2 sæti laus: Konungsríkið Jórdanía – Menningar & Sólarferð 21. apríl – 3. maí 2024

639.000 kr.

Jórdanía er falin perla Mið-Austurlanda sem margir eiga enn eftir að uppgötva. Í þessari 13 daga ferð til Jórdaníu upplifum við hina rósrauðu Petru sem margir þekkja frá Indiana Jones, við njótum þess bæði að gista við Rauðahafið og Dauðahafið á glæsilegum hótelum, eldum saman í höfuðborginni Amman og kynnumst fornminjum borgarinnar auk þess að gista í Wadi Rum eyðimörkinni sem er einnig einstök upplifun. Öll gisting í ferðinni er sérvalin með bestu upplifun í huga fyrir gestina okkar.

Nánari ferðalýsingu er að finna hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Farastjóri: Sindri Guðjónsson 

Sindri Guðjónsson er vanur fararstjóri Kleopatratours og hefur leitt marga Íslendinga um ævintýralegar upplifanir Miðausturlanda. Sindri er lögfræðingur að mennt og starfar sem yfirþýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Hann bjó um nokkurt skeið í Jórdaníu þar sem hann lærði arabísku. Sindri hefur mikinn áhuga á Miðausturlenskri menningu og arabíska tungumálinu.

Hægt er að greiða staðfestingargjald fyrir ferðina hér.

Dagur 1: 21. apríl – Ferðadagur til Jórdaníu

Flogið til Amman með Austrian Airlines frá Keflavik aðfaranótt 21. apríl kl: 00:10 til Vínarborgar þar sem við millilendum og svo frá Vínarborg til Amman. Tékkað inn á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 20. apríl. Við lendum í Amman kl 15:45. Hópurinn safnast saman og við fáum vegabréfsáritunina okkar og förum í rútunni sem bíður okkar á hótelið Rotana Tower***** í Amman, þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar í Jórdaníu. Frjáls dagur restina af deginum. 

Dagur 2: 22. apríl – Amman bæjarferð og Amman í Amman

Eftir morgunverð verður farið um Amman, höfuðborg Jórdaníu. Byrjað verður miðsvæðis í elsta hluta borgarinnar, sem er prýddur vel varðveittu rómversku borgarvirki með gott útsýni yfir borgina. Þar er einnig hægt að sjá rústir musteri Herkúlesar frá árunum 161 til 180, Byzantine kirkjuna, og einstakt fornminjasafn sem geymir m.a. helstu fornminjar Jórdaníu. Við borgarvirkið er rómverskt hringleikahús frá 2. öld sem er ennþá í notkun fyrir menningarviðburði.

Seinni partinn býðst þátttakendum að læra að elda arabískan mat í (Beit Sitti = Amma hús í Amman 🙂 )  og borða í kvöldmat.  Námskeiðinu fylgir fjögurra rétta máltíð (mezza, salat, aðalréttur og eftirréttur).  Arabískt brauð, límonaði, vatn, te, kaffi og hvítt kaffi í lokin.

Næturgisting í Amman (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 3: 23 apríl -Jerash – Ajloun– Amman 

Eftir morgunverð er farið til Jerash, sem er best varðveitta rómverska Decapolis borgin. Þegar farið er inn í borgina í gegnum hið sögulega Suður-hlið er komið að Oval torginu, musteri Zeusar og syðra hringleikhúsinu sem tekur yfir 3000 manns í sæti. Frá Colonnaded götu sést markaðstorg borgarinnar, íbúahverfi sem heitir Omayyad og dómkirkja frá 4. öld, St. Theodore‘s kirkja, Nymphaeum og nyrðra hringleikhúsið. Næst er farið til borgarinnar Aljoun sem er kunn fyrir víðáttumikinn furuskóg og hinn háa Ayyubid kastala, sem lék stórt hlutverk í sigrinum gegn krossförum sem voru á ferð fyrir átta öldum. Náttúran umhverfis Aljoun er græn og gróðursæl sem íbúar svæðisins færa sér í nyt með margvíslegum hætti. 

 

Næturgisting í Amman (Morgunverður innifalinn)

Dagur 4: 24. apríl – Amman – Mt Nebo – Petra by night – Petra

Í dag höldum við til hinnar rósrauðu Petru. Á leiðinni er stoppað við Nepo fjall þar sem talið er að Móses spámaður hafi horft yfir „fyrirheitna landið“ og hafi verið jarðsettur í kringum 12. öld fyrir okkar tímatal. Hægt er að skoða leifar af mósaík flísagólfi með skreytingum með myndum af veiðum og grænum grundum í lítilli kirkju sem var byggð á 4. öld.

Haldið er áfram til Madaba þar sem frægustu mósaík myndir Byznatine heimsveldisins eru staðsettar. Við skoðum helstu fjársjóði borgarinnar og gamla steinfellumynd af Palestínu sem er staðsett á gólfi grísku St. George rétttrúnaðarkirkjunnar. 

Þaðan keyrum við svo til Petru og innritum okkar á hótelið okkar, The Old Village (5*) þar sem við borðum kvöldverð.

Eftir kvöldverð fáum við að upplifa Petru að kvöldi sem er einstakt. Gengið verður í gegnum há klettagöng (Sig) og gengið fram að hinu stórfenglega og víðfræga fjárhirsluhliði. Leiðin er upplýst með 1500 kertum, til að líkja eftir því hvernig fólk hefði upplifað leiðina þegar hún var í notkun fyrir tíma nútímatækni.

