Fá sæti laus: Konungsríkið Jórdanía – Menningar & Sólarferð 9.-22. apríl 2025

679.000 kr.

Jórdanía er falin perla Mið-Austurlanda sem margir eiga enn eftir að uppgötva. Í þessari 14 daga ferð til Jórdaníu upplifum við hina rósrauðu Petru sem margir þekkja frá Indiana Jones, við njótum þess bæði að gista við Rauðahafið og Dauðahafið á glæsilegum hótelum, eldum saman í höfuðborginni Amman og kynnumst fornminjum borgarinnar auk þess að gista í stjörnu bjartri Wadi Rum eyðimörkinni sem er einnig einstök upplifun. Öll gisting í ferðinni er sérvalin með bestu upplifun í huga fyrir gestina okkar.

Hægt er að bóka sig með í ferðina með því að greiða staðfestingargreiðslu í gegnum linkinn hér.

Nánari ferðalýsingu er að finna hér fyrir neðan:

Áfangastaður

Ferðalýsing

Farastjóri: Sindri Guðjónsson 

Sindri Guðjónsson er vanur fararstjóri Kleopatratours og hefur leitt marga Íslendinga um ævintýralegar upplifanir Miðausturlanda. Sindri er lögfræðingur að mennt og starfar sem yfirþýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Hann bjó um nokkurt skeið í Jórdaníu þar sem hann lærði arabísku, og hefur meðal annars kennt arabísku í Háskóla Íslands. Sindri hefur mikinn áhuga á Miðausturlenskri menningu og arabíska tungumálinu.

Hægt er bóka sig í ferðina með því að greiða staðfestingargreiðslu hér.

Dagur 1: 9. apríl – Ferðadagur til Jórdaníu

Flogið til Amman með Austrian frá Keflavik 9. apríl kl: 00:10 til Vínarborgar þar sem við millilendum og svo frá Vínarborg til Amman þar sem við lendum kl. 15:40 (Við hittumst á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 8. apríl). Töskurnar er tékkaðar inn í  Keflavík og við fáum þær í Amman. Hópurinn safnast saman og við fáum vegabréfsáritunina okkar og förum í rútunni sem bíður okkar á hótelið Rotana Tower***** í Amman, þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar í Jórdaníu.

Amman Rotana
Rotana - morgunverður
Rotana - Room
Rotana Room - king bed
previous arrow
next arrow

Dagur 2: 10. apríl – Frjáls dagur og Amman í Amman

Það er hvíld og frjáls tími þangað til seinnipartinn, þá býðst þátttakendum að læra að elda arabískan mat í Beit Sitti (= Ömmu hús í Amman 🙂 )  og borða kvöldmat.  Námskeiðinu fylgir fjögurra rétta máltíð (mezza, salat, aðalréttur og eftirréttur),arabískt brauð, límonaði, vatn, te, kaffi og hvítt kaffi í lokin.

Næturgisting í Amman (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 3: 11. apríl – Amman – Jerash – Amman 

Eftir morgunverð verður farið um Amman, höfuðborg Jórdaníu. Byrjað verður miðsvæðis í elsta hluta borgarinnar, sem er prýddur vel varðveittu rómversku borgarvirki með gott útsýni yfir borgina. Þar er einnig hægt að sjá rústir musteri Herkúlesar frá árunum 161 til 180, Byzantine kirkjuna, og einstakt fornminjasafn sem geymir m.a. helstu fornminjar Jórdaníu. Við borgarvirkið er rómverskt hringleikahús frá 2. öld sem er ennþá í notkun fyrir menningarviðburði.

Eftir morgunverð er farið til Jerash, sem er best varðveitta rómverska Decapolis borgin. Þegar farið er inn í borgina í gegnum hið sögulega Suður-hlið er komið að Oval torginu, musteri Zeusar og syðra hringleikhúsinu sem tekur yfir 3000 manns í sæti. Frá Colonnaded götu sést markaðstorg borgarinnar, íbúahverfi sem heitir Omayyad og dómkirkja frá 4. öld, St. Theodore‘s kirkja, Nymphaeum og nyrðra hringleikhúsið.

Næturgisting í Amman (Morgunverður innifalinn)

Dagur 4: 12. apríl –  Amman – Madaba – Mt Nebo – Wadi Rum

 Viðð borðum morgunmat á hótelinu og og tékkum okkur út.  Í dag keyrum við suður til Wadi Rum og höldum áfram að skoða okkur um í Jórdaníu á leiðinni. 

Við byrjum á að heimsækja borgina Madaba, þar sem frægustu mósaík myndir Byznatine heimsveldisins eru staðsettar. Við skoðum helstu fjársjóði borgarinnar og gamla steinfellumynd af Palestínu sem er staðsett á gólfi grísku St. George rétttrúnaðarkirkjunnar. 

Þar á eftir komum við að Nepo fjallinu þar sem talið er að Móses spámaður hafi horft yfir „fyrirheitna landið“ og verið jarðsettur í kringum 12. öld fyrir Krist. Hægt er að skoða leifar af mósaík flísagólfi með skreytingum með myndum af veiðum og grænum grundum í lítilli kirkju sem var byggð á 4. öld.

Því næst keyrum við til Wadi Rum. Litríkur sandur Wadi Rum skoðaður á Bedúina-jeppum í tvær klukkustundir og sólsetursins notið með arabísku tei.Kvöldverður er borðaður í Alsultana Luxury camp, grillað lamb að hætti Bedúina. 

Kvöldverður og næturgisting í Wadi Rum (Í bedúa-tjaldi). (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 5: 13. apríl – Wadi Rum – Aqaba við Rauðahafið

Aukaferð er VAL fyrir þau sem vilja eldsnemma, þar sem flogið er í loftbelg yfir Wadi Rum þar sem við sjáum sólarupprás yfir eyðimörkinni.

Við höldum því næst til  til Aquaba við Rauðahafið. Við tékkum okkur inn á hótelið okkar, Aqaba Hyatt Regancy (5*). Á hótelinu eru bæði flottar sundlaugar og einnig einkaströnd við Rauðahafið.

hyatt regancy view
Hyatt Regancy Aqaba
Hyatt Regancy sunset
previous arrow
next arrow

 

Næturgisting í Aqaba (Morgunverður innifalinn)

Dagur 6 og 7: 14. – 15. apríl – Aqaba – Rauðahafið frídagar

Frídagar í Aqaba, það er ýmislegt sem hægt er að gera í Aqaba, rölta um í gamla bænum,  spila golf eða kafa og skoða kóralrif, fara á ströndina og njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða.

 

Næturgisting í Aqaba (Morgunverður innifalinn)

Dagur 8: 16. apríl- Aqaba til Petra og Petra að kvöldi

Eftir morgunverð tékkum við okkur út og keyrum yfir til Petru. Við innritum okkar á hótelið okkar, The Old Village (5*) og frjáls tími fram að kvöldi.

Eftir kvöldmat fáum við að upplifa Petru að kvöldi sem er einstakt. Gengið verður í gegnum há klettagöng (Sig) og gengið fram að hinu stórfenglega og víðfræga fjárhirsluhliði. Leiðin er upplýst með 1500 kertum, til að líkja eftir því hvernig fólk hefði upplifað leiðina þegar hún var í notkun fyrir tíma nútímatækni.

Næturgisting Petra (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 9: 17. apríl – Hin rós-rauða Petra

Að loknum morgunverði heimsækjum við aftur hina rós-rauðu Petra en nú að degi til og höfum því meiri tíma til að skoða okkur um á þessum fallega stað. Nabatean Arabar hjuggu Petru út í himinháan klettavegg fyrir 2000 árum síðan. Farið verður í gegnum klettagöngin (Sig) sem eru um kílómetri á lengd með um áttatíu metra háum veggjum. Þekktasta kennileiti Petru, fjárhirsluhliðið mun blasa skyndilega við vegfarendum við lok leiðarinnar. Hægt er að verja heilum degi í að njóta fegurðar staðarins. 

