Ferðalýsing
Menningar og sólarferð til Egyptalands
Einstök 14 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum á elephantin eyjunni á Níl, og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl við Rauðahafið.
Omar Salama er fararstjóri í þessari ferð. Hann er fæddur og uppalinn í Egyptalandi en hefur búið á Íslandi í nærri 20 ár, og talar mjög góða íslensku. Margir Íslendingar úr skákheiminum þekkja til Omars, þar sem hann hefur verið skákdómari í mörgum stærstu mótum Íslands, sem og fjölmörgum heimsmeistaramótum erlendis. Omar fæddist í Alexandríu og bjó í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á Egyptalandi sem er fjölmennt land þar sem búa fleiri en 100 milljón manna. Í ferðinni okkar verður einnig sérfróður enskumælandi leiðsögumaður sem er Egyptalandsfræðingur, ásamt Omari .

Hægt er að bóka sig með í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér.
Dagur 1: 10. janúar – Ferðadagur til Egyptalands
Við fljúgum frá Íslandi kl. 15:10 og millilendum í Frankfurt, og fljúgum svo áfram til Kaíró og lendum þar kl. 02:05. (kl. 00:05 á íslenskum tíma) Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á hið glæsilega 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró, við Tahrir torgið og með útsýni á Níl ánna, þar sem við gistum fyrstu 3 næturnar.
Dagur 2: 11. janúar – Píramídarnir og GEM – nýja þjóðminjasafn Egyptalands
Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Eftir heimsóknina heimsækjum við svo hið nýja þjóðminjasafn Egyptalands GEM (Grand Egyptian Museum) sem Egyptar eru mjög stoltir af. Þar er meðal annars hægt að sjá Gullgrímu Tutankhamun. (Frá júlí 2025)
Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 3: 12. janúar – Kastalinn í Kaíró og gamla Kaíró
Í dag fáum við að kynnast stórborginni Kaíró betur. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar og gömlu Kaíró.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 4: 13. janúar– Khan el Khalili og suður til Aswan
Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu, við byrjum á að heimsækja hinn 600 ára markað Khan el Khalili og höldum svo út á flugvöll þaðan sem við fljúgum til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptaland hins forna í Aswan.
Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu Movenpick Resort Aswan Hotel á Elefantín eyjunni og gistum næstu þrjár næturnar þar.
Hægt er að njóta glæsilegs kvöldverðarhlaðborðs Mövenpick úti á verönd hótelsins.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: 14. janúar – Há stíflan, Philae hofið og hin ókláraða Obelísk
Eftir morgunverð munum við skoða háu Aswan stífluna, Philae hofið og hina ókláruðu óbelísk.

Frjáls tími restina af deginum.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 6: 16. janúar – Frjáls dagur – Val að heimsækja Abu Simbel
Frjáls dagur þar sem hægt er að njóta við sundlaugarbakkann á fallega hótelinu okkar eða skoða sig betur um í Aswan.
Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 7: 16. janúar – Fljótabátur og sigling á Níl
Eftir morgunverð tékkum við okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum þar sem hægt er að skoða sig um í Aswan eða njóta þess að vera á fljótabátnum.
Seinni partinn er valfrjáls sigling á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 17. janúar – Sigling á Níl og Kom Ombo og Edfu musterin
Í dag byrjum við siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.
Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.
Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 18. janúar – El Karnak og Luxor musterin
Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.
Í dag heimsækum við austurbakka Luxor. Við byrjum á heimsókn í El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins.
Við heimækjum sama dag einnig hið glæsilega Luxor musteri.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 10: 19. janúar – Konungardalur og Hatshepsut Mustri
Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.
Eftir morgunverð heimækjum við vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar.
Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.
Við tékkum okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel og borðum kvöldverð á hótelinu.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 11: 20. janúar – Luxor, Rauðahafið og Hurghada
Aukaferð er VAL fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás.
Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.
Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 3 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir.
Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive í Hurghada))
Dagur 12 og 13: 19. -21-22. janúar – Frjáls tími í Hurghada
Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan.
Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))
Dagur 13: 23. janúar – Ferðumst frá Hurghada og milllendum í Zurich
Morgunverður á Jaz Aquamarine resort, tékkum okkur svo út og fljúgum heimleiðis til Íslands með millilendingu í Zurich. Lendum í Zurich kl. 16:40.
Tékkum okkur inn á flugvallarhótel nálægt flugvellinum í Zurich og gistum nóttina þar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 14: 24. janúar – Ferðumst heim til Íslands
Tékkum okkur út snemma og fljúgum kl 09:55 heim með Edelweisser og lendum aftur heima á Íslandi kl. 13:20.
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Lufthansa group
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23 kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Innanlands flug frá Kaíró til Aswan
- Morgunverður alla daga
- Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
- Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum
- Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
- Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara
- Upplýsingafundur með fararstjóra og hópnum fyrir ferðina
EKKI innifalið:
- þjórfé
- Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana og/eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
- Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
- Aðrar auka ferðir eins og sigling í Núbían þorp
Ferðin kostar : 895.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 255.000 kr. aukalega.
Staðfestingargreiðsla er 120.000 kr
Hægt er að bóka sig með í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu hér.
Mikilvægt:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni og gegnum heilsuveru.
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.