Ferðalýsing
Farastjórar í ferðinni eru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Hjörleifur Sveinbjörnsson. Þau munu deila með okkur ýmsum fróðleik um Tyrkland. Ingibjörg Sólrún og Hjörleifur bjuggu og störfuðu í Istanbul í tæp fjögur ár, frá 2014 til 2017. Þau þekkja Istanbul mjög vel sem og tyrkneskt samfélag og tyrkneska sögu.

Dagur 1: 1. október – Ferðadagur: Keflavík til Istanbul
Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík til kl 07:40 og millilendum í Amsterdam, við fljúgum áfram með Turkish Airlines og lendum kl. 18:45 í Istanbúl.
Rúta bíður okkar og keyrir okkur á hótelið okkar: Burdock Hotel Istanbul, Autograph Collection (eða sambærilegt)
Dagur 2: 2. október- Bláa moskan og Topkapi höllin
Eftir morgunverð heimsækjum við Bláu moskuna og Topkapi höllina. Eftir heimsóknirnar borðum við saman hádegisverð og þau sem vilja geta skoðað sig um á Grand Bazar markaðnum.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 3: 3. október – Gönguferð um Karakoy og Istiklal
Í dag bjóða Ingibjörg Sólrún og Hjörleifur upp á gönguferð um borgina. Göngutúr þar sem stikkorðin eru Istiklal-stræti, Pera Palace hótel, Galata-turn og Karaköy hverfið.

Hið sögufræga Pera Palace Hotel, sem var opnað árið 1892 fyrir farþega Orient Express-lestarinnar. Þar má enn finna andrúmsloft fyrri tíma.
Hið iðandi Istiklal Avenue er aðalgata Beyoğlu-hverfisins, þar sem sögulegar byggingar, litlar verslanir, bókabúðir og kaffihús raðast meðfram göngugötunni. Gamli rauði sporvagninn liðast eftir götunni og skapar rómantískt andrúmsloft mitt í fjölbreyttu borgarlífinu.
Hinn táknræni Galata Tower gnæfir yfir borgina og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Bosphorus-sund, Gamla bæinn og Gullna hornið. Turninn, sem reistur var á miðöldum, segir sögu margra alda af menningu og viðskiptum.
Hið líflega Karakoy er hverfi þar sem gömul vöruhús og hafnarsvæði hafa fengið nýtt líf með notalegum kaffihúsum, listagalleríum og veitingastöðum. Þar blandast fortíð og nútíð á einstakan hátt og ferðin endar í afslöppuðu andrúmslofti við sjávarsíðuna.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: 4. október – Ferð um hverfi Grikkja og Gyðinga og Kadikoy
Eftir morgunmat eru gömlu hverfi grikkja og gyðinga, Fener og Balat, heimsótt og litið á varnarmúr Þeodósíusar frá á því á fimmtu öld en hann er talinn mesta hernaðarmannvirki miðalda sem ennþá stendur. Síðan er ferjan tekin yfir til Kadikoy sem er líflegt hverfi Asíumegin með skemmtilegum matarmarkaði og veitingastöðum. Þar eru m.a. fjölbreytt vegglistaverk sem gaman er að skoða.
Dagur 5: 5. október – Sigling á Bosphorus
Eftir morgunverð förum við í siglingu á Bosphorus sem aðskilur Tyrkland Evrópu og Asíu megin og tengir Svartahafið við Marmarahafið.

Frjáls dagur restina af deginum. Tildæmis hægt að fara með kláf upp í Pierre Loti hæðina og njóta fallegs útsýnins frá einu af kaffihúsunum þar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 6: 6 október – Frjáls dagur
Dagur 7: 7. október – Fljúgum aftur heim til Íslands
Eftir morgunverð skráum við okkur af hótelinu og rúta keyrir okkur á flugvöllinn. Við fljúgum með Turkish Airlines kl. 10:30 til Amsterdam og flúgum svo áfram með Icelandair aftur heim til Íslands. Áætluð lending heima á Íslandi er kl. 18:20.
*athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Ferðin kostar : 419.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi. Einstaklingsherbergi kostar 125.000 kr aukalega.
Staðfestingargreiðsla er 120.000 kr
Innifalið í ferðinni:
- Flug til og frá Istanbúl með Icelandair og Turkish Airlines
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Sérfróður enskumælandi leiðsögumaður í Bláu moskunni og Topkapi höllinni
- Morgunverður alla daga
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum og vatn í rútunni
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)
EKKI innifalið:
- Drykkir nema annað sé tekið fram
- Þjórfé
- Aukaferðir sem eru valfrjálsar



