Menningar og sólarferð til Mexíkó 17. janúar- 1. febrúar 2027

Dásamleg ferð til Mexíkó þar sem kafað er í heillandi heim frumbyggjanna en einnig fæst sýn á nýlendutímann. Skoðaðir eru stórkostlegir fornleifastaðir eins og Teotihuacan, Monte Alban og Kukulakan-píramídinn þar sem við horfum inn í forna tíma sem eru í senn framandi og áhugaverðir. Farið er um borgir sem eru á heimsminjaskrá og tekur Mexíkó á móti okkur með litagleði, iðandi mannlífi og mat sem sendir bragðlaukana í sitt eigið ferðalag. Við upphaf og enda ferðarinnar njótum við sólar og strandar þar sem er dekrað við okkur og hvort sem þú vilt slaka á eða fræðast meira um þetta heillandi land þá eru valmöguleikarnir óendanlegir. Lifandi ferð þar sem jafnvægi er á milli sögu, upplifana og afslöppunar.

Ferðin kostar : 889.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 215.000 kr. aukalega.

Skoðið nánari lýsingu á ferðinni hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Fararstjórar í ferðinni eru frænkurnar Ingibjörg Björnsdóttir og Þurý Bára Birgisdóttir sem hafa ferðast saman víða um heim og þá sérstaklega í Latnesku Ameríku.

Þurý Bára hefur ferðast víða um Latnesku Ameríku. Hún lærði hótelstjórnun í Noregi og er með mikla reynslu af ferðaskipulagningu og ferðaþjónustu. Hún byggði meðal annars upp og var með Hótel Hallormsstað fyrir austan. Þurý bjó um tímua í Oaxaca í Mexíkó og átti þar veitingastað. Hún hefur ferðast víða um Latnesku Ameríku, meðal annars Argentínu, Brasilíu, Bólivíu og gengið Inka veginn í Peru til Machu Picchu. Hún er einnig lærð í kvikmyndagerð og áhugaljósmyndari, og því alltaf til í að taka skemmtilegar myndir fyrir gestina okkar.

Ingibjörg er vanur fararstjóri Kleopatratours og er meðal annars fararstjóri í Suður Ameríku ferðunum okkar og talar reiprennandi spænsku. Hún er með BA-próf í viðskiptafræði, tungumálum og menningu frá Copenhagen Business School og meistaragráðu í þjónustustjórnun með áherslu á ferðamálafræði einnig frá Copenhagen Business School. Hún bjó erlendis frá 2003 og flutti aftur til Íslands 2017.

Dagur 1: 17. janúar 2027- Ferðadagur: Keflavík til Toronto 

Við fljúgum frá Keflavík með Icelandair kl. 17:00 til Toronto og lendum í Toronto kl. 18:15 á staðartíma. Við gistum nóttina á Sheraton sem er staðsett á Toronto flugvellinum, áður en við höldum ferðinni áfram til Mexíkó.

Dagur 2: 18. janúar- Toronto og frjáls dagur í Cancun

Við fljúgum af stað frá Toronto kl. 07:55 og lendum í Cancún kl. 12:25. Við tékkum okkur inn á Hotel Emporio 4* þar sem við gistum fyrstu nóttina. Við njótum þess að drekka í okkur D-vítamín, hvílast eftir ferðalagið, njóta strandarinnar og sundlauganna áður en við byrjum að kynnast menningu og menningararfi Mexíkó næstu daga. 

beach emporio
previous arrow
next arrow

Sameiginlegur kvöldverður með hópnum um kvöldið á hótelinu.

(Hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 3: 19. janúar – Chichen-Itza frá tímum Maya-na og Merida

Í dag keyrum við frá Cancún í heimsókn sem er einn af hápunktum ferðarinnar. Chichen-Itza eru einstakar fornleifaminjar frá tímum Maya og þar ber hæst Kukulakan-píramídinn sem er einkennandi fyrir byggingarlist Maya á fyrri tímum. Þessi staður er jafnframt á heimsminjaskrá UNESCO og eitt frægasta tákn Mexíkó og eitt af „nýju sjö undrum heims“.

Eftir heimsóknina borðum við saman hádegisverð og höldum svo til borgarinnar Merida á norðanverðum Yucatan-skaganum þar sem við gistum næstu tvær næturnar. Við skráum okkur inn á hótelið okkar, NH Collection Merida Paseo Montejo (4*)

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 4: 20. janúar –  Frjáls dagur í Merida og valfrjáls ferð til Uxmal

Frjáls dagur í Merida. Merida hefur verið kölluð hvíta borgin vegna hvítra bygginga og hreinleika. Í borginni iðar menningin og enn er þar sterk tenging við Mayana, frumbyggja Yucatán skagans.

Hægt er að njóta þess að ganga um borgina, prufa rétti heimamanna eins og cochinita pibil og panuchos og heimsækja söfn eða markaði.

