Ferðalýsing
Við byrjum ferðina í stærstu borg Tyrklands, Istanbul þar sem við gistum í hjarta gömlu miðborgarinnar, Sultanahmet og munum meðal annars heimsækja Ægisif, Topkapi-höllinni og bláu moskuna. Því næst höldum við til Kusadasi við Eyjahafsströndina (Aegan sea) og þaðan munum við fara í dagsferð til fornu borgarinnar Ephesus, sem er ein af þeim best varðveittu í heimi. Við fáum einnig frítima á glæsilegu hóteli við Eyjahafsströndina. Þar næst heimsækjum Cappadocia sem er enn eitt náttúruundur Tyrklands þekkt fyrir óvenjulegt landslag með steinturnum og heimilum sem voru grafin í mjúkan móbergsteininn. Við höldum svo aftur til Istanbúl þar sem við fáum frjálsa daga áður en við kveðjum Tyrkland.

Sindri Guðjónsson fararstjóri í ferðinni. Sindri hefur leitt marga Íslendinga um ævintýralegar upplifanir Miðausturlanda með Kleopatratours. Hann er lögfræðingur að mennt og starfar sem yfirþýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Sindri hefur mikinn áhuga á Miðausturlenskri menningu og finnst fátt skemmtilegra en að deila með íslendingum sögu og menningu Miðausturlanda.
Dagur 1: 20. september- Ferðadagur: Keflavík til Istanbul
Við fljúgum með Icelandair í beinu flug frá Keflavík kl. 15:25 og lendum kl. 23:55 í Istanbúl.

Rúta bíður okkar og keyrir okkur á 5 stjörnu Sura Hagia Sophia Hotel (eða sambærilegt) þar sem við gistum fyrstu tvær næturnar.
Dagur 2: 21. september – Istanbúl
Eftir morgunverð heimsækjum við hina frægu Ægisif og Topkapi höllina. Eftir heimsóknirnar borðum við saman hádegisverð og eftir hádegisverðinn heimsækjum við aðra sögufræga byggingu í Istanbúl, Bláu Moskuna.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 3: 22. september – Istanbúl Sigling á Bosphorus
Eftir morgunverð förum við í siglingu á Bosphorus sem aðskilur Tyrkland evrópu og asíu megin og tengir Svartahafið við Marmarahafið.

Seinnipartinn er frjáls dagur Istanbul og margt að sjá og skoða í Istanbul. Það er til dæmis hægt að skoða enn frekar hinn gamla miðbæ Sultanahmet í kringum hótelið okkar, og það er alltaf gaman að fara á markaðina Spice Bazaar og Grand Bazaar, prútta við heimamenn og gera góð kaup.

(Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: 23. september – Kusadasi

Dagur 5: 24. september – Hin forna borg Ephesus
Eftir morgunverð heimsækjum við hina fornu borg Ephesus og borðum morgunverð þar og heimsækjum hús hinnar heilögu Maríu.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 6: 25. september – Kusadasi
Frjáls dagur í Kusadasi
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 7: 26. september – Kusadasi
Frjálsdagur í Kusadasi þar sem hægt er að njóta sólarinnar á hótelinu og strandarinnar við Eyjahafið, fara í bátsferð eða dagsferð til Pamukkale.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 27. september – Cappadocia
Í dag fljúgum við snemma morguns til Kappadókíu. Við komuna til Kappadókía skoðum við meðal annars Göreme svæðið í Cappadocia sem er þekkt fyrir hellana og sérstakt landslag.

Sérkennilegt landslag Kappadókíu hefur verið skapað á milljónum ára vegna eldvirkni og veðrun. Í gegnum árþúsundir hefur basalt og mýkri móbergssteinn myndað sérkennilega steinturna, „álfastrompa“. Íbúar svæðisins grófu eitt sinn mjúkan móbergsstein fyrir híbýli, hellakirkjur og klaustur.

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Við tékkum okkur inn á hótelið okkar, sem byggt er í hellum Cappadocia, og gistum þar næstu 2 næturnar.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 28. september – Göreme undir berum himni safn í Cappadocia
Valfrjáls aukaferð snemma morguns: Þau sem vilja geta farið í loftbelg yfir Cappadocia við sólarupprás

Við heimsækjum meðal annars Göreme útisafnið sem er á heimsminjaskrá UNESCO til að skoða hellakirkjurnar og vel varðveittar veggmyndir þeirra. Við munum sjá virkið Uchisar ofan á brattri hæð og munum kanna eina af mörgum neðanjarðarborgum á svæðinu, þar sem þúsundir heimamanna, allt frá Hetítum til frumkristinna, földu sig fyrir óvinum sínum. Borðum hádegisverð í Avanos.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 10: 29. september – Istanbul
Eftir morgunverð fljúgum við til Istanbul. Við komuna til Istanbul skráum við okkur inn á Grand Hyatt Regency hotel (5*) þar sem við gistum næstu 3 næturnar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 11-12: 30.september- 1. október – Frjálsir dagar í Istanbul
Frjálsir dagar í Istanbul og fararstjórarnir okkar eru til staðar með uppástungur. Það er tildæmis hægt að fara með kláf upp í Pierre Loti hæðina og njóta fallegs útsýnins frá einu af kaffihúsunum þar.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 13: 2. október- Fljúgum aftur heim til Íslands
Eftir morgunverð á hótelinu tékkum við út af hótelinu og höldum út á flugvöll. Við fljúgum aftur heim til Íslands frá flugvellinum í Istanbul kl. 12:25 og lendum aftur heima á Íslandi kl. 15:20.
*athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Beint flug til og frá Istanbúl með Icelandair
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23kg) og handfarangur
- Innanlandsflug frá Kusadasi til Cappadocia og frá Cappadocia til Istanbúl
- Íslensk fararstjórn
- Sérfróður enskumælandi leiðsögumaður
- Öll gisting á 5 stjörnu hótelum
- Morgunverður alla daga
- 5 hádegisverðir og 8 kvöldverðir
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum og vatn í rútunni
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfarastaða (ekki á Íslandi)
EKKI innifalið:
- Drykkir nema annað sé tekið fram
- Þjórfé
- Aukaferðir sem eru valfrjálsar

