Menningar og sólarferð til Egyptalands 14.-27. janúar 2024

679.000 kr.

Hægt er að bóka og greiða staðfestingargjald: hér

Nánari lýsing um ferðina er hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Menningar og sólarferð til Egyptalands

Einstök 14 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskum fararstjóra og enskumælandi egypskum Egyptalandsfræðingi. Við gistum í Kaíró með útsýni yfir Níl ánna, fljúgum svo suður til Aswan þar sem við gistum á elephantin eyjunni á Níl,  og hefjum svo 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna, lífæð Egyptalands, á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og endum á 3 nátta dvöl á glæsilegu all inclusive resorti við Rauðahafið.

Fararstjóri í ferðinni er Soffía Valdimarsdóttir. Soffía brennur fyrir ferðalögum og hefur ferðast víða og er þaulvön skipulagningu og ferðalögum með fjölda hópa innanlans og utan. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík og hefur búið í Vestmannaeyjum síðustu 12 ár. Soffía kynntist fyrst Egyptalandi í ferð með Kleopatratours og heillaðist það mikið af landi og þjóð að hún tók að sér að vera fararstjóri hópa og leyfa fleirum að upplifa með sér leyndardóma Egyptalands.

Í þessari ferð heimsækjum við Sfinxinn og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna og grafhýsin, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.

Hægt er að bóka sig með í ferðina og greiða staðfestingargjald hér

Dagur 1: 14. janúar – Ferðadagur til Egyptalands

Við fljúgum frá Íslandi kl. 07:45 og millilendum í Kaupmannahöfn. Við lendum í Kaíró kl. 20:05. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró, við Níl ánna og Tahrir torgið, þar sem við gistum fyrstu 3 næturnar með útsýni út á Níl.

Dagur 2:  15. janúar – Píramídarnir og Sfinxinn, Sakkara og Memphis

Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Við heimsækjum einnig Sakkara, gömlu þrepapíramídana og Memphis, höfuðborg Egyptalands hins forna. 

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalin)

Dagur 3: 16. janúar – Kastalinn í Kaíró og Egypska safnið

Í dag kynnumst við stórborginni Kaíró ennþá betur. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar, og hið glæsilega Þjóðmynjasafn Egyptalands. Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað. 

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 4: 17. janúar –  Aswan stíflan og Philae hofið

Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu og fljúgum niður til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptalands hins forna í Aswan.  

Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu Movenpick Resort Aswan Hotel á Elefantín eyjunni og gistum næstu tvær næturnar þar. Restin af deginum er frjáls. 

Hægt er að njóta glæsilegs kvöldverðarhlaðborðs Mövenpick úti á verönd hótelsins. 

(Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 18. janúar – Hástíflan, Philae hofið og óbelísk

Eftir morgunverð skoðum við Hástífluna í Aswan og Philae hofið og hina ókláruðu óbelísk.

Restina af deginum er hægt að skoða Aswan,  fara í siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp, eða slaka á í sólinn og njóta útsýnisins á hótelinu.

(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)

Dagur 6: 19. janúar – Frjáls dagur í Aswan og Níl

Frjáls dagur. Eldsnemma morguns er VAL að bæta við heimsókn í Abu Simbel musterið, eitt af frægustu musterum heimsins.

Við tékkum okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar, Movenpick MS Hamees. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum. Frjáls tími restin af deginum. 

Movenpick MS Hamees
Káeta með hjónarúmi
Káeta með tveimur rúmum
Baðherbergi - káeta
Káeta - hjónaherbergi
Sólardekk
Sólardekk - kvöld
Sólardekk
Veitingastaðurinn
Veitingastaðurinn
Lounge
Lestrarherbergi
previous arrow
next arrow
 

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 7: 20. janúar – Sigling á Nílarfljótinu

Í dag byrjum við siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.

Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið. 

Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.

Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.

Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 8: 21. janúar – El Karnak og Luxor musterin

Eldsnemma morguns er val að bæta við loftbelg yfir Luxor sem er einstök upplifun. 

Í dag heimsækum við austurbakka Luxor. Við borðum hádegisverð á bátnum og eftir hádegisverð heimsækjum við El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins og hið glæsilega Luxor musteri. 

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 9: 22. janúar – Konungardalur og Hatshepsut Mustri

Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.  Í dag heimækjum við hinn þekkta vesturbakka Luxor, meðal annars Memnon stytturnar, Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar. 

Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun. 

Eftir heimsóknirnar dagsins tékkum við okkur inn á Sonesta Saint George Luxor hótel og borðum kvöldvderð á hótelinu.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 10: – 23. janúar –  Rauðahafið

Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar eftir hraðbrautinni í gegnum eyðimörkina til Hurgada.

Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 4 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir. 

Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 11 og 12 :  24. og 25. janúar – Frjáls tími í Hurgada

Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan. 

Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.

(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn og drykkir (All Inclusive))

Dagur 13: 26. janúar – Ferðumst til Kaíró

Morgunverður á hótelinu, tékkum okkur svo út og fljúgum til Kaíró.

Tékkum okkur inn á flugvallarhótelið Le Meridien Cairo Airport Hotel og gistum nóttina þar.

(Morgunverður innifalinn)

Dagur 14: 27. janúar – Ferðumst heim til Íslands

Tékkum okkur út snemma og fljúgum kl 09:55 aftur heim með Egyptair, við millilendum á leiðinni til Íslands í Kaupmannahöfn. Þeir sem vilja hafa tíma til að skreppa til dæmis á Strikið í smá stund áður en flogið er heim. Við fljúgum klukkan 20:50 frá Kaupmannahöfn og lendum aftur heima á Íslandi kl 23:20 sama dag.

(Morgunverður innifalinn)

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og til baka með Icelandair og Egyptair .
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska (23 kg) og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Innanlands flug frá Kaíró til Aswan og frá Hurghada til Kaíró
  • Morgunverður alla daga
  • Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
  • Fullt fæði í Hurghada og allir drykkir líka innifaldir (3 nætur)
  • Allar rútuferðir í loftkældum rútum
  • Allar rútur eru með wifi og alltaf vatnsflöskur innifaldar í rútunum
  • Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Sérfróður innfæddur enskumælandi leiðsögumaður
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
  • Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir íslenska ríkisborgara

EKKI innifalið:

  • þjórfé
  • Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana, aðgangur að The Royal Mummy room í Egypska safninu, eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.  
  • Hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor og ferð til Abu Simbel
  • Aðrar auka ferðir

Ferðin kostar : 679.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 175.000 kr. aukalega.

Staðfestingargjald er 90.000 kr. Hægt er að greiða staðfestingargjaldið hér.

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.