Ferðalýsing
Farastjóri: Sindri Guðjónsson
Sindri Guðjónsson er vanur fararstjóri Kleopatratours og hefur leitt marga Íslendinga um ævintýralegar upplifanir Miðausturlanda. Sindri er lögfræðingur að mennt og starfar sem yfirþýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Hann bjó um nokkurt skeið í Jórdaníu þar sem hann lærði arabísku. Sindri hefur mikinn áhuga á Miðausturlenskri menningu og tungumálum.
Hægt er að greiða staðfestingargjald fyrir ferðina hér.
Dagur 1: 22. september – Brottför frá Íslandi
Flogið er með Icelandair í beinu flugi frá Keflavik kl: 08:20 og lent kl. 18:20 í Tel Aviv. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur til Betlehem. Rútuferðin tekur um það bil 1 klukkustund. Við tékkum okkur inn á hótelið okkar Ambassador City Hotel þar sem við gistum fyrstu nóttina. Það er frjáls tími restina af kvöldinu.
Dagur 2: 23 september – Betlehem – Amman
Við förum snemma af stað frá Betlehem, og keyrum yfir til Jórdaníu yfir Allenby brúna. Rútuferðin tekur 2,5 – 3 klukkustundir. Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu hótelið okkar, Rotana Tower þar sem við gistum næstu 2 næturnar.
Það er hvíld og frjáls tími í Amman til kl. 17, en þá býðst þátttakendum að læra að elda arabískan mat í (Beit Sitti = Amma hús í Amman 🙂 ) og borða í kvöldmat. Námskeiðinu fylgir fjögurra rétta máltíð (mezza, salat, aðalréttur og eftirréttur). Arabískt brauð, límonaði, vatn, te, kaffi og hvítt kaffi í lokin.
Næturgisting í Amman (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 3: 24. september – Jarash – Ajloun– Amman
Eftir morgunverð er farið til Jarash, sem er best varðveitta rómverska Decapolis borgin. Þegar farið er inn í borgina í gegnum hið sögulega Suður-hlið er komið að Oval torginu, musteri Zeusar og syðra hringleikhúsinu sem tekur yfir 3000 manns í sæti. Frá Colonnaded götu sést markaðstorg borgarinnar, íbúahverfi sem heitir Omayyad og dómkirkja frá 4. öld, St. Theodore‘s kirkja, Nymphaeum og nyrðra hringleikhúsið. Næst er farið til borgarinnar Aljoun sem er kunn fyrir víðáttumikinn furuskóg og hinn háa Ayyubid kastala, sem lék stórt hlutverk í sigrinum gegn krossförum sem voru é ferð fyrir átta öldum. Náttúran umhverfis Aljoun er græn og gróðursæl sem íbúar svæðisins færa sér í nyt með margvíslegum hætti.
Farið aftur á hótelið í Amman og frjáls tími restina af kvöldinu.
Næturgisting í Amman (Morgunverður innifalinn)
Dagur 4: 25. september – Borgarferð um Amman – Aqaba
Eftir morgunverð verður farið um Amman, höfuðborg Jórdaníu. Byrjað verður miðsvæðis í elsta hluta borgarinnar, sem er prýddur vel varðveittu rómversku borgarvirki með gott útsýni yfir borgina. Þar er einnig hægt að sjá rústir musteri Herkúlesar frá árunum 161 til 180, Byzantine kirkjuna, og einstakt fornminjasafn sem geymir m.a. helstu fornminjar Jórdaníu. Við borgarvirkið er rómverskt hringleikahús frá 2. öld sem er ennþá í notkun fyrir menningarviðburði.
Keyrt til Aqaba sem er við Rauðahafið. Innritun inn á hótelið okkar Hyatt Regency Ayla (5*) þar sem við gistum næstu 3 næturnar og hvíld.