Í dag er valfrjáls ferð í boði fyrir þau sem vilja til Uxmal þar sem er einnig að finna einn af mikilvægustu fornminjum Maya menningarinnar. Eftir að fornminjarnar eru skoðaðar verður farið í heimsókn í Choco-Story Uxmal, gagnvirkt súkkulaðisafn. Þar geta gestir kynnst sögu og menningarlegu mikilvægi kakós í menningu Maya með áhugaverðum sýningum, vinnustofum og smökkunum. Við kynnumst því hvernig kakó var talið heilagt hráefni, notað ekki aðeins sem fæða heldur einnig sem gjaldmiðill og í trúarlegum athöfnum.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 5: 21. janúar – Merida til Oaxaca

Við tékkum okkur út af hótelinu og höldum út á flugvöll, við fljúgum frá Merida kl. 8:26 og lendum í Oaxaca kl. 10:05.

Við byrjum á að skoða okkur um í sögulega miðbæ Oaxaca. Margir segja hann einn þann fallegasta í Mexíkó með fallegri byggingarlist, húsum í skærum litum og hann er einnig er á  heimsminjaskrá UNESCO.

Við innritum okkur á hótelið okkar Oaxaca Real  4* (eða sambærilegt) þar sem við gistum næstu 3 næturnar. Hótelið er staðsett miðsvæðis í Oaxaca, og það er skemmtilegt að ganga um í nágrenni hótelsins.

Oaxaca er þekkt sem vagga matarmenningar Mexíkó og Oaxaca er þekkt fyrir sjö mole, eitt fyrir hvern dag vikunnar og þar ber hæst mole negro, sérstök sósa búin til úr fjölda tegunda af chili, kakó og kryddi.

Þá á Mescal einnig uppruna sinn í fylkinu en það er unnið úr agave-plöntunni, og verður tækifæri til þess að smakka Mescal á meðan við erum í Oaxaca.

Á meðan við erum í Oaxaca bjóða farastjórar upp á gönguferð á einn af matarmörkuðum borgarinnar. Þurý Bára fararstjóri mælir sérstaklega með því að hafa augun opin fyrir sölukonum sem selja “chapolines” (is: engisprettur). Þetta er að sjálfsögðu aðeins fyrir þá huguðustu að prófa. En sagt er að smakki maður engispettur í Oaxaca þá muni lífið leiða þig þangað aftur. 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 6: 22. janúar – Monte Albán

Eftir morgunverð höldum við til Monte Albán sem er einn merkasti fornleifastaður í Mexíkó. Þarna er talið að fyrsta borg Ameríku hafi verið skipulögð með götum, hofum, grafhýsum og leikvangi. Þarna réðu ríkjum Zapótekar sem meðal annars þróuðu ritmál og héldu dagatal. Staðurinn er á heimsminjaskrá UNESCO og hefur einstakt útsýni yfir Oaxaca-dalinn.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 7: 23. janúar – Frjáls dagur í Oaxaca og valfrjáls aukaferð að hinu fræga Tule tré og til Mitle 

Í dag er frjáls dagur í Oaxaca, bærinn er ríkur af menningu og fallegum svæðum og góðum mat, því höfum við góðan tíma til að skoða okkur um í bænum.

Þau sem vilja geta valið að fara í valfrjálsa auka ferð til Santa María del Tule og Mitla.

Hið fræga Tule-tré, er eitt elsta og breiðasta tré í heimi. Þetta risavaxna Montezuma-sýprus er talið vera meira en 2000 ára gamalt og er staðsett í heillandi bænum Santa María del Tule. Gestir geta dáðst að gríðarstórum stofni þess og einstöku lögun sem minnir á dýr og ýmsar fígúrur.
Þar næst er haldið áfram til Mitla, mikilvægs fornleifasvæðis Zapóteka sem er þekkt fyrir flóknar rúmfræðilegar steinmósaíkskreytingar og vel varðveittar helgibyggingar. Mitla var áður stór trúarleg miðstöð og er einstakt í Mið-Ameríku fyrir skrautleg mynstur sem prýða veggi mustera og hallir. Eftir hádegisverð er haldið aftur til baka til Oaxaca.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 8: 24. Janúar – Puebla 

Eftir morgunverð keyrum við til fallegu borgarinnar Puebla.

Við gistum eina nótt í Puebla á Hotel JF Grand (4*)

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 9: 25. janúar – Puebla og Mexíkó borg

Eftir morgunverð skoðum við Puebla dómkirkjuna, sem er eitt merkilegasta trúar- og byggingarlistaverk í Mexíkó. Hún var reist á 16. og 17. öld. Turnar kirkjunnar eru meðal þeirra hæstu í landinu og setja svip sinn á borgarmyndina. Við skoðum aðaltorg borgarinnar en þar eru allt um kring byggingar frá nýlendutíma í bland við kaffihús, veitingastaði og markaði. Seinni partinn keyrum við við til Mexíkóborgar og skráum okkur inn á hótelið okkar Hotel Casa Blanca (4*).

