í safarí ferðinni okkar til Kenía förum við í fjölmargar safarí ferðir með innfæddu leiðsögufólki sem deilir með okkur gífurlegri þekkingu sinni um dýrin og umhverfið þeirra, hvernig við högum okkur þegar við leitum að dýrunum og þegar við erum í návist þeirra. Við förum á þrjú mismunandi svæði í Kenía, hið fræga Masai Mara, Navaisha vatnið auk Amboseli við rætur Kilimanjaro.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargjald hér.

 

 

Ingibjörg Björnsdóttir er fararstjóri í ferðinni, fædd í Reykjavík 1983. Hún er vanur fararstjóri og hefur meðal annars reynslu af fararstjórn í Kenía, á Spáni, í Egyptalandi, og Grikklandi. Hún hefur ferðast og verið búsett víða og meðal annars skipulagt ferðir til Afríku, Evrópu og Suður-Ameríku. Hún er með BA-próf í viðskiptafræði, tungumálum og menningu frá Copenhagen Business School 2009 og meistaragráðu í þjónustustjórnun með áherslu á ferðamálafræði einnig frá Copenhagen Business School 2012. Enn fremur hefur Ingibjörg lært markþjálfun frá Flow Coaching Institute. Hún bjó erlendis frá 2003 en flutti svo aftur heim til Íslands árið 2017. Hún hefur mikinn áhuga á menningu og ferðalögum og að fara í safaríferð er eitthvað sem hún mælir með að allir sem hafa tækifæri til, prófi minnst einu sinni á ævinni.

 

 

Dagur 1: 31. janúar- Ferðadagur: Keflavík til London 

Við fljúgum með British Airways frá Keflavík til London kl. 11:50 og lendum kl. 15:00. Við gistum eina nótt á flugvallahóteli, sem er staðsett á London Heathrow flugvellinum. Frjáls tími restina af deginum og þeir sem vilja geta kíkt til London eða hvílt sig á hótelinu.

Dagur 2: 1. febrúar- Ferðadagur: London til Naíróbí

Við fljúgum frá London kl. 09:50 og lendum í Naíróbí kl. 21:30 á staðartíma, flugtíminn er 8 klukkustundir og 40 mínútur. Við tékkum okkur inn á Sheraton by Four Point Hotel og gistum næstu 2 næturnar þar.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 3: 2. febrúar – Frjáls dagur í Naíróbí

Frjáls dagur. Þau sem vilja geta heimsótt Karen Blixen safnið eða farið í safaríferð í þjóðgarðinum í Naíróbí.

Dagur 4: 3. febrúar -Naíróbí – Masai Mara

Við vöknum snemma og eftir morgunverð skráum við okkur út af hótelinu og höldum snemma morguns af stað í átt að Masai Mara og byrjum safarí ævintýrið. Við keyrum í gegnum Great Rift dalinn í Kenía, og í gegnum Narok sem er eini Masai bærinn. Síðan er farið upp vesturvegginn þar sem farið inn í Hemingways-landið sem liggur að Serengeti sléttunum.

Masai Mara - ljónynjur

Við komum til Masia Mara rétt fyrir hádegisverð, við borðum hádegisverð og slökum á. Um eftirmiðdaginn förum við í safarí ferð um Masai Mara. Við tékkum okkur inn á Mara Serena Lodge og borðum kvöldverð þar.

Sundlaug
Hjónaherbergi
Mara Lodge herbergi og svalir
Borðstofa
Mara Serena atmosphere
Mara Serena veranda
Mara Serena útiborðstofa
Mara Serena herbergin
Mara Serena úti
Terrace
líkamsrækt
previous arrow
next arrow

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 4. febrúar- Masai Mara

Við vöknum snemma og eftir morgunverð förum við á safarí jeppa um fallegt graslendið i Masai Mara og upplifum dýralífið þann daginn.

Hið fræga Masai Mara er þekkt fyrir stórkostlegar hjarðir af villtum dýrum, svartmakka ljón, hlébarða og blettatígur og allar dýrategundir sem finnast í Kenía. Eftir ferðina keyrum við til baka í lodge-ið í hádegisverð og förum svo seinni partinn í eftirmiðdegis safaríferð.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)

Dagur 6:  5. febrúar – Masai Mara 

Frjáls tími um morguninn og seinni partinn er farið í Safaríferð.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn á Mara Serena Lodge)

Dagur 7: 6. febrúar – Masai Mara – Naivasha vatnið

Eftir morgunverð tékkum við út af herberginu og keyrum til Naivasha, fylgjumst með dýralífinu á meðan við keyrum út úr þjóðgarðinum.  Frjáls tími restina af deginum á Lake Naivasha Sopa Lodge.