Næturgisting Aqaba (Morgunverður innifalinn)
Dagur 5: 26. september Aqaba frídagur
Að loknum morgunverði er frídagur til að njóta sólarinnar, synda, spila golf eða ganga um Ayla svæðið
Dagur 6: 27. september -Aqaba frídagur
Að loknum morgunverði er frídagur, það er ýmislegt sem hægt er að gera í Aqaba, rölta um í gamla bænum, kafa og skoða kóralrif, fara á ströndina og njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða.
Næturgisting í Aqaba (Morgunverður innifalinn)
Dagur 7: 28. september – Aqaba frítími- Ferð til Petru
Eftir morgunverð er frítími og svo um hádegisbil er keyrt til rós-rauðu borgarinnar Petru. Innritun á hótelið okkar, The Old Village (5*) og frjáls tími fram að kvöldi. Gengið verður í gegnum há klettagöng (Sig) og gengið fram að hinu stórfenglega og víðfræga fjárhirsluhliði. Leiðin er upplýst með 1500 kertum, til að líkja eftir því hvernig fólk hefði upplifað leiðina þegar hún var í notkun fyrir tíma nútímatækni.
Kvöldverður og næturgisting í Petru (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 8: 29. September – Petru heimsókn
Að loknum morgunverði er hin rós-rauða Petra heimsótt, sem Nabatean Arabar hjuggu út í himinháan klettavegg fyrir 2000 árum síðan. Farið verður í gegnum klettagöngin (Sig) sem eru um kílómetri á lengd með um áttatíu metra háum veggjum. Þekktasta kennileiti Petru, fjárhirsluhliðið mun blasa skyndilega við vegfarendum við lok leiðarinnar. Hægt er að verja heilum degi í að njóta fegurðar staðarins.
Kvöldverður og næturgisting í Petru (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 9: 30. september – Petra, Litla Petra og Wadi Rum
Frí frá morgunverði og til hádegis þegar farið verður til Wadi Rum. Litríkur sandur Wadi Rum skoðaður á Bedúina-jeppum í tvær klukkustundir og sólsetursins notið með arabísku tei.
Kvöldverður og næturgisting í Wadi Rum (Í bedúa-tjaldi). (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)
Dagur 10: 1. október: Wadi Rum – Nebo-fjall – Madaba – Dauðahafið
Eftir morgunmat er frítími til að njóta Wadi Rum, og valfrjáls ferð til að sjá sólarupprásina verður í boði. Eftir morgunverð er keyrt að Dauðahafinu eftir konunglegu hraðbrautinni. Á leiðinni er stoppað við Nepo fjall þar sem talið er að Móses spámaður hafi horft yfir „fyrirheitna landið“ og hafi verið jarðsettur í kringum 12. öld fyrir okkar tímatal. Hægt er að skoða leifar af mósaík flísagólfi með skreytingum með myndum af veiðum og grænum grundum í lítilli kirkju sem var byggð á 4. öld.
Haldið er áfram til Madaba þar sem frægustu mósaík myndir Byznatine heimsveldisins eru staðsettar. Við skoðum helstu fjársjóði borgarinnar og gamla steinfellumynd af Palestínu sem er staðsett á gólfi grísku St. George rétttrúnaðarkirkjunnar. Haldið er þaðan til Dauðahafsins, (sem er sá staður á yfirborði jarðar sem er lengst undir sjávarmáli), til að synda og fljóta um í söltu vatninu. Við tékkum okkur inn á hótelið okkar Movenpick Dead Sea (5*) þar sem við gistum næstu 2 næturnar.
Næturgisting við Dauðahafið (Morgunverður innifalinn)
Dagur 11: 2. október – Frjáls dagur við Dauðahafið
Frjáls dagur og hvíld við Dauðahafið.
Næturgisting við Dauðahafið. (Morgunverður innifalinn)
Dagur 12: 3. október – Dauðahafið og Jerúsalem
Að loknum morgunverði keyrum við aftur yfir Allenby brúnna yfir til Jerúsalem. Rútuferðin tekur u.þ.b. 2 og hálfa klukkustund. Við komuna til Jerúsalem tékkum við okkur inn á hótelið okkar , The American Colony Hotel (5*). Frjáls tími við komuna til Jerúsalem til þess að skoða borgina.
