Ferðalýsing
Menningar og sólarferð til Egyptalands
Einstök 15 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum á elephantin eyjunni á Níl, og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl við Rauðahafið.
Fararstjóri í ferðinni er Soffía Valdimarsdóttir. Soffía brennur fyrir ferðalögum og hefur ferðast víða og er þaulvön skipulagningu og ferðalögum með fjölda hópa innanlans og utan. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík og hefur búið í Vestmannaeyjum síðustu 12 ár. Soffía kynntist fyrst Egyptalandi í ferð með Kleopatratours og heillaðist það mikið af landi og þjóð að hún tók að sér að vera fararstjóri hópa og leyfa fleirum að upplifa með sér leyndardóma Egyptalands.
Í þessari ferð heimækjum við Sfinxinn og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna og grafhýsin, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.
Dagur 1: 5. nóvember – Ferðadagur til Egyptalands
Við fljúgum frá Íslandi kl. 07:45 og millilendum í Kaupmannahöfn. Við lendum í Kaíró kl. 20:05. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró, við Níl ánna og Tahrir torgið, þar sem við gistum fyrstu 3 næturnar.
Dagur 2: 6. nóvember –Kastalinn í Kaíró og Egypska safnið
Í dag byrjum við að kynnast stórborginni Kaíró. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar, og heimsækjum svo Siðmenningarsafn Egyptalands. Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalin)
Dagur 3: 7. nóvember – Píramídarnir, Sfinxinn og þjóðminjasafnið
Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Eftir hádegisverð heimsækjum við hið þekkta þjóðminjasafn Egyptalands.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 4: 8. nóvember – Aswan stíflan og Philae hofið
Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu og fljúgum niður til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptalands hins forna í Aswan.
Þegar við lendum, skoðum við háu Aswan stífluna og Philae hofið.
Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu Movenpick Resort Aswan Hotel á Elefantín eyjunni og gistum næstu tvær næturnar þar.
Hægt er að njóta glæsilegs kvöldverðarhlaðborðs Mövenpick úti á verönd hótelsins.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: 9. nóvember – Frjáls dagur í Aswan
Frjáls dagur. Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.
Restina af deginum er hægt að skoða Aswan, fara í siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp, eða slaka á í sólinn og njóta útsýnisins.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 6: 10. nóvember – Sigling á Nílarfljótinu
Við tékkum okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar, Movenpick MS Hamees. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 7: 11. nóvember – Sigling á Nílarfljótinu
Í dag byrjum við þriggja daga siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.
Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.
Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 12. Nóvember – Konungardalur og Hatshepsut Mustri
Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.
Við heimækjum vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar.
Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 13. Nóvember – El Karnak og Luxor musterin
Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.
Í dag heimsækum við austurbakka Luxor. Eftir morgunverð heimsækjum við El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins.
Eftir hádegisverð tékkum við okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel.
Kvöldheimsókn í hið glæsilega Luxor musteri.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 10: 14. Nóvember – Luxor
Í dag eigum við frjálsan dag í Luxor.
Aukaferð er VAL fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás.
(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 11: 15. Nóvember – Rauðahafið
Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.
Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 4 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir.
Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))
Dagur 12 og 13 : 16.-17. Nóvember – Frjáls tími í Hurgada
Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan.
Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))
Dagur 14: 18. nóvember- Ferðumst til Kaíró
Morgunverður á hótelinu, tékkum okkur svo út og fljúgum til Kaíró.
Tékkum okkur inn á Le Meridien Cairo Airport Hotel og gistum nóttina þar.
Frjáls tími.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 15: 19. nóvember- Ferðumst heim til Íslands
Tékkum okkur út snemma og fljúgum kl 09:55 aftur heim með Egyptair, við millilendum á leiðinni til Íslands í Kaupmannahöfn. Við fljúgum klukkan 20:50 frá Kaupmannahöfn og lendum aftur heima á Íslandi kl 23:20 sama dag.
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Icelandair og Egyptair .
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska (23 kg) og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Innanlands flug frá Kaíró til Aswan og frá Hurghada til Kaíró
- Morgunverður alla daga
- Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
- Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum
- Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
- Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara
EKKI innifalið:
- þjórfé
- Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana, aðgangur að The Royal Mummy room í Egypska safninu, eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
- Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
- Aðrar auka ferðir
Mikilvægt:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.