Næturgisting Petra (Morgunverður og kvöldverður innifalinn)

Dagur 10: 18. apríl – Petra til Dauðahafsins

Eftir morgunverð er keyrt frá Petra til Dauðahafsins. Við komuna til Dauðahafsins innritum við okkur í Movenpick Dead Sea (5*) þar sem við gistum næstu 4 næturnar á þessu fallega hóteli. 

Næturgisting við Dauðahafið (Morgunverður innifalinn)

Dagur 11 -13: 19-21. apríl – Frídagar við Dauðahafið

Frídagar og hvíldardagar þar sem við njótum þess að vera við Dauðahafið. Það eru bæði glæsilegar sundlaugar og aðgangur að einkaströnd þar sem hægt er að fljóta í Dauðahafinu. 

 

Næturgisting við Dauðahafið (Morgunverður innifalinn)

Dagur 14: 22. apríl- Dauðahafið og ferðumst heim til Íslands

Farið til Queen Alia Int’l airport til brottfarar. Fljúgum frá Amman með Austrian kl. 16:45, millilendum í Vínaborg og lendum aftur á Íslandi kl. 23:20. 

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum

Gistingin okkar:

Inn

Út

Fjöldi nótta / borg

Hótel

Dagur 1

Dagur 4

3 nætur í Amman BB

Rotana Tower (5*)

Dagur 4

Dagur 5

1 nótt í Wadi Rum HB

Alsultana Luxury Camp

Dagur 5

Dagur 8

3 nætur í Aqaba BB

Hyatt Regency Ayla (5*)

Dagur 8

Dagur 10

2 nætur í Petra HB

The Old Village (5*)

Dagur 10

Dagur 14

4 nætur við Dauðahafið

Movenpick Dead Sea  (5*)

 

Innifalið í verði: 

  • Flug frá Íslandi til Jórdaníu fram og til baka með Austrian Airlines
  • Innritaður farangur (23kg) og handfarangur
  • Vegabréfsáritun til Jórdaníu
  • Við hittumst og fáum aðstoð frá okkar fulltrúum við vegabréfsáritun og komu
  • Allar rúturferðir í loftkældum rútum
  • Íslensk fararstjórn
  • Einka enskumælandi leiðsögumaður alla daga fyrir hópferðir
  • 13 gistinætur á áðurnefndum hótelum með morgunverði. Kvöldverður er innifalinn í Wadi Rum og Petra
  • Matreiðslunámskeið í Amman á Beit Sitti með kvöldverði
  • Allur aðgangseyrir að öllum stöðum sem við heimsækjum
  • Tveggja tíma jeppaferð í Wadi Rum
  • Petra að næturlagi
  • Ferðir til og frá hótelum og flugvelli (ekki á Íslandi)

Ekki innifalið:

    • Þjórfé
    • Club car í Petra
    • Loftbelgur og aukaferðir
    • Hádegisverðir sem ekki eru nefndir að ofan
    • Kvöldverðir sem ekki eru nefndir að ofan

Ferðin kostar : 679.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einsmanns herbergi kostar 210.000 kr. aukalega.

Staðfestingargreiðsla er 90.000 kr. Það er hægt að bóka sig í ferðina og greiða staðfestingargreiðslu með því að fylgja linknum hér. 

Fyrir frekari upplýsingar: kleopatratours@kleopatratours.is

Mikilvægt:

  • Mælt er með að fólk láti bólusetja sig gegn hinum hefðbundu sjúkdómum. Bóka má tíma og fá nánari upplýsingar hjá heilsugæslunni
  • Vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði frá komudegi til Jórdaníu
  • Lágmarksþáttaka þarf að nást til að ferð sé farin

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Fá sæti laus: Konungsríkið Jórdanía – Menningar & Sólarferð 9.-22. apríl 2025”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *