Description
Menningar og sólarferð til Egyptalands
Einstök 12 daga ferð til Egyptalands. Í ferðinni fáum við að kynnast fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskumælandi Egypta sem fararstjóra, við gistum í Kaíró með útsýni við Níl ánna, heimsækjum Aswan ásamt 3 nátta ógleymanlegri siglingu niður Níl ánna á Mövenpick fljótaskipi til Luxor og 4 nátta dvöl við Rauðahafið.
Omar Salama er fararstjóri í ferðinni, hann hefur búið á Íslandi síðastliðin 17 ár, en er fæddur og uppalinn í Egyptalandi. Það þekkja hann margir Íslendingar úr skákheiminum. Hann fæddist í Alexandríu og bjó svo í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á þessu fjölmenna landi þar sem búa fleiri en 100 milljón manns. Í ferðin okkar verða líka sérfróðir innfæddir enskumælandi fararstjórar ásamt Omari.
Í þessari ferð heimækjum við Sfinx og píramídana, eitt af sjö undrum veraldar. Við heimsækjum líka musteri faróanna, moskur og markaði, förum í þriggja daga fljótasiglingu á Níl, heimsækjum dal konunganna, og við endum svo við Rauðahafið þar sem við getum slakað á og notið sólarinnar á all-inclusive 5 stjörnu resort.
Hægt er að bóka og greiða staðfestingargjald fyrir ferðina hér
Dagur 1: 25. apríl – Ferðadagur til Egyptalands
Við ferðumst með Lufthansa frá Íslandi kl. 13:50 með tveggja tíma millilendingu í Frankfurt. Við komuna til Kaíró tékkum við okkur inn á 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró.
Dagur 2: 26. apríl –Kastalinn í Kaíró og Egypska safnið
Í dag byrjum við að kynnast stórborginni Kaíró. Við heimsækjum Salah El Din borgarvirkið í hjarta borgarinnar, og heimsækjum svo Siðmenningarsafn Egyptalands. Við borðum hádegisverð á milli heimsókna á vinsælum Egypskum veitingastað.
(Morgunverður og hádegisverður innifalin)
Dagur 3: 27. apríl– Píramídarnir, sfinxinn og þjóðminjasafnið
Eftir morgunmat er komið að því að skoða það sem flestir hafa beðið eftir, að sjá píramídana og Sfinxinn í Giza. Eftir hádegisverð heimsækjum við hið þekkta þjóðminjasafn Egyptalands.
(Morgunverður og hádegisverður innifalinn)
Dagur 4: 28. apríl – Aswan stíflan og Philae hofið
Eftir morgunverðinn skráum við okkur út af hótelinu og fljúgum niður til suður Egyptalands þar sem við byrjum upplifun okkar af hinu töfrandi Egyptalands hins forna í Aswan.
Þegar við lendum, skoðum við háu Aswan stífluna og Philae hofið.
Við tékkum okkur inn á fimm stjörnu fljótabátinn okkar, Movenpick MS Hamees. Við byrjum á að koma okkur fyrir í káetunum okkar og borðum svo hádegismat á bátnum.
Seinni partinn er hægt er hægt að velja aukaferð þar sem siglt er í heimsókn í Nubian þorp.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 5: 29. apríl – Sigling á Nílarfljótinu
Í dag byrjum við þriggja daga siglinguna á Nílarfljótinu til Luxor. Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands.
Við njótum siglingarinnar og heimsækum Kom Ombo musterið.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.
Við njótum útsýnisins frá bátnum og slökum á restina af deginum, og borðum svo kvöldmat um borð í bátnum.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 6: 30. apríl Konungardalur og Hatshepsut Mustri
Við höldum siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er merkileg upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.
Við heimækjum vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor og musteri Hatshepsut drottningarinnar.
Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 7: 1. maí El Karnak og Luxor musterin
Við borðum morgunverð snemma og tékkum okkur út af fljótabátnum.
Aukaferð er möguleg fyrir þau sem vilja, þar sem flogið er í loftbelg yfir konungadalinn við sólarupprás.
Í dag heimsækum við austurbakka Luxor. Eftir morgunverð heimsækjum við El Karnak musterið, stærsta musteri heimsins.
Eftir hádegisverð tékkum við okkur inn á Luxor á Sonesta Saint George Luxor hótel.
Kvöldheimsókn í hið glæsilega Luxor musteri og við borðum kvöldverð á hótelinu.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 2. maí – Rauðahafið
Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við með rútunni okkar til Hurgada.
Við komuna til Hurgada tékkum við okkur inn á 5 stjörnu Jaz Aquamarine Resort, þar sem við dveljum í 4 nætur. Á hótelinu er allt innifalið, bæði matur og allir drykkir.
Það eru 20 sundlaugar á svæðinu, 3 vatnsrennibrautagarðar og beinn aðgangur að einkaströnd við Rauðahafið.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9, 10 og 11: 3.-5. maí- Frjáls tími í Hurgada
Resortið okkar í Hurgada er stórt og flott og margir velja að vera á resortinu og njóta og hvíla sig eftir upplifun daganna á undan.
Í Hurgada eru allskonar auka ferðir sem hægt er að bæta við fyrir þá sem vilja, þegar komið er á staðinn. Vinsælast hefur tildæmis verið að fara á mótorhjól í Sahara eyðimörkinni, kafbátaferð í Rauðahafinu, snorkling og fleira.
(Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 11: 6. maí – Ferðumst til Kaíró
Morgunverður á hótelinu, tékkum okkur svo út og fljúgum til Kaíró.
Tékkum okkur inn á Le Meridien Cairo Airport Hotel og gistum nóttina þar.
Frjáls tími.
(Morgunverður innifalinn)
Dagur 13: 7. maí – Ferðumst heim til Íslands
Tékkum okkur út og fljúgum kl 15:25 aftur heim og komum til Íslands kl 23:30 sama dag.
(Morgunverður innifalinn)
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Innifalið í ferðinni:
- Flug fram og til baka með Lufthansa .
- Flugvallagjöld og skattar
- Ferðataska og handfarangur
- Íslensk fararstjórn
- Innanlands flug frá Kaíró til Aswan og frá Hurghada til Kaíró
- Morgunverður alla daga
- Fullt fæði á fljótaskipi (3 nætur)
- Fullt fæði í Hurghada og alla drykkir líka innifaldir (4 nætur)
- Allar rútuferðir í loftkældum rútum
- Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
- Sérfróður innfæddur enskumælandi farastjóri
- Allar ferðir milli flugvalla og hótela, komu og brottfara staða (ekki á Íslandi)
- Áritun til Egyptalands, á flugvellinum í Kaíró fyrir Íslenska ríkisborgara
EKKI innifalið:
- þjórfé
- Aukaferðir, valkvætt að bæta við: Aðgangur inn í pýramídana, aðgangur að The Royal Mummy room í Egypska safninu, eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
- Einnig er hægt að bæta við loftbelg yfir Luxor
Ferðin kostar : 639.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklingsherbergi kostar 145.000 kr. aukalega.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. Hægt er að greiða staðfestingargjaldið hér.
Mikilvægt:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir brottfaradag frá Egyptalandi.