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 10: 26. janúar – Mexíkóborg – El Zócaló

Eftir morgunverð skoðum við El Zócaló sem er aðaltorgið í Mexíkóborg og er eitt stærsta torg í heimi. Torgið var miðja Azteka borgarinnar Tenochtitlán áður en Spánverjar numu land og hefur verið hjarta borgarinnar í yfir 700 ár. Það er umkringt frægum byggingum og þar á meðal má nefna Dómkirkjuna sem við skoðum en hún er ein stærsta kirkjan í Latnesku Ameríku og bygging hennar tók aldir og ber byggingarstíllinn keim af hverju tímabili fyrir sig. Við virðum fyrir okkur forsetahöllina og iðandi mannlífið.

 

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 11: 27. janúar – Frida Kahlo safnið – Coyoacán og San Ángel hverfið

Eftir morgunverð höldum við af stað og skoðum Fridu Kahlo og Diego safnið sem er staðsett í einu af skemmtilegustu hverfum borgarinnar, Coyoacán. Safnið gefur einstaka innsýn inn í líf listakonunnar en þetta er húsið þar sem hún fæddist, sleit barnsskónum og bjó síðan í með manni sínum, Diego Rivera.

 

Við göngum í gegn um eitt mest sjarmerandi hverfi hverfi borgarinnar Coyoacán þar sem fallegur arkitektúr frá nýlendutímanum nýtur sín ásamt fjölda lifandi markaða, sjarmerandi kaffihúsa og þar sem andrúmsloftið ber sterkan keim af menningu og sögu landsins. 

Við borðum saman hádegiverð í Coyoacán og eftir hádegisverð höldum við í San Ángel hverfið, sem er þekkt fyrir steinlagðar götur, nýlendutímabyggingar og lífleg torg. Svæðið er frægt fyrir handverksmarkað sinn, listasöfn og notaleg kaffihús, þar sem hefð og nútímamenning mætast. San Ángel býður gestum upp á ferðalag um sögu, byggingarlist og mexíkanska alþýðulist í fallegu og hlýlegu umhverfi.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 12: 28. Janúar – Teotihuacan

Eftir morgunverð heimsækjum við einn stærsta fornleifastað í Mexíkó, Teotihuacan, staðurinn þar sem menn verða að guðum. Þarna eru píramídar sólarinnar og mánans og er einn af merkilegustu stöðum í sögu Aztekanna. Borgin hafði 100-200 þúsund íbúa var einstaklega vel skipulögð og hélt um pólitíska tauma á svæðinu á tímum aztekanna.

Þá er einn helgasti staður þessa kaþólska lands heimsóttur en það er Basilíka Mærinnar frá Guadalupe. Þar birtist Mærin, verndardýrlingur landsins, frumbyggjanum Juan Diego á 16. öld og markaði það tímamót sem urðu til þess að í framhaldi tók landið kaþólska trú.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 13: 29. janúar – Cancún

Eftir morgunverð þá höldum við aftur til Cancún þar sem hægt er að sleikja sólina, fara í skemmtiferðir, snorkla í tærum sjó og njóta þess besta í mat og drykk. Innanlandsflug frá Mexíkó borg til Cancún og við skráum okkur inn á hótelið okkar, Paradiso Cancún (5*) í All Inclusive

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 14: 30. janúar – Frjáls dagur í Cancún

Njótum þess að slaka á í Cancún í All Inclusive

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn, All Inclusive)

Dagur 15: 31. janúar – Fljúgum heim til Íslands

Eftir morgunverð skráum við okkur út af hótelinu og höldum upp á flugvöll. Flugið okkar er kl. 13:30 og við millilendum í Toronto kl. 17:30, fljúgum svo áfram til Keflavíkur með Icelandair kl. 19:40 og lendum aftur heima á Íslandi kl. 6:25.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 16: 1. febrúar- Lendum á Íslandi

Lendum í Keflavík kl. 6:25.

*athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Ferðin kostar : 889.000 kr. á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 215.000 kr. aukalega.

Innifalið í ferðinni:

  • Flug frá Keflavík til Cancún og aftur heim með Icelandair og Westjet
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Sérfróðir enskumælandi staðarleiðsögumenn
  • Gisting samkvæmt ferðalýsingu
  • Innanlandsflug frá Merida til Oaxaca og frá Mexíkóborg til Cancún
  • Morgunverður alla daga
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun (Ekki valfrjálsar aukaferðir)
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Drykkir
  • Valfrjálsar aukaferðir

Mikilvægt:

  • Mælt er með að gestir láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni.