Description
Sindri Guðjónsson er lögfræðingur að mennt og starfar sem yfirþýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Hann bjó um nokkurt skeið í Jórdaníu þar sem hann lærði arabísku. Sindra hefur mikin áhuga á arabískri menningu og tungumálinu.
Ferðadagur: 7. apríl – Brottför frá Íslandi
Flogið til Amman með Lufthansa frá Keflavik kl: 14:15 til FRA 19:50 og frá FRA kl 21:00 til Amman. Lending á Queen Alia Int’l flugvelli. Hópurinn safnast saman og fær aðstoð . Því næst er tékkið okkur inn á hótelið okkar í Grand Millenium***** í Amman, þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar í Jórdaníu.
Dagur 1 /08.04: Komum til Amman Q.A.I Airport LH692 kl. 02:10
Það er hvíld og frjáls tími til kl. 17, en þá býðst þátttakendum að læra að elda arabískan mat í (Beit Sitti = Amma hús í Amman 🙂 ) og borða í kvöldmat. Námskeiðinu fylgir fjögurra rétta máltíð (mezza, salat, aðalréttur og eftirréttur). Arabískt brauð, límonaði, vatn, te, kaffi og hvítt kaffi í lokin.
Næturgisting í Amman (B.D)
Dagur 2/09.04: Jarash – Ajloun– Amman
Eftir morgunverð er farið til Jarash, sem er best varðveitta rómverska Decapolis borgin. Þegar farið er inn í borgina í gegnum hið sögulega Suður-hlið er komið að Oval torginu, musteri Zeusar og syðra hringleikhúsinu sem tekur yfir 3000 manns í sæti. Frá Colonnaded götu sést markaðstorg borgarinnar, íbúahverfi sem heitir Omayyad og dómkirkja frá 4. öld, St. Theodore‘s kirkja, Nymphaeum og nyrðra hringleikhúsið. Næst er farið til borgarinnar Aljoun sem er kunn fyrir víðáttumikinn furuskóg og hinn háa Ayyubid kastala, sem lék stórt hlutverk í sigrinum gegn krossförum sem voru é ferð fyrir átta öldum. Náttúran umhverfis Aljoun er græn og gróðursæl sem íbúar svæðisins færa sér í nyt með margvíslegum hætti.
Farið aftur á hótelið í Amman
Dagur 3/10.04: Borgarferð um Amman – Aqaba
Eftir morgunverð verður farið um Amman, höfuðborg Jórdaníu. Byrjað verður miðsvæðis í elsta hluta borgarinnar, sem er prýddur vel varðveittu rómversku borgarvirki með gott útsýni yfir borgina. Þar er einnig hægt að sjá rústir musteri Herkúlesar frá árunum 161 til 180, Byzantine kirkjuna, og einstakt fornminjasafn sem geymir m.a. helstu fornminjar Jórdaníu. Við borgarvirkið er rómverskt hringleikahús frá 2. öld sem er ennþá í notkun fyrir menningarviðburði.
Keyrt til Aqaba sem er við Rauðahafið. Innritun inn á hótel og hvíld.
Næturgisting Aqaba (B)
Dagur 4/11.04: Aqaba frídagur
Að loknum morgunverði er frídagur til að njóta sólarinnar, synda, spila golf eða ganga um Ayla svæðið
Dagur 5/12.04: Aqaba frídagur
Að loknum morgunverði, köfun í Aqaba, veiðiferð eða eldamennska og notið þess sem hótelið hefur upp á að bjóða.
Dagur 6/13.04: Aqaba frí um morgun – Wadi Rum
Frí frá morgunverði og til hádegis þegar farið verður til Wadi Rum. Litríkur sandur Wadi Rum skoðaður á Bedúina-jeppum í tvær klukkustundir og sólsetursins notið með arabísku tei.
Kvöldverður og næturgisting í Wadi Rum (Í bedúa-tjaldi). (B.D)
Dagur 7/14.04: Wadi Rum – Ferð til Petru – Gist í Petru
Eftir morgunmat er frítími til að njóta Wadi Rum, og valfrjáls ferð til að sjá sólarupprásina verður í boði. Síðan er keyrt til rós-rauðu borgarinnar Petru. Innritun á hótel og frjáls tími fram að kvöldi. Gengið verður í gegnum há klettagöng (Sig) og gengið fram að hinu stórfenglega og víðfræga fjárhirsluhliði. Leiðin er upplýst með 1500 kertum, til að líkja eftir því hvernig fólk hefði upplifað leiðina þegar hún var í notkun fyrir tíma nútímatækni.