Næturgisting í Jerúsalem (Morgunverður innifalinn)
Dagur 13: 4. október – Skoðunarferð um Jerúsalem
Eftir morgunverð kynnumst við Jerúsalem betur. Við byrjum ferðina með hrífandi útsýni af gamla bænum frá Ólífufjallinu. Heimsækjum því næst Gethsemane garðinn þar sem Jesús bað bænir eftir síðustu kvöldmáltíðina, kvöldið áður en hann var krossfestur.
Förum inn í gamla bæ Jerúsalem og göngum í gegnum hverfin fjögur (Múslima, Kristna, Gyðinga og Armenía) til þess að sjá aðal kennileitin frá 4000 ára dramatískri sögu, þar á meðal hofið Hvelfing Klettsins, Grátmúrinn og Kirkju hinnar heilögu grafar.
Næturgisting í Jerúsalem (Morgunverður innifalinn)
Dagur 14: 5. október – Jerúsalem – Ben Gurion flugvöllur og flug til Íslands
Keyrum eftir morgunverð til Ben Gurion flugallarins og fljúgum aftur heim til Íslands í beinu flugi með Icelandair. Förum í loftið kl. 11:10 og lendum í Keflavík kl. 15:35.
* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum
Gistingin okkar:
Fjöldi nátta/Borg | Hótel |
1 nótt í Bethlehem (BB) | Ambassador City hotel (4*) |
2 nætur í Amman (BB) | Rotana Tower (5*) |
3 nætur í Aqaba (BB) | Hyatt Regency Ayla (5*) |
2 nætur í Petru (HB) | The Old Village (5*) |
1 nótt í Wadi Rum (HB) | Alsultana Luxury Camp (5*) |
2 nætur við Dauðahafið (BB) | Movenpick Dead Sea (5*) |
2 nætur í Jerúsalem (BB) | The American Colony hotel (5*) |
Innifalið í verði:
- Flogið í beinu flugi með Icelandair
- 23 kg innrituð taska og handfarangur
- Vegabréfsáritun til Jórdaníu
- Við hittumst og fáum aðstoð frá okkar fulltrúum við vegabréfsáritun og komu
- Far með einkabifreiðum með loftræstingu með enskumælandi bílstjóra
- Einka enskumælandi leiðsögumaður alla daga fyrir hópferðir. Leiðsögumaður mun ekki fylgja viðskipavinum á frídögum í Aqaba og við Dauðahafið.
- 13 gistinætur á áðurnefndum hótelum með morgunverði. Fleiri máltíðir eru innifaldar í Petru & Wadi Rum on HB
- Málsverðir: 13 morgunverðir & 3 kvöldverðir á hótelum og áfangastöðum)
- Matreiðslunámskeið í Amman á Beit Sitti með kvöldverði 23. september
- Allur aðgangseyrir að stöðum sem við heimsækjum
- Tveggja tíma jeppaferð í Wadi Rum
- Petra að næturlagi
- Ferðir til og frá hótelum og flugvelli
Ekki innifalið:
-
- Þjórfé fyrir leiðsögumenn, ökumenn.
- Club car í Petra.
- Hádegisverðir sem ekki eru nefndir að ofan
- Kvöldverðir sem ekki eru nefndir að ofan
Ferðin kostar : 679.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.
Einstaklings herbergi kostar 245.000 kr. aukalega.
Staðfestingargjald er 80.000 kr. Það er hægt að greiða staðfestingargjald hér.
Fyrir frekari upplýsingar: kleopatratours@kleopatratours.is
Mikilvægt:
- Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni eða á: https://vinnuvernd.is/thjonusta/ferdavernd/
- Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá brottfarardegi frá Jórdaníu