Sold out!

Uppselt: Einstök ferð um Egyptaland með 13 daga siglingu á Níl ánni (6.-20. mars 2023)

Category:

Description

Einstök 15 daga ferð til Egyptalands þar sem siglt er niður Níl ánna frá Aswan í Suður-Egyptalandi til Kaíró á fimm stjörnu fljótabátnum Mövenpick M/S Darakum í 13 daga/ 12 nætur.

DarakumMS2-4
Darakum_xxxxxxx_i113525-1_4by3
Darakum_xxxxxxx_i113520
DarakumMS2-43
DarakumMS2-42
Darakum_xxxxxxx_i113525
Darakum_xxxxxxx_i113528
DarakumMS2-33
previous arrowprevious arrow
next arrownext arrow

 

Píramídarnir í Giza, Konungadalurinn og Karnak musterið eru frægustu og mest heimsóttu fornminjar Egyptalands og meðal þess sem við fáum að sjá í þessari ferð, en þetta er eingöngu lítill hluti af þeirri arfleifð sem forn Egyptar skildu eftir sig. Í þessari siglingu sem tekur okkur eftir endilöngu Egyptalandi munum við kynnast mun fleiri fornleifum sem gefur dýpri upplifun á afrekum faróanna og skilning á hvernig list þeirra og arkitektúr breyttist yfir þúsundir ára.

Það er stór upplifun að sigla eftir Níl, lengsta fljóti í Afríku og einni lengstu á heimsins, þar sem báðir bakkar fljótsins eru fullir af leyndardómum Egyptalands sem ber vitni ótrúlegs verkvits þessa tíma. Auk þess að kynnast fornminjum og ríkri sögu forn Egypta, þá eru ýmsar upplifanir um borð í fljótabátnum, meðal annars Galabaia partý, magadans, vínsmökkun og matreiðslunámskeið.

Í ferðinni fáum við að kynnast háþróaðri fornri menningu Egypta sem er meira en 6000 ára gömul, með íslenskumælandi Egypta sem fararstjóra auk enskumælandi Egyptologista. Við heimsækum Sfinxinn og píramídana í Giza, eitt af sjö undrum fornaldrar sem enn stendur. Við upplifum konungadalinn og drottningadalinn, og ótöl musteri og grafhýsi sem hafa varðveist á ótrúlegan hátt þar sem við siglum eftir Níl ánni, lífæð landsins í yfir 7000 ár. Við heimsækjum markaði, kirkjur og moskvur, og kynnumst Egyptalandi á einstakan hátt.

Omar Salama sem er fararstjóri í þessari ferð,  hefur búið á Íslandi síðastliðin 17 ár.  Hann er fæddur og uppalinn í Egyptalandi.  Margir  Íslendingar úr skákheiminum þekkja til Omars.  Hann fæddist í Alexandríu og bjó í Kaíró til 25 ára aldurs, þegar hann flutti til Íslands. Hann þekkir því vel menningu bæði Egyptalands og Íslands og hefur mikla þekkingu á Egyptalandi sem er fjölmennt land þar sem búa fleiri en 100 milljón manna. Í ferðinni okkar verður líka sérfróður enskumælandi fararstjóri ásamt Omari .

Dagur 1: 6. mars – Ferðadagur til Egyptalands

Við fljúgum frá Íslandi kl. 07:45 og millilendum í Kaupmannahöfn. Við lendum í Kaíró kl. 20:05. Rúta bíður okkar á flugvellinum og keyrir okkur á hótelið okkar. Við tékkum okkur inn á 5 stjörnu InterContinental Semiramis Cairo Hotel í hjarta Kaíró og gistum þar í tvær nætur, við Níl ánna.

Dagur 2: 7. mars – Pýramídarnir í Giza, Sfinxinn og þjóðminjasafn Egyptalands

Eftir morgunverð á hótelinu heimsækjum við hina frægu píramída í Giza, Sfinxinn og þjóðminjasafn Egyptalands.

Dagur 3: 8. mars – Aswan og 5 stjörnu Fljótaskipið Movinpick Darakum

Við borðum morgunverð á hótelinu, tékkum okkur út og fljúgum til Aswan í Suður-Egyptalandi. Í Aswan tékkum við okkur inn á MS Darakum Nile Cruise – 5 stjörnu fljótaskipið sem mun sigla með okkur gegnum Egyptaland.

Þeir sem vilja geta bætt við siglingu á Felucca bát á Nílánni, þar sem farið er í heimsókn í lítið Nubian þorp.

Hádegisverður og kvöldverður um borð í fljótaskipinu.

Dagur 4: 9. mars – Frjáls dagur í Aswan

Morgunverður um borð á skipinu og eftir morgunverð er valfrjálst að bæta við ferð til Abu Simbel, eitt af frægustu musterum heimsins.

Hádegisverður og kvöldverður á skipinu.

Dagur 5: 10. mars – Aswan stíflan, Philae hofið og Kom Ombo musterið

Eftir morgunverð um borð förum við að Aswan stíflunni og skoðum Philae Hofið og ókláruðu Obilisk súluna.  Við borðum hádegisverð um borð í skipinu.

Kom Ombo hofið

Um 13:30 hefjum við siglinguna og siglum til Kom Ombo. Við heimsækjum Kom Ombo hofið og siglum til Edfu.

Borðum kvöldverð um borð í skipinu.

Dagur 5: 11. mars – Edfu og Esna skipastiginn

Borðum morgunverð snemma um borð í skipinu og eftir morgunverð heimsækjum við Edfu Musterið á hestvagni. Musterið er risastórt og mikilfenglegt.

Við höldum svo siglingunni áfram og siglum til Luxor. Á leiðinni til Luxor siglum við í gegnum Esna skipastigann sem er áhugaverð upplifun, skipið fer frá suður hliðinni til norðurhliðarinnar með lægra vatnsmagni.

Hádegisverður og kvöldverður um borð.

Dagur 6: 12. mars – Konungadalurinn, drottningardalurinn, Luxor og Karnak musterin

Við byrjum daginn á morgunverði á skipinu. Við heimækjum vesturbakka Luxor, meðal annars Konungadalinn í Luxor, drottningardalinn og musteri Hatshepsut drottningarinnar.

Hægt er að bæta við að heimækja gröf farósins Tutankhamun.

Seinni partinn heimsækjum við austurbakka Luxor, og skoðum Luxor musterið og Karnak musterið sem var stærsta musterið á tímum fornegypta og er stærsta musteri sem hefur verið byggt.

Við borðum bæði hádegisverð og kvöldverð á bátnum.

Dagur 7: 13. mars – Hathor musterið í Dendera

Morgunverður um borð í bátnum og við siglum yfir ti Quena. Eftir hádegisverð heimsækjum við Hathor musterið í Dendera, eitt best varðveitta musteri Egyptalands. Hathor er gyðja ástar, fegurðar og frjósemis. Eftir heimsóknina siglum við til Naga Hammadi.

Við borðum kvöldverð um borð á skipinu.

Dagur 8: 14. mars – Abydos Seti I

Morgunverður um borð á meðan við siglum til Balyana í gegnum Abu Homar skipastigann og skoðum svo Abydos Seti I musterið sem er eitt besta dæmi um Egypska list og er byggt til heiðurs guðinum Osiris.

Temple of Seti I

 

Við siglum svo til Sohag, og borðum hádegisverð og kvöldverð á skipinu.

Dagur 9: 15. mars – Frjáls dagur á bátnum og Prince Tawdous klaustrið

Morgunverður um borð í bátnum á meðan við siglum til Tel El Amarna.

Hádegisverður um borð í bátnum og stoppað fyrir framan Prince Tawdous klaustrið til þess að sjá klaustrið frá bátnum.

Kvöldverður um borð í bátnum.

Dagur 10: 16. mars – Tel El Amarna

Eftir morgunmat um borð í bátnun heimsækjum við grafhýsi Tel El Amarna og konunglega grafhýsi Akhnaten, litlu musteri Aten og  fleiri grafhýsi.

Akhetaton er ein af fáum borgum Egyptalands hins forna sem hefur verið grafin upp og haldið við á þennan hátt, þar sem fornleifafræðingarnir gátu endurbyggt óvenjulega nákvæma mynd af skipulagi borgarinnar. Borgin var staðsett miðja vegu milli Thebes (Luxor) og Memphis (Kaíró) við bakka Níl, og var byggð á 14 öld fyrir Krist af Egyptska kónginum Akhenaton og eiginkonu hans Nefertiti, sem flutti þegna sína þangað frá Luxor til þess að stofna nýja eingyðistrú, trú sólarguðsins Aten.

Dagur 11: 17. mars – Bin Hassan 

Morgunverður um borð í bátnum, heimsækjum Bin Hassan grafhýsin, forn Egypskan kirkjugarð á austurbakka Níl. Við heimsækjum meðal annars grafhýsi Baquet III, grafhýsi Khety og grafhýsi Amenemhet.

Hádegisverður á bátnum og siglum til Beni Suif og kvöldverður á bátnum.

Dagur 12: 18. mars – Gamla Kaíró

Morgunverður um borð í bátnum og siglum til Kaíró. Eftir hádegisverð heimsækjum við gömlu Kaíró, Salah El Din virkið í hjarta borgarinnar, hangandi kirkjuna, Abu Serga kirkjuna og Amr Ibn El As moskuna og Khan El Khalili markaðinn.

Dagur 14: 19. mars – Memphis og Sakkarah þrepapíramídarnir

Eftir morgunverð á fljótabátnum heimsækjum við fornleifar frá fornu borginni Memphis og Sakkarah þrepapíramídana.

Hádegisverður á Egypskum veitingastað.

Kvöldverður á skipinu.

Dagur 15: 20 mars – Heimferðardagur

Eftir morgunverð á skipinu tékkum við okkur út og fljúgum aftur til Íslands. Flogið er frá Kaíró kl. 09:55 með Egyptair, við millilendum í Kaupmannahöfn og fljúgum þaðan með Icelandair og lendum aftur heima á Íslandi kl. 23:20.

* Athugið að dagskrá getur tekið breytingum.

Innifalið í ferðinni:

  • Flug fram og tilbaka með Icelandair og Egyptair
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska og handfarangur
  • Íslensk fararstjórn
  • Innanlands flug frá Kaíró til Aswan
  • Morgunverður alla daga
  • Fullt fæði á fljótaskipi (12 nætur/13 dagar)
  • Hádegisverðir og kvöldverðir samkvæmt ferðalýsingu.
  • Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir skv. ferðaáætlun
  • Sérfróður innfæddur enskumælandi farastjóri
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela  (ekki á Íslandi)
  • Áritun til Egyptalands, fæst  á flugvellinum í Kaíró fyrir Íslenska ríkisborgara

EKKI innifalið:

  • Þjórfé
  • Aðgangur inn í pýramídana, aðgangur að The Royal Mummy room í Egypska safninu, eða aðgangur að Tutankhamun Tomb í Konungadalnum. Má kaupa það á staðnum.
  • Valfrjálsar auka ferðir: Abu Simbel og ferð í Nubian þorp

Ferðin kostar : 949.000 kr.á mann m.v. 2 fullorðin saman í herbergi.

Einstaklingsherbergi kostar 292.000 kr. aukalega.

Staðfestingargjald er 160.000kr.

Hægt er að greiða staðfestingargjald fyrir ferðina hér.

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
V
Verulega áhugavert

Verulega áhugaverð, sagnfræðileg ferð.