Barselóna og vín með Sóleyju – Sérferð: 11.- 18. september 2026

Í þessari ferð tekur vín- og þjóðfræðingurinn Sóley á móti hópnum. Hún mun deila með okkur ýmsum fróðleik um sögu, menningu mat og vín Katalóníu og Spánar. Sóley hefur búið í Barselóna í tæp fjögur ár og sökkt sér ofan í menninguna og er ólm að deila með sér þekkingu.

Ferðin kostar : 409.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 138.000 kr aukalega. 

Verð á ferð miðast við 15-20 manns

Hægt er að skoða nánari lýsingu á ferðinni hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Sóley Björk Guðmundsdóttir mun leiða hópinn um Barselóna og fræða um hin fjölbreyttu vín svæðisins, með smökkunum. Sóley er vínfræðingur, þjóðfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur búið í Barselóna í nokkur ár og sérhæfir sig í vínfræðum með sérstaka áherslu á spænsk vín. Hún hefur ástríðu fyrir alþýðlegri menningu og sögu og hoppar hæð sína af gleði þegar hún finnur fullkomna vínpörun með matnum. Í framhaldi af vínnámi er Sóley er langt komin með hæstu gráðu í vínfræðum frá Wine and Spirit Education Trust í London, einum virtasta vínskóla í heiminum. Hún verður ein af örfáum íslendingum með gráðuna.

Dagur 1: 11. september – Ferðadagur: Keflavík til Barselóna

Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík til Barselóna  kl 08:25 og lendum kl. 14:45 í Barselóna.

Sóley tekur á móti hópnum í Barselóna. Rúta bíður hópsins og keyrir rétt við hótelið okkar. Við innritum okkur á hótelið okkar, H10 Universitat (4*)

H10 Universitat (4*) er vel staðsett, miðsvæðis í Barselóna. Örstutt er að ganga að Plaza Catalunia, Römblunni og Passeig de Gracia.

Frjáls tími restina af deginum.

Dagur 2: 12. september – Faldar perlur miðbæjarins

Eftir morgunverð hittir Sóley hópinn á hótelinu og leiðir hópinn um faldar perlur miðbæjarins. (nákvæm tímasetning ákveðin með Sóley)

Í Born og Gotneska hverfinu leynast perlur fortíðarinnar innan um úrval góðra veitingastaða og áhugaverðra verslanna. Í göngunni verður sagt frá sögu borgarinnar út frá byggingum og fornminjum sem fyrir augu ber, allt frá Rómverjum til spænsku borgarastyrjaldarinnar. Í göngunni verður stoppað þrisvar sinnum og bragðað á hefðbundnum kræsingum og veigum.

(Morgunverður og létt vínsmökkun með smáréttum innifalinn)

Dagur 3: 13. september- Frjáls dagur um daginn og Matur og vín um kvöldið

Það er ekki að ástæðulausu að Barselóna er nafntoguð fyrir mat og drykk og ekki er þverfótað fyrir veitingastöðum í miðbænum, katalónsk matarmenning er ótrúlega seiðandi! Hér köfum við ofan í matar- og vínmenningu héraðsins í fimm rétta katalónskum kvöldverð og með kræsingunum verða pöruð fimm sérvalin handverksvín frá svæðinu sem hefja kostinn upp í nýjar hæðir. 

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 4: 14. september – Frjáls dagur og valfrjáls ferð: Gengið um jaðarinn

Í dag er frjáls dagur í Barselóna.

Þau sem vilja geta farið í valfrjálsa göngu með Sóley um Raval.

Handan Römblunnar, hinu megin við Gotneska hverfið, er að finna heimili jaðarmenningar miðbæjarins, Raval. Hverfið er þekkt fyrir hæsta hlutfall af vasaþjófnaði í borginni, veggjakrot og óheflaða listasenu í bland við sögu sem spannar um það bil jafn langt aftur og íslandssagan. Sem og í göngunni um perlur miðbæjarins verður stoppað á þremur vel völdum áfangastöðum og bragðað á menningu borgarinnar. –  Aukalega 90 evrur á mann

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 5: 15. september – Vínsvæðin sótt heim: Hálfsdagsferð og heimsóknir í vínhús í Penedés 

Rétt fyrir utan Barselóna liggur vínhéraðið Penedés þar sem megnið af öllu cava, spænsku freyðivíni, er framleitt. Allt frá léttum vínum til að sötra í sólinni upp í kröftug freyðivín sem hafa þroskast í áratug eða meira.