Við gistum nóttina og næstu nótt á Lake Naivasha Sopa Lodge.

sundlaug Lake Naivasha
Lake Naivasha room-exterior
Lake Naivasha hjónaherbergi
Lake Naivasha dining
Lake Naivasha buffet
Lake Naivasha outside dining
Lake Naivasha shared area
Lake Naivasha giraffe-in-the-gardens259FD0C0-1D71-A961-F3BA-8006BD442386
Lake Naivasha waterbucks-in-the-vicinity
Lake Naivasha swimming pool
Lake Naivasha gym
previous arrow
next arrow

(Morgunverður á Mara Serena Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Lodge) 

Dagur 8: 7. febrúar -Frjáls dagur við Naivasha vatnið. 

Frjáls dagur – Hægt að fara í bátsferð og safarígöngutúr á Cresent eyjunni þar sem gengið erum meðal antílópa og gíraffa.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Lake Naivasha Sopa Lodge.)

Dagur 9: 8. febrúar -NAIVASHA-AMBOSELI

Eftir morgunverð tékkum við okkur út og keyrum til Amboseli þjóðgarðsins. Við tékkum okkur inn á Amboseli Serena Lodge þar sem við ættlum að gista næstu tvær nætur. Við borðum hádegisverð á Amboseli Serene Lodge og förum svo í safaríferð seinnipartinn.

20220812_130102
20220812_130038
20220812_130123
20220812_130327
Amboseli Serena veranda
Amboseli Serena dining
Amboseli Serena outside dining
amboseli serena sundlaug
previous arrow
next arrow

(Morgunverður á Lake Naivasha Sopa Lodge, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)

Dagur 10: 9. febrúar – AMBOSELI

Eftir morgunverð byrjum við daginn á morgun safarí við fjallsrætur Kilimanjaro fjallsins þar sem við gætum séð ef heppnin er með okkur, svartmakka ljón og fíla, gíraffa, hvíta nashyrninga og fleiri villt dýr og fallegan fjalltop Kilimanjaro. Við keyrum svo aftur að hótelinu okkar þar sem við borðum hádegismat. Þegar fer að kvölda förum við aftur í safarí ferð og hægt er að fara í valfrjálsa heimsókn í Maasai þorp.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á Amboseli Serena Lodge)

Dagur 11: 10. febrúar – Amboselí – Naíróbí

Eftir morgunverð tékkum við okkur út af hótelinu og keyrum frá Amboseli til Naíróbí og sjáum nokkur dýr á leiðinni út úr þjóðgarðinum, og tékkum okkur aftur inn á 4 Point Sheraton þar sem við gistum seinustu nóttina okkar í Kenía.

 

Dagur 12: 11. febrúar – Naíróbí

Frjáls tími um morguninn og um hádegisleitið förum við í ferð um höfuðborgina Nairóbí þar sem við heimsækjum meðal annars Masaai markað. Eftir ferðina keyrum við upp á flugvöll og skráum okkur inn í flugið. Flugið okkar er kl. 22:45 og millilendum við í 2 klukkustundir í London á leiðinni heim aftur til Íslands þar sem við lendum kl. 10:45 næsta dag.

Dagur 13: 12. febrúar – Lendum á Íslandi

Lendum í Keflavík kl. 10:45.

*athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með British Airways
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Sérfróðir innfæddir enskumælandi leiðsögumenn
  • Allar rútuferðir og safarí ferðir
  • Morgunverður alla daga
  • Fullt fæði í Masai Mara, Naivasha og Amboseli
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)

EKKI innifalið:

  • Vegabréfsáritun til Kenía ( uþb. 51 USD)
  • Þjórfé
  • Drykkir
  • Valkvætt að bæta við fyrir þá sem vilja: Bátsferð um Naivasha vatnið , göngu á Crescent eyjunni og Masai þorps heimsókn

Ferðin kostar : 925.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 125.000 kr. aukalega.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargjald hér.

Staðfestingargjald er 90.000 kr.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Kenía