 

Næturgisting Petra (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 25. apríl – Hin rós-rauða Petra

Að loknum morgunverði heimsækjum við aftur hina rós-rauðu Petra en nú að degi til og höfum því meiri tíma til að skoða okkur um á þessum fallega stað. Nabatean Arabar hjuggu Petru út í himinháan klettavegg fyrir 2000 árum síðan. Farið verður í gegnum klettagöngin (Sig) sem eru um kílómetri á lengd með um áttatíu metra háum veggjum. Þekktasta kennileiti Petru, fjárhirsluhliðið mun blasa skyndilega við vegfarendum við lok leiðarinnar. Hægt er að verja heilum degi í að njóta fegurðar staðarins.

Næturgisting Petra (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 6: 26. apríl- Petra til Aqaba og Aqaba frídagur

Að loknum morgunverði keyrum við frá Petra til Aquaba við Rauðahafið. Við tékkum okkur inn á hótelið okkar, Aqaba Hyatt Regancy (5*). Á hótelinu eru bæði flottar sundlaugar og einnig einka strönd við Rauðahafið. Við komuna til Aqaba er er frjáls tími til að njóta sólarinnar, synda og ganga um Ayla svæðið. 

Næturgisting í Aqaba (Morgunverður innifalinn)

Dagur 7 og 8: 27. – 28 apríl – Aqaba frídagar

Frídagar í Aqaba, það er ýmislegt sem hægt er að gera í Aqaba, rölta um í gamla bænum,  spila golf eða kafa og skoða kóralrif, fara á ströndina og njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða.

Næturgisting í Aqaba (Morgunverður innifalinn)

Dagur 9: 29. apríl – Aqaba til Wadi Rum

Eftir morgunverð keyrum við til Wadi Rum. Litríkur sandur Wadi Rum skoðaður á Bedúina-jeppum í tvær klukkustundir og sólsetursins notið með arabísku tei. 

 Kvöldverður og næturgisting í Wadi Rum (Í bedúa-tjaldi). (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 10: 30. apríl – Wadi Rum til Dauðahafsins

Eldsnemma morguns er valfrjáls ferð í loftbelg til þess að sjá sólarupprásina yfir eyðimörkinni. Eftir morgunverð er keyrt eftir konunglegu hraðbrautinni að Dauðahafinu. Við komuna til Dauðahafsins innritum við okkur í Movenpick Dead Sea (5*) þar sem við gistum næstu 3 næturnar á þessu fallega hóteli. 

Næturgisting við Dauðahafið (Morgunverður innifalinn)

Dagur 11 og 12: 1. og 2. maí – Frídagar við Dauðahafið

Frídagar og hvíldardagar þar sem við njótum þess að vera við Dauðahafið. Það eru bæði glæsilegar sundlaugar og aðgangur að einkaströnd þar sem hægt er að fljóta í Dauðahafinu. 

 

Næturgisting við Dauðahafið (Morgunverður innifalinn)

Dagur 13: 3. maí – Dauðahafið og Ferðumst heim til Íslands

Farið til Queen Alia Int’l airport til brottfarar. Fljúgum frá Amman með Austrian kl. 16:00, millilendum í Vínaborg og lendum aftur á íslandi kl. 23:20. 

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Gistingin okkar:

Inn

Út

Fjöldi nótta / borg

Hótel

Dagur 1

Dagur 4

3 nætur í Amman BB

Rotana Tower (5*)

Dagur 4

Dagur 6

2 nætur í Petra HB

The Old Village (5*)

Dagur 6

Dagur 9

3 nætur í Aqaba BB

Hyatt Regency Ayla (5*)

Dagur 9

Dagur 10

1 nótt í Wadi Rum HB

Alsultana Luxury Camp

Dagur 10

Dagur 13

3 nætur við Dauðahafið

Movenpick Dead Sea  (5*)

 

Innifalið í gjaldi: 

  • Flug frá Íslandi til Jórdaniu fram og til baka með Austrian Airlines
  • Innritaður farangur (23kg) og handfarangur
  • Vegabréfsáritun til Jórdaníu
  • Við hittumst og fáum aðstoð frá okkar fulltrúum við vegabréfsáritun og komu
  • Allar rúturferðir í loftkældum rútum
  • Íslensk fararstjórn
  • Einka enskumælandi leiðsögumaður alla daga fyrir hópferðir
  • 12 gistinætur á áðurnefndum hótelum með morgunverði. Kvöldverður er innifalinn í Petru & Wadi Rum
  • Málsverðir: 12 morgunverðir & 4 kvöldverðir á hótelum og áfangastöðum
  • Matreiðslunámskeið í Amman á Beit Sitti
  • Allur aðgangseyrir að öllum stöðum sem við heimsækjum
  • Tveggja tíma jeppaferð í Wadi Rum
  • Petra að næturlagi
  • Ferðir til og frá hótelum og flugvelli
  • Ekki innifalið:
    • Þjórfé
    • Club car í Petra
    • Loftbelgur og aukaferðir
    • Hádegisverðir sem ekki eru nefndir að ofan
    • Kvöldverðir sem ekki eru nefndir að ofan

Ferðin kostar : 639.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi. 

Einsmanns herbergi kostar 210.000 kr. aukalega.

Fyrir frekari upplýsingar: kleopatratours@kleopatratours.is eða í síma 776-6400 🌞

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Jórdaníu