Við heimsækjum tvö vínhús, í því fyrra kynnumst við framleiðslunni og fáum skilning á vínberjunum sem eru lykillinn að bestu freyðivínum Spánar. Næst kynnumst við öðru viðhorfi í víngerð, þar fáum við hádegismat með vínpörun í glæsilegu umhverfi í nafntogaða vínhúsinu Mas Betran sem framleiðir aðeins freyðivín í hæsta gæðaflokki.

(Morgunverður og vínsmökkun innifalinn)

Dagur 6: 16. september – Frjáls dagur – Valfrjáls ferð: Vínsvæðin sótt heim: Dagsferð og heimsóknir í vínhús í Priorat 

Frjáls dagur í Barselóna. Hótelið er vel staðsett og því fjölmargt sem hægt er að gera í nágrenni hótelsins.

Þau sem vilja geta bætt við dagsferð og heimsóknir í vínhús í Priorat

Priorat er nafntogaðasta vínsvæði Katalóníu þó víðar væri leitað. Það er eitt af aðeins tveimur svæðum á öllum Spáni sem er í hæsta gæðaflokki landsins. Vínið er þekkt fyrir hrjóstrugt landslag sem gefur af sér kraftmikil rauðvín frá vínvið sem þarf að berjast í bökkum til að halda lífi.

Við heimsækjum vínhús í smáþorpinu Gratallops þar sem stór hluti íbúa framleiða vín. Þar fáum við 4 rétta hádegismat með smökkun á 6 vínum.

Í framhaldinu verður haldið áfram innar í héraðið þar sem við heimsækjum sögufrægt vínhús þar sem við smökkum margt af því besta sem þau hafa upp á að bjóða og kynnumst framleiðslunni.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 7: 17. september – Frjáls dagur í Barselóna og kvöldverður og vínsmökkun með víngerðarmanni

Við heimsækjum víngerðarmanninn Erick Solano á heimili hans í Barceloneta. Við borðum kvöldmat á þaksvölunum hans með útsýni yfir ströndina og með matnum gæðum við okkur á framleiðslunni hans. Erick gerir vín rétt fyrir utan borgina og markmiðið er að vínin endurspegli svæðið eins og hægt er og um leið fari vel með mat frá mið og suður Ameríku. Erick er nefnilega uppruninn frá Costa Rica, en gerir vínin í samstarfi með vini sínum Jordi, sem er eins katalónskur og það gerist. Útkoman er vín sem er blanda af katalónskum og amerískum áhrifum og hafa skemmtilega breidd í pörun við mat.

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 8: 18. september – Fljúgum aftur heim til Íslands

Eftir morgunverð skráum við okkur af hótelinu og rúta keyrir okkur á flugvöllinn og Sóley kveður okkur eftir dásamlega daga í Barselóna. Hópurinn flýgur með Icelandair frá flugvellinum í Barselóna kl. 15:45. Áætluð lending heima á Íslandi er kl. 18:20.

(Morgunverður innifalinn)

*athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Ferðin kostar : 409.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.  Einstaklingsherbergi kostar 138.000 kr aukalega. 

Innifalið í ferðinni:

  • Flug til og frá Barcelona með Icelandair
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23kg) og handfarangur
  • 7 nætur á 4 stjörnu H10 Universitat, vel staðsett í Barcelona
  • Morgunverður alla daga
  • Gönguferð um miðbæinn
  • Kvöldverður með vínsmökkun
  • Ferð til Priorat með vínsmökkun og hádegisverði í Gratallops
  • Rúta frá flugvellinum að hótel(stoppi) í Barcelona og aftur á flugvöllinn

EKKI innifalið:

  • Valfrjálsar aukaferðir
  • Þjórfé