Kvöldverður og næturgisting í Petru (B. D)
Dagur 8/15.04: Petru-heimsókn
Að loknum morgunverði er hin rós-rauða Petra heimsótt, sem Nabatean Arabar hjuggu út í himinháan klettavegg fyrir 2000 árum síðan. Farið verður í gegnum klettagöngin (Sig) sem eru um kílómetri á lengd með um áttatíu metra háum veggjum. Þekktasta kennileiti Petru, fjárhirsluhliðið mun blasa skyndilega við vegfarendum við lok leiðarinnar. Hægt er að verja heilum degi í að njóta fegurðar staðarins.
Kvöldverður og næturgisting í Petru (B. D)
Dagur 9/16.04: Petra – Nebo-fjall – Madaba – Dauðahafið
Að loknum morgunverði er keyrt að Dauðahafinu eftir konunglegu hraðbrautinni. Á leiðinni er stoppað við Nepo fjall þar sem talið er að Móses spámaður hafi horft yfir „fyrirheitna landið“ og hafi verið jarðsettur í kringum 12. öld fyrir okkar tímatal. Hægt er að skoða leifar af mósaík flísagólfi með skreytingum með myndum af veiðum og grænum grundum í lítilli kirkju sem var byggð á 4. öld.
Haldið er áfram til Madaba þar sem frægustu mósaík myndir Byznatine heimsveldisins eru staðsettar. Við skoðum helstu fjársjóði borgarinnar og gamla steinfellumynd af Palestínu sem er staðsett á gólfi grísku St. George rétttrúnaðarkirkjunnar. Haldið er þaðan til Dauðahafsins, (sem er sá staður á yfirborði jarðar sem er lengst undir sjávarmáli), til að synda og fljóta um í söltu vatninu .
Næturgisting við Dauðahafið (B)
Dagur 10/17.04: Dauðahafið
Að loknum morgunverði er frídagur og hvíld við Dauðahafið.
Næturgisting við Dauðahafið. (B)
Dagur 11/18.04: Dauðahafið
Að loknum morgunverði er frídagur og hvíld við Dauðahafið.
Næturgisting við Dauðahafið (B)
Dagur 12/19.04: Dauðahafið og Q.A.I flugvöllur vegna brottfarar
Farið til Queen Alia Int’l airport til brottfarar. LH 693 kl. 03:20.
Gistingin okkar:
Inn |
Út |
Fjöldi nótta / borg |
Hótel |
Dagur 1 |
Dagur 3 |
3 nætur í Amman BB |
Grand Millenium (5*) Dluxe rooms |
Dagur 3 |
Dagur 6 |
3 nætur í Aqaba BB |
Hyatt Regency (5*) |
Dagur 6 |
Dagur 7 |
1 nótt í Wadi Rum HB |
Sultana Camp Martian Tent |
Dagur 7 |
Dagur 9 |
2 nætur í Petru HB |
The Old Village (5*) |
Dagur 9 |
Dagur 12 |
3 nætur við Dauðahafið |
Hilton (5*) |
Innifalið í gjaldi:
- Flug frá Islandi til Jordaniu fram og til baka með þysk flugfélag Lufthansa.
- Vegabréfsáritun til Jórdaníu
- Við hittumst og fáum aðstoð frá okkar fulltrúum við vegabréfsáritun og komu
- Far með einkabifreiðum með loftræstingu með enskumælandi bílstjóra
- Einka enskumælandi leiðsögumaður alla daga fyrir hópferðir. Leiðsögumaður mun ekki fylgja viðskipavinum á frídögum í Aqaba og við Dauðahafið.
- 12 gistinætur á áðurnefndum hótelum með morgunverði. Fleiri máltíðir eru innifaldar í Petru & Wadi Rum on HB
- Málsverðir: 12 morgunverðir & 3 kvöldverðir á hótelum og áfangastöðum)
- Matreiðslunámskeið í Amman á Beit Sitti með kvöldverði 8. apríl.
- Allur aðgangseyrir að stöðum og hestbak í Petru
- Tveggja tíma jeppaferð í Wadi Rum
- Petra að næturlagi
- Ferðir til og frá hótelum og flugvelli
- Ekki innifalið:
- Þjórfé fyrir leiðsögumenn, ökumenn.
- Club car í Petra.
- Hádegisverðir sem ekki eru nefndir að ofan
- Kvöldverðir sem ekki eru nefndir að ofan
Ferðin kostar : 469.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einsmanns herbergi kostar 90.000 kr. aukalega.
Staðfestingargjald er 80.000kr. Það er hægt að greiða staðfestingargjald hér.
Fyrir frekari upplýsingar: kleopatratours@3.249.40.41
Athugið:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum Afríku eða Asíu. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/